Hlutu risastyrk til að stofna miðstöð um gervigreind Árni Sæberg skrifar 13. október 2025 13:08 Lilja Dögg Jónsdóttir er framkvæmdastjóri Almannaróms, sem leiðir verkefnið. Almannarómur Evrópska miðstöðin EuroHPC Joint Undertaking hefur veitt íslensku samstarfsverkefni styrk upp á ríflega 700 milljónir króna til að koma á fót miðstöð á Íslandi fyrir gervigreind og stórvirka tölvuvinnslu (e. HPC). Verkefnið er leitt af Almannarómi í samstarfi við Háskóla Íslands, Háskólann í Reykjavík, Vísindagarða HÍ, Veðurstofu Íslands og Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Þetta segir í tilkynningu á vef Almannaróms. Þar segir að miðstöðin muni bjóða upp á aðgang að reikniafli, gervigreindarhugbúnaði, gagnasöfnum og sérfræðiráðgjöf til að þróa, þjálfa og prófa nýjar lausnir á sviði gervigreindar. Stuðningurinn sé hugsaður fyrir aðila sem eru með lausnir á þróunarstigi og brúar rekstrarbil þar til þær verða tilbúnar í almennan rekstur. Sýnir kraftinn í vísindasamfélaginu „Þessi tíðindi marka tímamót og allir sem lagt hafa hönd á plóg eiga mikið hrós skilið. Enn og aftur sjáum við kraftinn í íslenska vísinda- og nýsköpunarsamfélaginu, sem skilar sér í þessum risastyrk. Hér stígum við stórt skref inn í framtíð þar sem Íslendingar verða fullgildir þátttakendur í gervigreindarbyltingunni og geta gripið tækifærin sem í henni felast,“ er haft eftir Loga Einarssyni, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Logi Einarsson er menningar, nýsköpunar- og háskólaráðherra. Ráðuneyti hans styður verkefnið.Vísir/Einar Sérstaklega verði horft til lausna á sviði heilbrigðismála, loftslags- og umhverfisrannsókna, endurnýjanlegrar orku, framleiðslu- og verkfræði og opinberrar stjórnsýslu, þar sem máltækni og íslensk tunga verði áhersluþættir sem ganga þvert á starfið. Miðstöðin verði með starfsstöð á skrifstofu Almannaróms í Vísindagörðum HÍ í Grósku. Tækifæri og verðmæti fyrir samfélagið „Við ætlum að auðvelda fyrirtækjum og stofnunum að prófa sig áfram í hagnýtingu gervigreindar með greiðum og gjaldfrjálsum aðgangi að reikniafli og sérfræðiþekkingu. Með samstarfi þessara ólíku stofnana bjóðum við breiðan þekkingargrunn og frábæra aðstöðu sem við erum sannfærð um að muni skapa tækifæri og verðmæti fyrir íslenskt samfélag,“ er haft eftir Lilju Dögg Jónsdóttur, framkvæmdastjóra Almannaróms. Almannarómur er sjálfseignarstofnun um eflingu máltæknilausna fyrir íslensku og vinnur að því að tryggja að íslenskan standi jafnfætis öðrum tungumálum í tækniheiminum. Veitir aðgang að gervigreindarverksmiðjum Þá segir að styrkurinn veiti aðgang að umfangsmiklu neti evrópskra gervigreindarverksmiðja og sé fjármagnað af Horizon Europe-áætlun Evrópusambandsins. Íslenska miðstöðin verði tengd við LUMI AI Factory í Finnlandi, þar sem ein öflugasta ofurtölva Evrópu sé staðsett. Verkefnið miði að því að veita íslenskum sprotum, litlum og meðalstórum fyrirtækjum og opinberum stofnunum beinan aðgang að nýjustu og bestu gervigreindarinnviðum og -þekkingu sem völ er á í Evrópu. Verkefnið njóti stuðnings menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytisins og styðji beint við framkvæmd Aðgerðaáætlunar um gervigreind 2025-2027, sem menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið hafi gefið út í sumar. Lögð verði sérstök áhersla á ábyrga og trausta gervigreind í samræmi við evrópsk lög og reglur á sviði gervigreindar og persónuverndar. Alls þrettán verkefni Heildarumfang verkefnisins sé um 1,4 milljarðar íslenskra króna og sé styrkt að helmingi af EuroHPC JU en íslensku samstarfsaðilarnir leggi til hinn helminginn í formi vinnu, húsnæðis og verkefnafjármagns. Íslenska umsóknin hafi verið metin á meðal þeirra allra bestu sem bárust sjóðnum en alls hafi þrettán verkefni í Evrópu hlotið styrki til að koma á fót svæðisbundnum miðstöðvum sem tengjast stærri gervigreindarverksmiðjum á borð við LUMI. LUMI hafi lengi verið ein öflugasta ofurtölva Evrópu en nýlega hafi umfang og umgjörð starfsemi í kringum hana verið stækkuð þegar hún kom af stað þjónustu sinni sem gervigreindarverksmiðja styrkt af EuroHPC JU. Slíkum gervigreindarverksmiðjum sé verið að koma á laggirnar víða um Evrópu, sem hluta af víðtækri áætlun sambandsins í málefnum gervigreindar. Stofnunin Euro HPC JU hafi nú komið 19 gervigreindarverksmiðjum af stað á vegum áætlunarinnar. Til viðbótar við gervigreindarverksmiðjurnar hafi stofnunin nú úthlutað styrkjum fyrir svokallaðar landsmiðstöðvar sem þjóni sem eins konar útibú eða tengingar gervigreindarverksmiðjanna við önnur svæði. Íslenska miðstöðin verði þannig landsmiðstöð Íslands með tengingu við LUMI AI Factory.
Gervigreind Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira