„Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ Stefán Árni Pálsson skrifar 3. febrúar 2026 10:32 Valdís og Ómar fluttu til Spánar. Kjarnafjölskylda úr Hafnarfirði, ung hjón með 2 börn, ákváðu þann 26. ágúst 2022 að flytja til Spánar. Síðla þess dags sat húsmóðirin, Valdís Hrönn Berg Ingudóttir, að skoða spænskar fasteignasölusíður og eiginmaður hennar, Ómar Smári Jónsson, kom þreyttur inn úr vinnunni. Hún spyr hvort þau ekki bara að flytja og hann svarar umsvifalaust: „já“.
Þau sáu það hins vegar ekki fyrir að það tæki þau 18 mánuði að selja draumahúsið sitt í Hafnarfirði. En eftir 20 opin hús og 4 keðjur sem slitnuðu tókst það á endanum. Þau voru hins vegar óþreyjufull og voru rúmu ári síðar búin að festa sér hús í spænskri sveit fyrir utan teppabæinn Crevillent skammt frá Alicante — þrátt fyrir að vera ekki búin að selja eignina á Íslandi. Þau hjónin og börnin þeirra tvö, Rökkvi og Ronja, voru fyrstu Íslendingarnir til að skrá sig til búsetu í Crevillent en spánarbakterían er smitandi og nú eru 12 Íslendingar skráðir þar til heimilis. Í myndbrotinu sem hér fylgir lýsir Valdís því hvernig afborganir af íslenska húsnæðisláninu þeirra fóru úr rúmum 200 þús. krónum á mánuði upp í um hálfa milljón, þar af fóru 10 þúsund krónur til að borga niður höfuðstólinn. „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi,“ segir Valdís sem starfar í dag sem fjárhagsmarkþjálfi á netinu. Lóa Pind Aldísardóttir og Ívar Kristján Ívarsson myndatökumaður heimsóttu fjölskylduna síðasta sumar og fengu að skyggnast inn í tilveru ungrar fjölskyldu sem er að koma sér fyrir í nýju landi - og það hefur gengið á ýmsu! Afraksturinn af heimsókninni má sjá í 3. þætti af sjöundu þáttaröð Hvar er best að búa? sem er kominn inn á Sýn+. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá brot úr þættinum. Klippa: Eltu ævintýraþrána og flúðu íslenska lánakerfið til Spánar Í þáttaröðinni heimsækir Lóa alls konar fólk, m.a. íslenskar konur sem féllu fyrir ítölsku eyjalífi, unga frumkvöðla sem ákváðu að setjast að nálægt alþjóðaflugvöllum til að auðvelda ferðalög milli heimsálfa, körfuboltafjölskyldu sem hefur verið í fjarbúð milli ótal landa og deilir nú tíma sínum milli Njarðvíkur og Póllands, ungri konu sem stofnaði kökufyrirtæki í Köben og konu á miðjum aldri sem fann ástina í örmum Spánverja á Djúpavogi sem leiddi þau til Andalúsíu þar sem við fylgjumst með brúðkaupi þeirra. Og loks kynnumst við hjónum á besta aldri sem höfðu kjark til að setjast að í alræmdri stórborg í Nígeríu umkringd vopnuðum öryggisvörðum. Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru Ívar Kristján Ívarsson og Hákon Pálsson, klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn.
Hvar er best að búa? Íslendingar erlendis Mest lesið Megas er látinn Lífið Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Lífið Guðrún Sóley gengin út Lífið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Lífið „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Lífið Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Lífið Skvísur og töffarar fögnuðu með Elvari Tónlist Harry Styles setti heimsmet Lífið Stórbrotinn stíll Zendayu Tíska og hönnun Hvarf vegna athyglisbrests á hæsta stigi Tónlist Fleiri fréttir „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Það allra besta að gráta í gufu Lauren Bennett látin 37 ára að aldri Listabarn á leiðinni Kenningin um útskiptin miklu sem umbreytti vestrænum stjórnmálum Snæfríður og Högni selja útsýnisíbúð í 101 Baðst afsökunar á að hafa sagst vilja ríða Minogue Pétur Jóhann á von á öðru barnabarni Birtu fyrstu myndina af Mette-Marit eftir aðgerðina Stjörnulífið: Bátsferðir og brjóst Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Sjá meira