Gætu flýtt fyrir með því að gera við biluðu spennana Kjartan Kjartansson skrifar 7. nóvember 2025 08:24 Norðurál rekur álverið á Grundartanga. Vísir/vilhelm Fulltrúar Norðuráls skoða nú möguleikann á því að gera við spenna sem biluðu í síðasta mánuði og nota þá tímabundið þar til nýir fást. Áætlað er að biðin eftir nýjum spennum gæti tekið allt að ár. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um uppsagnir starfsmanna vegna ástandsins.
Bilunin sem varð í tveimur spennum í álverinu á Grundartanga í október stöðvaði framleiðslu í annarri af tveimur kerlínum þess. Afköst álversins eru því aðeins þriðjungur af því sem hún var fyrir bilunina. Samkvæmt nýjustu áætlunum er gert ráð fyrir að framleiðsla í kerlínunni geti hafist eftir ellefu til tólf mánuði á meðan beðið er eftir því að nýir spennar séu framleiddir, fluttir til landsins og settir upp. Unnið er að því að reyna að stytta þessa bið eins og mögulegt er, að því er segir í tilkynningu frá Norðuráli í dag. Á meðal þess sem sé skoðað sé bráðabirgðaviðgerð á biluðu spennunum. „Þessi nálgun er til skoðunar í samstarfi við hönnuð og framleiðanda búnaðarins og gæti, ef vel tekst til, flýtt um um nokkra mánuði að full framleiðsla hefjist á ný,“ segir í tilkynningu frá Sólveigu Kr. Bergmann, framkvæmdastjóra samskipta og samfélagsmála hjá Norðuráli. Hún segir jafnframt í tilkynningunni að bilunin hafi komið verulega á óvart í ljósi þess að báðir spennarnir hafi verið vel innan þess endingartíma sem vænta mætti af þeim. Norðurál vinni með hönnuðum og framleiðendum þeirra að greina orsakir bilunarinnar. Í skriflegu svari við spurningu Vísis segir Sólveig engar ákvarðanir hafa verið teknar um mögulegar uppsagnir starfsfólks eða aðrar aðgerðir vegna framleiðslustöðvunarinnar. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bilun hjá Norðuráli Hvalfjarðarsveit Stóriðja Áliðnaður Mest lesið Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Taka skemmtiferðaskip í Vör Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Fleiri fréttir Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Gjaldþrot Play nemur 21 milljarði króna Sjá meira