Holur hljómur í gagnrýni Dana á Guðmund eftir ákvörðun dagsins Aron Guðmundsson skrifar 21. janúar 2026 11:46 Nicolaj Jacobsen, núverandi landsliðsþjálfari Danmerkur hefur ákveðið að aflýsa æfingu liðsins í dag fyrir mikilvægan leik gegn Frökkum í milliriðli á EM á morgun. Vísir/Samsett Eftir að hafa gagnrýnt áherslu Guðmundar Guðmundssonar, fyrrverandi landsliðsþjálfara Danmerkur, á vídjófundi og sagt um menningarmun á aðferðum hafi verið að ræða, hafa Danir í dag hætt við æfingu fyrir mikilvægan leik á EM gegn Frökkum á morgun til þess að horfa á fleiri upptökur af leikjum sínum og Frakka.
Nicolaj Jacobsen, landsliðsþjálfari danska landsliðsins greindi frá því í samtali við TV 2 að liðið myndi ekki æfa í dag, degi eftir þungt tap gegn Portúgal sem sér til þess að Danir fara áfram án stiga í milliriðla mótsins. Ástæðan sé sú að danska landsliðið þurfi að rýna betur í upptökur frá tapleik gærkvöldsins sem og leiki ríkjandi Evrópumeistara Frakka sem Danir mæta í fyrstu umferð milliriðils eitt á morgun. Hjákátlegt mjög ef tekið er mið af umræðum í heimildarmynd sem var framleidd af EHF og innihélt margar af stjörnum danska landsliðsins, núverandi og fyrrverandi, leikmenn og þjálfara þar sem farið var yfir uppgang og sigursæla tíma liðsins. Aðferðir Guðmundar Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsþjálfara danska landsliðsins, sem stýrði liðinu til sigurs á Ólympíuleikunum í Ríó árið 2016 voru þar gagnrýndar. Þar á meðal áhersla hans á að fara yfir málin á vídjófundum með leikmönnum sínum. Í heimildarmyndinni, sem Guðmundi var ekki boðið að taka þátt í og hann lýsti furðu sinni á í viðtali við TV 2, sagði Ulrik Wilbek, fyrrverandi íþróttastjóri danska sambandsins, að hann hafi ekki fyrirséð þann menningarmun sem var á hugmyndafræði Guðmundar og þeirri sem hafði verið við lýði hjá danska landsliðinu áður tengt vídjófundum. Menningarmunurinn virðist ekki meiri en svo að Danir eru farnir að sleppa æfingum fyrir vídjófundi.
EM karla í handbolta 2026 Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slys í lýsendaboxinu: „Höndin er brotin“ Sport Sextán ára stjarna Vals heillar Körfubolti Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Tennispar skilur vegna áhrifa stríðsins Sport Fyrrum leikmaður Stjörnunnar tekst á við atvinnuleysi Fótbolti Agabrot hafa ekki áhrif á næsta landsliðsval Arnars Fótbolti „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Körfubolti Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Níu mörk Jóhannesar ekki nóg Finnur til með Arnari Sætur sigur Selfoss og Gunnar með fullkominn leik KA-menn brotlentu í Garðabæ Tólf marka Dagur kom ÍBV á rétta braut „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Sjá meira