Eldur og Amaroq í sviðsljósi erlendra fjölmiðla Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 8. janúar 2026 14:27 Eldur Ólafsson er stofnandi og forstjóri málmleitarfélagsins Amaroq minerals, sem vinnur að gullgreftri í Grænlandi. Eldur Ólafsson, framkvæmdastjóri Amaroq, er áberandi í stórum erlendum fjölmiðlum í dag, en hann hefur meðal annars verið á skjánum í sjónvarpsviðtölum hjá Bloomberg og CNBC. Hann segir að umræðan um Grænland hafi haft jákvæð áhrif á fyrirtækið en segja má að ákveðin stigmögnun hafi orðið í umræðunni um vilja Trump-stjórnarinnar um að eignast Grænland í vikunni. Amaroq er stærsta námufyrirtækið með starfsemi á Grænlandi þar sem það grefur bæði eftir gulli og öðrum fágætum málmum, sem stundum eru kallaðir þjóðaröryggismálmar.
Samkvæmt upplýsingum frá Amaroq hefur fyrirtækið í þessari viku fundið fyrir töluverðum áhuga og hefur fengið fyrirspurnir frá „flestum stóru fréttamiðlunum í hinum vestræna heimi,“ eins og það er orðað í svari til Vísis. Í viðtali við Bloomberg í dag var Eldur spurður hvort hann líti á Trump Bandaríkjaforseta sem vin eða fjandmann, og hvort hann eigi von á að staðan eigi eftir að taka dramatískum breytingum. Í svari sínu rifjaði Eldur upp að það séu allnokkur ár síðan Trump hafi fyrst viðrað áhuga sinn á Grænlandi. Sér stór tækifæri í stöðunni fyrir Grænland „Hann kom Grænlandi á kortið. Fólk sá að það eru auðlindir þarna, þetta er gott landsvæði og þetta er norrænt land,“ sagði Eldur. Umræðan hafi róast eftir að síðara kjörtímabili Trumps lauk, en nú sé hann að endurtaka leikinn. Eldur sér fram á að Amaroq verði stærsti skattgreiðandi á Grænlandi strax á næsta ári. Þá er gullfundur síðastliðið sumar talinn einn sá stærsti í heiminum undanfarinn áratug. „Ég held að hann vilji engan tíma missa til að gera eitthvað þarna og ég held að heilt yfir sé það gott vegna þess að Grænland þarf á fjárfestingu að halda. Og við sem fyrirtæki erum með danska fjárfesta og bandaríska fjárfesta,“ sagði Eldur. Opnað hafi verið á fjárfestingar fyrir þessa aðila í maí í fyrra og það hafi verið árangursríkt. Aðspurður svaraði hann því játandi að umræðan um Grænland hafi haft jákvæð áhrif á fyrirtækið. „Það er mjög mikilvægt að bæði Norðurlönd og Bandaríkin vinni saman, með Grænlandi. En á endanum eru það Grænlendingar sem taka ákvörðun, við erum grænlenskt fyrirtæki og við vinnum fyrir þeirra hagsmuni, en við þurfum á því að halda að hagsmunir beggja haldist í hendur til að láta hlutina ganga,“ sagði Eldur. Ísland mikilvægur liður í starfseminni Í viðtalinu útskýrði Eldur einnig og undirstrikaði hvers vegna það er fyrirtækinu mikilvægt að vera með skrifstofur á Íslandi og hvernig það styður við rekstur og fjölbreyttar aðfangakeðjur fyrirtækisins að vera vel tengd við Ísland. Eftir að hafa rakið það jákvæða sem Eldur sér við umræðuna var hann einnig spurður hvort hann sæi eitthvað neikvætt við það með hvaða hætti orðræða Trump um Grænland hefur verið og viðbrögðin við henni. Skilja mætti af svari Elds að hann hafi litla trú á því að ráðist verði á Grænland. Hann skilji þó mjög vel að fólk sé ekki sátt við orðræðuna gagnvart Grænlandi, hann og Íslendingar styðji fyllilega við Grænland og þeirra rétt til að ákvarða framtíð sína sjálfir. Hann eigi sjálfur ættingja á Grænlandi en það séu hans skilaboð til Grænlendinga að þeir séu nú í kjörstöðu til að taka ákvörðun um framtíð sína og byggja upp efnahaginn. Nú sé tækifæri til að efla efnahagslegt sjálfstæði Grænlands og þétt samstarf bæði með Norðurlöndum og Bandaríkjunum geti stuðlað að því. Í viðtali við CNBC talar Eldur á svipuðum nótum, og ítrekar tækifærin sem hann segir blasa við á Grænlandi. Fréttin hefur verið uppfærð.
Námuvinnsla Amaroq Minerals Fjölmiðlar Grænland Bandaríkin Hótanir Bandaríkjanna vegna Grænlands Mest lesið Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Viðskipti erlent Fólk dregið í dilka í umræðum launa- og kjaramála Atvinnulíf Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Viðskipti innlent Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Viðskipti innlent Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Viðskipti innlent Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Viðskipti innlent „Það þarf að fagna því að vera Framúrskarandi fyrirtæki“ Framúrskarandi fyrirtæki Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Viðskipti innlent Yfir þúsund hafa fært flug vegna yfirvofandi verkfalls Viðskipti Ekkert blabla: Íslenska vinnumarkaðsmódelið deyjandi Atvinnulíf Fleiri fréttir Tengir stórframkvæmdir við framtíð lýðræðisins Endurtakk-bræður opna verslun í Hlemmur.haus Wolt svarar fyrir tekjur sendlanna Starfsleyfi Samherja til fiskþurrkunar að Laugum fellt úr gildi Ekki lengur hægt að fá popp og kók í Smárabíói Einar Þór nýr framkvæmdastjóri Reykjafells Spá aukinni verðbólgu: Eldsneyti hækkar um 17 prósent Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Ekki nægilegt traust á fasteignamarkaði Fasteignamarkaðurinn kólnar enn Wolt sendlar lögðu niður störf Bein útsending: Atvinnu- og framkvæmdaþing Reykjanesbæjar Gagnrýna tal um meðallaun upp á 1,4 milljónir Frá Wise til VÍS Danir lærðu sína lexíu en Íslendingar rífist enn Ósanngjarnt að lítil ferðaþjónustufyrirtæki beri tjón af verkföllum flugstétta Íhlutun vegna kaupa Ása á Öryggismiðstöð og Opnum kerfum nauðsynleg Ekkert verður af kaupum Heklu á Bílson Byggja eitt stærsta gagnaver Íslands á Bakka Tveir nýir sérfræðingar til Jónsbókar Tæplega 50 milljarða halli hins opinbera á öðrum fjórðungi Útlitið ekki allt of gott í kjaradeilu flugvirkja Enn hnútur hjá flugmönnum Icelandair Telur yfir milljarð á dag í húfi Einn tíundi fékkst upp í hundruð milljóna króna gjaldþrot veitingamanns Gengið aldrei verið lægra Hafa samband við farþega Flugvirkjar fara í verkfall Hart tekist á um fjárlögin: „Hvað er að þessu liði?“ Rjúfa þurfi vítahringinn með breyttu vinnumarkaðslíkani Sjá meira