Vissulega miklu meira en tollabandalag Hjörtur J. Guðmundsson skrifar 31. janúar 2026 23:13 Mér er bæði ljúft og skylt að lýsa mig algerlega sammála Páli Rafnar Þorsteinssyni, stjórnarmanni í Evrópuhreyfingunni, um það að Evrópusambandið sé annað og meira en einungis tollabandalag eins og hann benti á í grein á Vísi í morgun. Þó sambandið sé sem fyrr gamaldags tollabandalag í grunninn, og sem slíkt í eðli sínu andstæðan við frjáls milliríkjaviðskipti, er það sannarlega komið miklu lengra á vegferð sinni í áttina að lokamarkmiðinu um að til verði evrópskt sambandsríki. Fram kom í Schuman-ávarpinu árið 1950, sem markaði upphaf samrunaþróunarinnar innan Evrópusambandsins og forvera þess, að fyrsta skrefið væri að kola- og stálframleiðsla Evrópuríkja færi undir eina stjórn en lokaskrefið evrópskt sambandsríki. Hrein leitun hefur verið að forystumönnum innan sambandsins á liðnum árum sem ekki hafa stutt lokamarkmiðið. Samhliða því hefur Evrópusambandið jafnt og þétt öðlast fleiri einkenni ríkis og er sú þróun komin mjög langt á veg. Frá árinu 1947 hafa samtökin European Movement International verið starfrækt og haft það meginmarkmið að til yrði evrópskt sambandsríki. Evrópuhreyfingin, sem Páll Rafnar er sem fyrr segir stjórnarmaður í, er aðili að þeim. Síðasta haust var Guy Verhofstadt, forseti evrópsku samtakanna, heiðursgestur landsþings Viðreisnar, flokks Páls, þar sem hann sagði í ræðu að Evrópusambandið þyrfti að verða að heimsveldi en hann er þekktur stuðningsmaður lokamarkmiðsins. Dagana 24.-25. október sat Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, þing evrópsku regnhlífarsamtsamtakanna ALDE, sem flokkurinn á aðild að, í Brussel. Yfirskrift þingsins var: „Gerum Evrópusambandið að stórveldi á heimsvísu“ (e. Making Europe a global superpower). Kallað var enn fremur eftir því af hálfu þingsins að ríki sambandsins töluðu einum rómi á alþjóðavettvangi. Þá sagði Marie-Agnes Strack-Zimmermann, oddviti samtakanna á þingi þess, að þörf væri á Evrópuher. Fram kom í bréfi sem Valérie Haye, forseti Renew Europe, þingflokks frjálslyndra á þingi Evrópusambandsins sem evrópskir systurflokkar Viðreisnar tilheyra, þar á meðal samtökin ALDE, sendi Ursulu von der Leyen, forsætisráðherra sambandsins, og António Costa, forseta leiðtogaráðs þess, í febrúar á síðasta ári að tímabært væri að sambandið yrði að stórveldi (e. superpower) og kæmi sér enn fremur upp eigin sjálfstæðri hernaðargetu. Fengi sem sagt sinn eigin her. Þá kom fram í stjórnarsáttmála síðustu ríkisstjórnar Þýzkalands, sem mynduð var af systurflokkum Samfylkingarinnar og Viðreisnar auk Græningja, áherzla á áframhaldandi þróun Evrópusambandsins í átt að sambandsríki. Eða eins og það var orðað á þýzku: „zur Weiterentwicklung zu einem föderalen europäischen Bundesstaat führen“. Lyklatriði hér er orðalagið áframhaldandi enda hefur þróunin sem fyrr segir jafnt og þétt verið í átt að sambandsríki á liðnum árum. Vægi ríkja innan Evrópusambandsins fer fyrst og fremst eftir því hversu fjölmenn þau eru sem er í samræmi við þróun þess í átt að einu ríki. Líkt og fjöldi þingmanna hvers ríkis í fulltrúadeild Bandaríkjaþings fer eftir íbúafjölda þeirra eða og fjöldi þingmanna hvers kjördæmis hér á landi miðast við það hversu margir búa í þeim. Innan sambandsins yrði vægi Íslands í ráðherraráði þess þannig allajafna einungis á við 5% af alþingismanni. Þetta yrði „sætið við borðið.“ Höfundur er sagnfræðingur og alþjóðastjórnmálafræðingur (MA í alþjóðasamskiptum með áherzlu á Evrópufræði og öryggis- og varnarmál). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hjörtur J. Guðmundsson Mest lesið Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Hafrannsóknarstofnun á villigötum Gunnlaugur Stefánsson skrifar Skoðun Af hverju talarðu ensku við mig þegar ég tala íslensku? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Þegar smiðirnir sjálfir biðja um að hægja á vélinni Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Viltu vita hvað virkar? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Erlendi ferðamaðurinn - einn besti skattgreiðandi landsins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hvaða lærdóm má draga af ferðavenjukönnun 2025? Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Þversögn íslenskra varna Arnór SIgurjónsson skrifar Skoðun Stjórnarformaður RÚV bregður sér í gervi Ragnars Reykás Guðmundur Halldór Björnsson skrifar Skoðun PISA: Þegar allir þurfa létti, hver heldur þá utan um barnið? Helgi S. Karlsson skrifar Skoðun Hver ver æru hins látna? Theódór Skúli Halldórsson skrifar Skoðun DARVO: Sálfélagslegur glundroði Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun Menntakerfið pólitískur leikvöllur? Anna Kristín Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hvað er til ráða? Davíð Már Sigurðsson skrifar Skoðun Hvað gerir sveitarstjórn Múlaþings nú? Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað þarf að laga á Íslandi – hver ber ábyrgð? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Þegar andstæðingum eru eignuð orð Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Foreldrar, hjálpum börnum að verða lesendur Guðmundur Engilbertsson skrifar Skoðun Minkasynd Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks Rósa Líf Darradóttir skrifar Skoðun Síðan hvenær er ég enginn? Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Af bíómiðum og baðlónum María Rut Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hvað verður minna þegar ríkið tekur meira? Íris Ósk Gísladóttir skrifar Skoðun Hver er okkar Napóleon Bónaparte? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Samfélagsumræðan og nunnan Ingibjörg Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun 0,01% er ekki undanþága frá ábyrgð Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Óréttlæti lífeyriskerfisins gagnvart ungu fólki Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við erum froskar í vatni sem nálgast suðu Isla Sweet,Jóhanna Malen Skúladóttir skrifar Skoðun Sögulegt skref fyrir dýr í Danmörku Linda Karen Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Áður en við greinum barn þurfum við að skilja allt barnið Tara Khoshkhoo skrifar Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Þegar tengsl geta skipt sköpum Steinunn Bergmann,María Björk Ingvadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Samfélagslegt samtal er forsenda inngildingar í skólastarfi Helga Þórey Júlíudóttir,Sædís Ósk Harðardóttir skrifar