Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 16. janúar 2026 18:45 Daniel Mortensen og félagar eru á toppi Bónus-deildarinnar. vísir/Diego Grindavík sigraði Álftanes 83-78 í 14. umferð Bónus deildarinnar í kvöld. Allt var í járnum en Grindvíkingum tókst að sigla sigrinum heim á lokamínútum leiksins. Grindvíkingar byrjuðu leikinn af krafti á meðan það gekk illa fyrir Álftnesinga að koma boltanum ofan í körfuna. Álftnesingar voru hins vegar aldrei langt undan og var mikil barátta í liðinu. 24-19 var staðan eftir fyrsta leikhlutann. Það gekk afar vel hjá Grindvíkingum í öðrum leikhluta og komst liðið í 15 stiga forystu þegar leið á. Álftnesingar gáfust þó ekki upp og náðu á loka mínútu leikhlutans að komast þremur stigum yfir. Grindvíkingar nýttu þó síðustu sekúndurnar og jöfnuðu metin, 43-43 og þannig héldu liðin inn í klefa í hálfleik. Það var allt í járnum í þriðja og fjórða leikhluta og sigurinn hefði getað dottið hvoru megin. Þegar leið á fjórða leikhlutann náðu Grindvíkingar 5 stiga forystu og þá var brekka fyrir Álftanes að koma til baka. Mistök í sókn og vörn leiddu því til þess að Álftnesingar komust ekki nær sigrinum. Frábær sigur hjá Grindvíkingum sem auka forystu sína á toppi deildarinnar. Atvik leiksins Það var ekkert sérstakt atvik að mínu mati en Jordan Semple átti frábæran seinni hálfleik sem hjálpaði heimamönnum gífurlega í að sækja sigurinn. Stjörnur og skúrkar Khalil Shabazz var öflugur fyrir Grindavík með 23 stig, 5 frákást og 5 stoðsendingar. Ólafur Óla var svo næstur með 16 stig og 14 fráköst. Ade Murphy var stigahæstur hjá Álftnesingum með 22 stig, 13 fráköst og 2 stoðsendingar. David Okeke kom þar næstur með 17 stig og 10 fráköst. Stemning og umgjörð Það var góð mæting fyrir þá sem gerðu sér ferð í HS Orku-höllina í Grindavík. Það var mikil orka og stemning í stúkunni og stuðningsmenn létu vel í sér heyra. Dómarar Bjarki Þór Davíðsson, Sigmundur Már Herbertsson og Bergur Daði Ágústsson stóðu vaktina á parketinu í kvöld og stóðu sig með prýði. Bónus-deild karla UMF Grindavík UMF Álftanes
Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Körfubolti
Uppgjörið: Grindavík - Álftanes 83-78 | Sigurganga toppliðsins heldur áfram eftir mikla spennu Körfubolti