Hljóp á sig Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 19. janúar 2026 18:58 Líf Magneudóttir sækist eftir fyrsta sæti á lista Vinstri grænna í Reykjavík. Vísir/Anton Brink Líf Magneudóttir segist hafa hlaupið á sig þegar hún hélt því fram að ekki hafi verið samþykkt á félagsfundi Vinstri grænna að Vor til vinstri myndi leiða sameiginlegt framboð. Hún styðji tillöguna og áformin en ætlar að bjóða sig fram í fyrsta sæti í forvali VG.
Vinstri hreyfing - grænt framboð í Reykjavík tilkynnti í gær að hreyfingin hyggist mynda bandalag við Vor til vinstri og bjóða fram í sameiginlegu framboði í komandi borgarstjórnarkosningum. Sanna Magdalena Mörtudóttir úr Vori til vinstri mun leiða framboðið og fulltrúar Vors til vinstri skipa einnig fjórða og fimmta sæti. Líf Magneudóttir oddviti VG í borginni sagði hins vegar í gær að tillagan sem var samþykkt hafi ekki gengið út á það að Vor til vinstri fengi fyrsta sætið. Stjórnarkona í Vinstri grænum í Reykjavík svaraði því í fréttum Bylgjunnar að það hefði hins vegar verið alveg skýrt. Í samtali við fréttastofu segir Líf að viðbrögð sín hefðu mátt vera önnur. „Þetta var auðvitað svolítið óheppilegt og ég skal bara taka það á mig í sannleika sagt. Ég var ekki búin að sjá það sem stjórn Vinstri grænna sendi frá sér,“ segir hún. „Ég skal bara taka það á mig að ég hefði mátt vanda mig betur og vera minni pappakassi. Fara minna í formið. Én ég held að þetta sé búið. Ég er búin að koma því á framfæri að ég styð þetta hundrað prósent og hef mikla trú á sameiningu félagshyggjufólks. Við getum kannski í framhaldinu hætt að rífast um keisarans skegg og formið.“ Styður Sönnu Líf segist styðja Sönnu Magdalenu í oddvitasætið. Finnur Ricart Andrason hefur þegar tilkynnt að hann hyggist bjóða sig fram sig í oddvitasæti Vinstri grænna í forvali þeirra. Líf ætlar einnig að bjóða sig fram í fyrsta sætið. „Það hef ég alltaf sagt og við það stend ég.“ Í framhaldinu verði svo ákveðið hvernig verður raðað á nýja listann. Líf segir verið að kanna hvort breyta eigi um nafn sameiginlegs framboðs. Sú vinna sé í gangi. Sanna Magdalena hjá Vori til vinstri segist ekki hafa gert kröfu um oddvitasætið. „Ég geri ekki neina kröfu um slíkt en ég sé að það er skýrt ákall um það og þakka kærlega fyrir það traust,“ segir hún. „Mér finnst auðvitað frábært að við vinstri hreyfingarnar séum tilbúnar að vinna saman og það þarf að leggja áherslu á það að við erum í þjónustuhlutverki við borgarbúa.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Vinstri græn Borgarstjórn Vor til vinstri Reykjavík Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Sjá meira