Handbolti

Skýrsla Vals: Vel nýttur veikinda­dagur

Valur Páll Eiríksson skrifar
Það er spurning hversu margir fóru að ráðum Viktors og tóku veikindadag til að vera í Malmö. Það er eflaust fyrirgefið eftir svona upplifun, þó höfundur greinar hafi farið á mis við hana, vegna veikinda.
Það er spurning hversu margir fóru að ráðum Viktors og tóku veikindadag til að vera í Malmö. Það er eflaust fyrirgefið eftir svona upplifun, þó höfundur greinar hafi farið á mis við hana, vegna veikinda. Vísir/Vilhelm

Vá. Þetta var leikur í lagi. Það er eiginlega ótrúlegt að skrifa það en Ísland vann átta marka sigur á Svíum í kvöld. Það á þeirra heimavelli, og spilandi þeirra leik.

Annað sem er vart trúlegt er að ég hafi ekki verið í höllinni. Ég ligg veikur á hótelinu í Malmö og það liggur við að ég grenji í koddann yfir því að hafa misst af þessu.

Það væri eflaust niðurstaðan ef þessir strákar væru ekki svona geggjaðir.

Það er væri áhugavert að vita hversu margir tóku veikindadag í vinnunni fyrir Viktor og mættu hérna út. Talandi fyrir sjálfan mig var þetta sannarlega vel nýttur veikindadagur.

Maður hefur beðið eftir góðri byrjun strákanna í leik á mótinu og það kom loks í dag. Eftir að hafa verið með tvær löglegar stöðvanir fyrsta korterið gegn Króötum voru þær sjö eftir fimmtán mínútur í dag.

Svíar höfðu tapað 13 boltum allt mótið fyrir kvöldið, en þeir voru orðnir 17 talsins eftir tólf mínútur af leiknum.

Það gekk allt upp í þessum leik. Ef einhver gaf eftir, meiddist eða fékk tvær mínútur stigu aðrir upp. Með betri vörn og vítanýtingu hefðum við unnið Króata og fengum sannarlega bæði í kvöld.

Elliði og Ýmir með 20 stöðvanir samanlagt. Janus með átta í bakverðinum og svo var heljarinnar hundur í Hauki eftir höfuðhöggið – ekki skemmdi þegar hann lét Lagergren heyra það.

Viggó á vítalínunni sá svalasti í höllinni í kvöld en Gísli, Bjarki Már og hinir ekki undanteknir. Ómar Ingi spilaði þá sínar bestu mínútur á mótinu eftir að Viggó meiddist.

Maður fékk kunnuglegan hroll þegar Svíarnir minnkuðu muninn í eitt mark á mettíma. Maður velti fyrir sér hvort ekki hefði átt að hægja á, slaka, halda forystunni. Hvort það myndi koma í bakið á mönnum – að Ísland ætlaði að kasta þessu frá sér.

Þá kom upp spurningin: Eru þetta menn eða mýs?

Svarið: Þetta eru menn. Magnaðir menn.

Við héldum bara okkar plani. Keyrðum hraðann upp, héldum áfram að hamra járnið og unnum sveitta Svía í þeirra leik, á þeirra heimavelli.

Það var dúndrað í dvalarheimilinu í Malmö og sænskir helgarpabbar fóru úr höllinni áður en leikurinn kláraðist. Íslendingar sem töldu á við um einn fjórða af fjölda Svía tóku yfir stúkuna, líkt og strákarnir tóku yfir á vellinum.

Strákarnir eru komnir aftur í lykilstöðu hvað undanúrslit varðar en þá taka við tveir úrslitaleikir.

Sviss á þriðjudag og Slóvenía á miðvikudag. Ef Ísland spilar svona er ekki að spyrja að niðurstöðunni þar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×