Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Hólmfríður Gísladóttir skrifar 18. desember 2025 06:52 Tæplega 1.100 kaupsamningar voru undirritaðir í október en veltan nam 83,4 milljónum króna. Vísir/Vilhelm Fasteignamarkaðurinn er enn kaupendamarkaður, samkvæmt svörum fasteignasala við könnun Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar. Þeim fækkaði hins vegar úr 91 prósent í 79 prósent milli nóvember og desember sem töldu virkni markaðarins frekar litla eða mjög litla.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri mánaðarskýrslu HMS fyrir desember. Þar segir einnig að tveir af hverjum þremur fasteignasölum hafi sagt að það kæmu að meðaltali þrír eða færri að skoða hverja eign í fyrstu viku á sölu. Fleiri mættu á opin hús í desember en þó virtist áhuginn minni en í byrjun október. Á höfuðborgarsvæðinu er dýrast að leigja í Garðabæ, þar sem markaðsleiga nemur 306 þúsund krónum á mánuði að meðaltali. Leigan er lægst í Reykjavík en þar eru leiguíbúðir smærri að jafnaði. Utan landsbyggðarinnar er markaðsleiga hæst í Árborg, eða um 250 þúsund krónur. Íbúðalánakjör banka og flestra lífeyrissjóða hafa batnað eftir að Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,25 prósent þann 19. nóvember síðastliðinn. „Þrír stærstu viðskiptabankarnir brugðust við stýrivaxtalækkuninni með því að lækka vexti um 0,10 til 0,35 prósentustig líkt og sjá má í meðfylgjandi töflu. Allir lækkuðu þeir óverðtryggða breytilega vexti um 0,25 prósentustig. Óverðtryggðir fastir vextir voru lækkaðir um 0,10 til 0,35 prósentustig. Vaxtalækkanir voru mismiklar eftir lengd fastvaxtatímabils, en vaxtalækkanir voru umfangsminni eftir því sem fastvaxtatímabilið er lengra. Fastir verðtryggðir vextir lækkuðu um 0 til 0,20 prósentustig og breytilegir verðtryggðir vextir á útistandandi lánum lækkuðu um 0 til 0,25 prósentustig,“ segir í samantekt HMS. Þar segir einnig að kostnaður við uppbyggingu íbúða sé nú jafnmikill og hann var í upphafi árs 2018, ef tekið er tillit til verðlags og litið framhjá opinberum gjöldum. Gatnagerðagjöld, sem innheimt eru af sveitarfélögunum, hafi hins vegar hækkað mikið.
Húsnæðismál Fasteignamarkaður Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira