Frjálshyggja með fyrirvara Finnur Th. Eiríksson skrifar 24. janúar 2026 16:01 Undanfarna áratugi hafa helstu stefnumál vinstri vængsins verið mótuð af hugmyndafræði sem er oft kölluð sjálfsmyndarpólitík. Fyrir rúmum áratug, þegar ég var enn sósíalisti, var ég ekki undanskilinn frá áhrifum þessarar hugmyndafræði. En ég varð fljótlega meðvitaður um að hún hafði afvegaleitt sósíalista frá verkalýðsbaráttunni sem hafði áður verið helsta baráttumál þeirra. Eftir að ég yfirgaf sósíalismann færðist ég smám saman í áttina að efnahagslegri frjálshyggju. Í auknum mæli gerði ég mér grein fyrir að sjálfsmyndarpólitíkin hafði stuðlað að sundrun meðal sósíalista frekar en sameiningu. Frelsið til að hafna slíkum hugmyndum er eitt af því sem frjálshyggjan hefur fram yfir nútímasósíalisma. En það er ekki þar með sagt að ég hafi samþykkt öll sjónarmið frjálshyggjunnar. Frjálshyggja sem gengur skrefi of langt Árið 1992 gekk Ísland í Evrópska efnahagssvæðið (EES), viðskiptabandalag sem byggir á forsendum efnahagslegrar frjálshyggju. Raunar gengur frjálshyggja EES svo langt að ég á erfitt með að fella mig við bandalagið í sinni núverandi mynd. Grunnstoð EES er hið svokallaða fjórfrelsi: Frjálst flæði fjármagns, varnings, þjónustu (til dæmis útibú erlendra fyrirtækja) og vinnuafls. Ég geri engar athugasemdir við fyrstu þrjú atriðin eins og þau eru skilgreind af EES. En fjórða atriðið gengur skrefi of langt. Það liggur í augum uppi að möguleikar lítils eyríkis til að vakta eigin landamæri eru mun meiri en ríkja á meginlandi Evrópu. En geta Íslands til að vakta fólksflutninga var skert með inngöngunni í EES og enn frekar með inngöngunni í Schengen-samstarfið. Síðan þá hafa íslensk yfirvöld ekki haft fullnægjandi stjórn yfir landamærum Íslands. Engu að síður væri hvorki raunhæft né gagnlegt að loka dyrunum algjörlega fyrir innflytjendum. Þeir sem hafa flutt til Íslands til að vinna sérfræðistörf eða stunda eigin rekstur, auk ferðamanna sem dvelja hér tímabundið, hafa að jafnaði auðgað samfélagið. En á skömmum tíma hefur fjöldi þeirra sem hefur flutt hingað frá efnaminni löndum margfaldast. Er rétt ályktað að þessi skyndilega aukning hafi haft neikvæð áhrif á samfélagið? Ég gæti lagt fram ýmis ólík rök fyrir því að sú sé raunin, en í þetta sinn ætla ég að styðjast við sjónarhorn sem kemur, merkilegt nokk, frá vinstri væng stjórnmálanna. Þáttur atvinnurekenda Eftirfarandi fullyrðing gæti komið lesendum á óvart: Krafan um frjálst flæði vinnuafls er fyrst og fremst runnin undan rifjum atvinnurekenda, ekki vinstrisinna. Hvað á ég við með því? Svarið er einfalt. Atvinnurekendur (að minnsta kosti í ákveðnum starfsgreinum) bjóða eins lág laun fyrir hvert stöðugildi og þeir komast upp með. Þetta á sérstaklega við um láglaunastörf þar sem ekki er gerð krafa um menntun. Sá sem sættir sig við lág laun fær starfið. Innflytjendur frá efnaminni ríkjum sætta sig við lág laun vegna þess að þeir þekkja ekki réttindi launþega á Íslandi og auk þess eru þeir vanir lágum launum í heimalandinu. Atvinnurekendur í ákveðnum starfsgreinum hafa því fjárhagslegan ávinning af því að hér dvelji fjöldi innflytjenda frá fátækum ríkjum. Ég endurtek, það eru atvinnurekendur sem hafa mestan hag af ótakmörkuðum aðgangi innflytjenda að Íslandi, ekki vinstrisinnar. Þótt vinstrisinnar hafi undanfarin ár barist fyrir opnum landamærum liggja ekki fjárhagslegir hagsmunir þar að baki. Þeir hafa fórnað hagsmunum verkalýðsins fyrir nýja, innflutta hugmyndafræði: Sjálfsmyndarpólitíkina. Það hlýtur að vera hátindur kaldhæðninnar að vinstrið hafi í rauninni barist fyrir hagsmunum atvinnurekenda í þessu máli en ekki fyrir eigin hagsmunum. Íslendingar undirboðnir Stundum láta áðurnefndir atvinnurekendur í veðri vaka að það sé ógjörningur að fá Íslendinga til að vinna ákveðin störf (til dæmis ræstingar og aðhlynningu) og því þurfi stöðugt að auka fjölda vinnuafls frá efnaminni löndum. En þessi rök sneiða fram hjá mikilvægu atriði: Íslendingar unnu umrædd störf áratugum saman! Það var ekki fyrr en á tíunda áratugnum þegar hingað tók að streyma erlent vinnuafl sem Íslendingar hröktust frá þessum starfsgreinum. Í stuttu máli voru Íslendingarnir undirboðnir af innflytjendum sem höfðu ekki hugmynd um virði vinnu sinnar. Íslendingar hafna þessum störfum í dag eingöngu vegna þess hversu illa launuð þau eru. Vandi stéttarfélaga Samningsstaða stéttarfélaganna byggir að miklu leyti á því að verkalýðurinn skilji rétt sinn og hafi tilfinningu fyrir því hvað teljist sanngjörn laun. Ef atvinnurekendur hafa óheftan aðgang að vinnuafli sem sættir sig við lág laun og þekkir ekki rétt sinn versnar samningsstaða stéttarfélaganna. Það er ekki við innflytjendur að sakast að þeir hafi verið sviknir um laun en það breytir því ekki að því meiri sem fjöldi þeirra er, því verri er samningsstaða stéttarfélaganna. Þótt ég hafi af og til gagnrýnt stéttarfélögin hef ég enn samúð með grundvallarhlutverki þeirra. Það veldur mér því hugarangri að forysta þeirra sitji þegjandi hljóði um regluverk EES sem vinnur gegn baráttu þeirra. Ástæður til að hafa áhyggjur Að sjálfsögðu hefur ótakmarkaður flutningur vinnuafls milli ríkja einhverjar samfélagslegar afleiðingar. Ég hef persónulega áhyggjur af miklu álagi á innviði Íslands (til dæmis heilbrigðiskerfi, skóla og gatnakerfi) og langtímaáhrifum á íslenska menningu, sérstaklega á íslenska tungu. En vinstrisinnar hafa einnig gildar ástæður til að hafa áhyggjur. Bilið á milli hinna ríku og fátæku á Íslandi mun halda áfram að aukast með fjölgun fólks frá efnaminni löndum. Samningsstaða stéttarfélaganna mun óhjákvæmilega verða veikari. Reglur EES, byggðar á efnahagslegri frjálshyggju, munu halda áfram að teygja sig inn á svið íslenska löggjafarvaldsins. Þegar allir þræðir eru dregnir saman er í raun mesta furða að vinstrimenn sem heild sitji þegjandi hljóði um þessar staðreyndir. Lokaorð Þrátt fyrir þennan fyrirvara er ég eftir sem áður frjálshyggjumaður. Frjálst flæði fjármagns, varnings og þjónustu mun halda áfram að auðga íslenskt samfélag. Það er einungis fjórða frelsið, frjálst flæði vinnuafls, sem gengur of langt. Hagvöxtur er til lítils ef samfélag fær ekki að stækka og breytast á eigin forsendum og eigin hraða. Hvort sem það er frá vinstrisinnuðum eða hægrisinnuðum sjónarhóli, þá eru sterk rök fyrir því að of hátt hlutfall innflytjenda sé samfélaginu ekki til góða. Mögulega eykur ótakmarkað flæði vinnuafls hagvöxt að einhverju leyti, en íslenskt samfélag er annað og meira en töludálkar í bókhaldi. Það þarf að taka tillit til menningarlegra þátta og innviða sem lúta öðrum lögmálum en hagkerfið. Áframhaldandi þátttaka Íslands í EES ætti að vera háð því að Ísland fái undanþágu frá kröfunni um frjálst flæði vinnuafls. Vitanlega, ef sú undanþága fengist, þyrftu atvinnurekendur að bíta í það súra epli að hafa minni aðgang að ódýru, innfluttu vinnuafli. En hagsmunir samfélagsins þurfa að ganga fyrir. Ísland hlýtur að hafa rétt á að forgangsraða þeim og setja ákveðin mörk þegar kemur að samningum við erlend ríkjasambönd. Höfundur er fyrrverandi sósíalisti og núverandi frjálshyggjumaður (með fyrirvara). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Finnur Thorlacius Eiríksson Mest lesið Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Eru hjúkrunarheimili biðsalur eða heimili? Ragnhildur Þórarinsdóttir skrifar Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Sjá meira
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun