Lyfja kaupir vörumerki Jurtaapóteksins Lovísa Arnardóttir skrifar 5. febrúar 2026 11:48 Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju og Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir og stofnandi Jurtaapóteksins. Aðsend Lyfja hefur fest kaup á vörumerki Jurtaapóteksins, sem var stofnað af Kolbrúnu Björnsdóttur grasalækni árið 2004. Samhliða breytingunum mun verslun Jurtaapóteksins á Laugavegi loka.
Kolbrún mun áfram koma að þróun vara Jurtaapóteksins, sem verða aðgengilegar í verslunum Lyfju frá og með 1. mars. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Lyfju. Þar segir Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, kaupin á vörumerki Jurtaapóteksins í samræmi við stefnu fyrirtækisins um að efla framboð á hreinum vörum og auka aðgengi að þeim í verslunum Lyfju um land allt. Lyfja áætlar að með kaupum á vörumerkinu aukist framboð á náttúrulegum lausnum hjá fyrirtækinu um rúmlega 20 prósent. „Lyfja hefur á undanförnum árum lagt aukna áherslu á að bjóða upp á hreinar og náttúrulegar vörur og fellur vörumerki Jurtaapóteksins vel að þeirri stefnu. Þá er mikils virði að Kolbrún komi áfram að þróun á vöruframboði vörumerkisins, enda býr hún yfir áratuga reynslu og þekkingu á þessu sviði. Í samstarfinu verður lögð rík áhersla á að halda í þau gildi sem Jurtaapótekið hefur byggt á frá upphafi,“ segir Karen Ósk. Tímamót fyrir Jurtaapótekið Í tilkynningu segir Kolbrún breytingarnar marka tímamót fyrir vörumerki Jurtaapóteksins og viðskiptavini þess. „Þetta eru mikil tímamót fyrir vörumerki Jurtaapóteksins. Með þessum breytingum skapast stærri vettvangur fyrir þá hugmyndafræði sem hefur mótað vörumerkið frá upphafi. Í þróun vara Jurtaapóteksins höfum við ávallt lagt áherslu á vandað hráefni, skýrt innihald og að forðast óþarfa fylli- og aukaefni, og þau vinnubrögð munu fylgja áfram inn í næsta kafla vörumerkisins,” segir Kolbrún. Á mynd: Karen Ósk Gylfadóttir, framkvæmdastjóri Lyfju, og Kolbrún Björnsdóttir, grasalæknir og stofnandi Jurtaapóteksins.
Lyf Matvælaframleiðsla Kaup og sala fyrirtækja Mest lesið Samkaup kaupir Fjarðarkaup Viðskipti innlent Vinkonur í bissness: Búnar að yfirtaka bílskúr foreldranna Atvinnulíf Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Viðskipti innlent Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Viðskipti innlent Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Sjá meira