Neytendur

„Lafufu“ geti verið hættu­leg

Árni Sæberg skrifar
Labubu tuskudýrin njóta fádæma vinsælda þessi dægrin.
Labubu tuskudýrin njóta fádæma vinsælda þessi dægrin. Jakub Porzycki/Getty

Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hefur varað við eftirlíkingum af Labubu tuskudýrum, eða svokölluðum Lafufu. Á dögunum voru um 35.000 stykki af Lafufu gerð upptæk í Portúgal.

Í tilkynningu á vef HMS segir að Labubu tuskudýr hafi orðið mjög vinsæl að undanförnu. Í kjölfarið hafi myndast markaður fyrir eftirlíkingar sem kallast Lafufu. Erlendir eftirlitsaðilar og tollayfirvöld í EU hafi stöðvað fjölda sendinga með eftirlíkingum af Labubu þar sem þær uppfylltu ekki öryggiskröfur sem gilda um leikföng. Því sé varað sérstaklega við eftirlíkingum á Labubu tuskudýrunum. Um daginn hafi um 35.000 stykki af Lafufu verið gerð upptæk í Portúgal og nýlega hafi sænski tollurinn lagt hald á yfir 5.300 Lafufu tuskudýr.

Í prófunum hjá sænsku efnastofnuninni hafi bönnuð efni fundist í flestum eftirlíkingunum. Efni af tegundinni þalöt, aðallega DEHP, hafi fundist í 5 af 7 leikföngum sem prófuð voru í Svíþjóð. Þalöt séu notuð til að mýkja plast og geti truflað hormónastarfsemi, haft áhrif á á frjósemi við langvarandi útsetningu og losnað úr efninu með tímanum og borist, til dæmis, í ryksöfnun á heimilum.

„Fólk er því sérstaklega varað við að kaupa eftirlíkingar á Labubu tuskudýrum. Eigendur þeirra eru hvattir til að farga þeim á öruggan hátt.“


Tengdar fréttir

Ertu sauður? Fimm ráð sem geta forðað þér frá hjarðhegðun

Þegar fréttir bárust af því að slagsmál hefðu brotist út í verslun skammt frá heimili mínu í London yfir nýrri sendingu af Labubu-böngsum voru fyrstu viðbrögð mín að setja mig á háan hest: Sauðir, hugsaði ég með mér þar sem ég las dagblaðið yfir matcha-tei og Dúbaí-súkkulaði, óraveg frá hjörðinni. Eða svo taldi ég.

Labubu bangsar ekki lengur vel­komnir í Ísaks­skóla

Labubu bangsarnir vinsælu eru ekki lengur velkomnir í Ísaksskóla, en skólastjóri segir að bangsarnir hafi verið farnir að valda miklum leiðindum og metingi meðal barna í skólanum. Foreldrar hafa tekið mjög vel í regluna.

Fjórir karlmenn stálu Labubu í tugatali

Hópur ungra karlmanna braust inn í leikfangaverslun í Kaliforníu á dögunum og stal nærri öllum birgðum verslunarinnar af leikfanginu Labubu. Þjófarnir tóku með sér varning að andvirði nærri 900 þúsund króna. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×