„Ég hugsa að þetta sé EM-met“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 30. janúar 2026 19:23 Alfreð fagnar með sínum mönnum í seinni hálfleik eftir enn eitt varða skotið hjá vörninni. EPA/Bo Amstrup DENMARK OUT „Við hefðum klárlega getað unnið stærri sigur“ sagði Alfreð Gíslason eftir að hafa lagt Króatana hans Dags Sigurðssonar að velli í undanúrslitum EM í handbolta.
Leiknum lauk með 31-28 sigri Þýskalands en sigurinn hefði sannarlega getað verið stærri ef Þjóðverjar hefðu haldið einbeitingu með sjö marka forystu en ekki farið að kasta boltanum frá sér. Það skiptir Alfreð þó á endanum ekki öllu máli. „Þegar uppi er staðið, er ég bara stoltur“ sagði Alfreð sem gæti á sunnudaginn unnið sín fyrstu gullverðlaun sem þjálfari Þýskalands. Króatar lentu í miklum vandræðum í seinni hálfleik. Þeim gekk ekkert að brjótast í gegn og þegar þeir skutu fyrir utan var þýska hávörnin mætt til að verja það. Línumanninum Justus Fischer tókst meira að segja, í einni sókninni, að verja boltann þrisvar sinnum. „Ég hugsa að þetta sé EM-met. Þrisvar í sömu sókninni. Það er ótrúleg varnarframmistaða. Þeir stóðu bara fyrir öllu“ sagði Alfreð. „Við vissum frá upphafi að þetta yrði mjög, mjög erfitt mót. Ef við ættum að eiga einhvern séns á að komast í úrslitaleikinn þyrftum við að finna alvöru flæði“ sagði Julian Köster. Þýskaland gerði það svo sannarlega í dag, og hefur í raun gert það síðan liðið missteig sig gegn Serbíu í riðlakeppninni.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Sjá meira