Viðsnúningur og Helgi Bjartur færður bak við lás og slá Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 14. janúar 2026 22:56 Karl Ingi Vilbergsson starfandi varahéraðssaksóknari sækir málið fyrir hönd ákæruvaldsins. Hann ákvað að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum daginn eftir að það rataði á borð embættisins til ákærumeðferðar. Vísir/Vilhelm Karlmaður á fimmtugsaldri sem grunaður er um kynferðisbrot gegn tíu ára dreng á heimili þess síðarnefnda í Hafnarfirði hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. Landsréttur sneri við úrskurði Héraðsdóms Reykjaness sem hafði áður hafnað kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald.
Málið hefur vakið mikla athygli og óhug síðan það kom upp í september síðastliðnum. Manninum, Helga Bjarti Þorvarðarsyni, er gefið að sök að hafa farið að næturlagi inn á heimili drengsins þar sem hann svaf ásamt bróður sínum og foreldrum. Hann var handtekinn og úrskurðaður í þriggja daga gæsluvarðhald í september en síðan sleppt. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu taldi ekki ástæðu til að fara fram á gæsluvarðhald yfir manninum þrátt fyrir að hann væri grunaður um alvarlegt kynferðisbrot. Foreldrar drengsins og fleiri undruðust mjög þá niðurstöðu. Það var svo í síðustu viku sem lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lauk rannsókn sinni á málinu og skilaði niðurstöðunni til héraðssaksóknara. Á innan við sólarhring hafði héraðssaksóknari gefið út ákæru og upplýst að krafist yrði gæsluvarðhalds yfir Helga Bjarti. Héraðsdómur Reykjaness hafnaði kröfunni á föstudagskvöld. Karl Ingi Vilbergsson varahéraðssaksóknari ákvað á mánudag að kæra þá niðurstöðu til Landsréttar. Það var svo um tíuleytið í kvöld sem Landsréttur komst að þeirri niðurstöðu að fallast á kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald. Foreldrar drengsins segjast fyrst og fremst upplifa gríðarlegan sorgarblandinn létti við tíðindin. Foreldrarnir voru hræddir við að fara út úr húsi við ótta að rekast á manninn. Hann býr í Hafnarfirði í um tíu mínútna göngufjarlægð frá þeim.vísir/Vilhelm „Og þakklæti til ákæruvaldsins fyrir að standa með litla drengnum okkar. Það er gott að upplifa að á okkur sé hlustað og að óttinn sem við höfum búið við sé tekinn alvarlega. Við hlökkum til að eiga værari nætursvefn og geta notið þess að fara út úr húsi með barninu okkar. Fyrsta mál á dagskrá er sundferð,“ segja foreldrarnir sem hafa upplifað sig í fangelsi síðan málið kom upp. Helgi Bjartur steig fram í yfirlýsingu til fjölmiðla á mánudag. Hann hafnar því að hafa brotið á drengnum, sagt málið martröð sem hann muni bera alla ævi og ber fyrir sig minnisleysi um nóttina. Meðal sönnunargagna lögreglu í málinu er DNA-sýni hans sem fannst innan á buxnastreng á náttfötum drengsins.
Grunaður um kynferðisbrot gegn barni í Hafnarfirði Hafnarfjörður Lögreglumál Tengdar fréttir „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Helgi Bjartur Þorvarðarson, maðurinn sem ákærður er fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, segist ekki sekur um þau brot sem hann er sakaður um. Hann segist hafa fallið á bindindi sínu umrætt kvöld, verið í „blackout-ástandi“ en að hann hafi það ekki í sér að vera fær um að gera það sem hann er sakaður um. 12. janúar 2026 08:41 Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Foreldrar tíu ára drengs í Hafnarfirði urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar héraðsdómur hafnaði kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem hefur verið ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á drengnum. Þau upplifa sig í fangelsi á heimili sínu meðan maðurinn gangi laus. Þá telja þau minni hans afar valkvætt varðandi hvað gerðist örlagaríka nótt í september. Heimsókn til vændiskonu sé í fersku minni en innbrot á heimili þeirra með öllu gleymt. 11. janúar 2026 14:45 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira
„Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Helgi Bjartur Þorvarðarson, maðurinn sem ákærður er fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng í Hafnarfirði um miðjan september síðastliðinn, segist ekki sekur um þau brot sem hann er sakaður um. Hann segist hafa fallið á bindindi sínu umrætt kvöld, verið í „blackout-ástandi“ en að hann hafi það ekki í sér að vera fær um að gera það sem hann er sakaður um. 12. janúar 2026 08:41
Útkoman mikill skellur eftir að vonarneisti kviknaði Foreldrar tíu ára drengs í Hafnarfirði urðu fyrir miklum vonbrigðum þegar héraðsdómur hafnaði kröfu héraðssaksóknara um gæsluvarðhald yfir karlmanni sem hefur verið ákærður fyrir að brjóta kynferðislega á drengnum. Þau upplifa sig í fangelsi á heimili sínu meðan maðurinn gangi laus. Þá telja þau minni hans afar valkvætt varðandi hvað gerðist örlagaríka nótt í september. Heimsókn til vændiskonu sé í fersku minni en innbrot á heimili þeirra með öllu gleymt. 11. janúar 2026 14:45