Þarf að beisla Einar aðeins en líst vel á samstarfið Ágúst Orri Arnarson skrifar 21. janúar 2026 15:30 Elliði Snær Viðarsson var í stærra varnarhlutverki í gær en hann gerði ráð fyrir. sýn skjáskot Elliði Snær Viðarsson og Einar Þorsteinn Ólafsson voru óvænt í mjög stóru varnarhlutverki í leik Íslands gegn Ungverjalandi á EM í handbolta í gærkvöldi. Elliði lýsir Einari sem frekar villtum leikmanni, sem tekur mikið pláss, en líst ljómandi vel á samstarfið.
Létt var yfir landsliðsmönnum í morgun eftir að hafa loksins lagt Ungverjana að velli, en íslenska liðið varð líka fyrir miklu áfalli. Elvar Örn Jónsson braut bein í handarbaki og hefur lokið leik á mótinu. „Þetta er mikið sjokk bara“ sagði Elliði Snær Viðarsson í viðtali við Henry Birgi Gunnarsson í morgun. „Elvar hefur verið burðarás í vörninni og sókninni hjá okkur. Klárlega einn af okkar mikilvægustu mönnum, þannig að það er mikið sjokk og auðvitað bara leiðinlegast fyrir hann að vera dottinn út úr mótinu. Þetta þykir okkur öllum mjög leiðinlegt.“ Alls ekki planið fyrir fram Þegar Elvar þurfti að fara af velli vegna meiðslanna kom Einar Þorsteinn Ólafsson inn í hans stað. Ýmir Örn Gíslason fékk síðan rautt spjald skömmu síðar og þá tók Elliði hans hlutverk í vörninni að sér. Elliði og Einar mynduðu því, mjög öflugt, varnartvíeyki fyrir íslenska liðið í seinni hálfleik. „Við höfum náttúrulega tekið einhverjar æfingar saman en það var ekki beint leikplanið fyrir fram að ég og Einar myndum standa þarna í vörninni, en það var kannski bara fínt að fá þetta svona án þess að undirbúa sig. Það tók smá tíma fyrir Einar að komast í takt við leikinn en eftir það var hann gjörsamlega frábær.“ Munu standa vörnina í milliriðlinum Fjórir leikir í milliriðlinum í Malmö eru nú fram undan og væntanlega munu íslenskir áhorfendur fá að sjá meira af þeirra samvinnu á mótinu. Elliða líst vel á samstarfið. „Mjög gott [að spila með honum]. Hann er villtur, maður þarf að reyna að beisla hann svolítið, en hann tekur líka mikið pláss. Maður þarf svolítið að læra inn á hann en hann tekur rosa mikið pláss og það gerir lífið léttara fyrir mig í staðinn… Fyrst Elvar er dottinn út þurfum við að fá Einar og Arnar [Frey Arnarsson] meira inn í vörnina. Við þurfum að vera fljótir að finna hvað virkar og aðrir þurfa að stíga upp í staðinn.“ Klippa: Elliði um óvænta samstarfið með Einari Þorsteini Nánar verður rætt við hinn handarbrotna Elvar Örn Jónsson í Sportpakka Sýnar í kvöld en viðtalið við Elliða Snæ má sjá í spilaranum að ofan. Næsti leikur Íslands verður gegn Svíþjóð eða Króatíu á föstudaginn kemur.
Landslið karla í handbolta EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Nýr leikmaður Arsenal á skotskónum í sínum fyrsta leik Fótbolti Markmaður Noregs forðast að fara í búðina eftir heimsmeistaramótið Fótbolti „Ég mun að minnsta kosti sofa vel í nótt“ Fótbolti Er með þriggja högga forskot fyrir lokahringinn á Opna breska Golf Fimmtán ára ungstirni spilaði sínar fyrstu mínútur fyrir Manchester United Fótbolti Real Madrid missti niður tveggja marka forskot gegn Alberti og félögum Fótbolti „Ég er rasisti og ég gerði þetta viljandi“ Sport „Þetta er mikið áfall fyrir okkur“ Íslenski boltinn Segir Richarlison vera tvístigandi hvort hann vilji vera áfram Fótbolti „Versta ákvörðun sem ég hef tekið að styðja Tottenham“ Enski boltinn Fleiri fréttir Strákarnir áfram með fullt hús Ungverjagrýlan hrjáir ekki U18 lið Íslands Yngsti Skipagötu-bróðirinn skoraði þrettán mörk í fyrsta leik á EM Fjórtán marka stórsigur í fyrsta leik Var sagt upp á stórafmælinu og er haldinn út í heim Besti handboltamaður heims fór í markið Hafnaði mörgum góðum tilboðum og fór frekar heim „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Unnu síðustu tvo leikina með samtals 25 marka mun Önnum kafinn Arnór óskar Benedikt góðs bata Ungu strákarnir okkar rúlluðu yfir Ísrael Ljóst hvaða lið bíða Vals og FH í breyttri Evrópudeild Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Landsliðsfólk trúlofar sig: „Ekki flókið já“ Spila um þrettánda sæti eftir tap gegn Noregi Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Sjá meira