Ragnhildur, Svavar og Hreinn nýir stjórnendur hjá N1 Atli Ísleifsson skrifar 18. júní 2025 11:19 Ragnhildur Leósdóttir, Svavar Kári Grétarsson og Hreinn Þorvaldsson. Hreinn Þorvaldsson, Ragnhildur Leósdóttir og Svavar Kári Grétarsson hafa verið ráðin í stjórnendastöður hjá N1.
Í tilkynningu segir að Ragnhildur og Hreinn komi inn á orkusvið N1 og Svavar gegni stöðu deildarstjóra dagvörusviðs félagsins. „Ragnhildur tók nýlega við starfi sölu- og þjónustustjóra orkusviðs hjá N1 sem heldur m.a. utan um sölu fyrirtækisins á raforku, rafhleðslustöðvum og rekstri þeirra vítt og breitt um land. Ragnhildur gegndi síðast starfi deildarstjóra söluráðgjafar hjá Símanum og þar áður var hún vörustjóri Sjónvarps Símans. Ragnhildur hefur lokið Executive MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík og er viðskiptafræðingur að mennt með áherslu á markaðsfræði frá Hult International Business School í London. Hreinn hefur tekið við starfi rekstrarstjóra, einnig á orkusviði N1, en þangað kom hann frá Festi, þar sem hann starfaði allt frá samruna félaganna árið 2018. Fyrir þann tíma, eða frá 2016, starfaði Hreinn á fjármálasviði N1 og má því segja að hann sé kominn heim á ný eftir lærdómsrík ár hjá Festi, þar sem hann bar m.a. ábyrgð á innheimtu fyrir öll félög samstæðunnar auk umsjónar með viðskiptareikningum félaganna og fleiru. Hreinn er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands. Svavar Kári var ráðinn í stöðu deildarstjóra dagvörusviðs N1, en hann starfaði áður hjá Ölgerðinni þar sem hann starfaði sem vörumerkjastjóri Collab á innlendum markaði frá 2018 til 2022. Þegar Ölgerðin hóf formlega útrás með drykkinn á erlenda markaði færði Svavar sig yfir í útflutningsdeildina, þar sem hann gegndi lykilhlutverki í undirbúningi og vexti vörumerkisins erlendis ásamt því að sinna öðrum útflutningsverkefnum. Svavar er með B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands,“ segir í tilkynningunni.
Vistaskipti Mest lesið Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent „Þá mætti maður til vinnu á meðan maður stóð í lappirnar“ Atvinnulíf Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Andri frá Origo til Ofar Viðskipti innlent Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Viðskipti innlent Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gullverð lækkar og gengi Amaroq fylgir Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Stofnendur Vélfags ekki hafðir með í ráðum Andri frá Origo til Ofar Stofnandi Fortuna Invest til Lyfja og heilsu Einn banki spáir óbreyttum vöxtum annar hækkuðum Kolfinna ráðin markaðsstjóri hjá Drift EA Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Vertíðin gæti skilað fjörutíu milljörðum Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Daði Már kennir olíufélögunum um „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Hækka loðnuráðgjöf í hátt í 200 þúsund tonn Verðbólga eykst umfram svartsýnustu spár Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Uppsagnir hjá Íslenskri erfðagreiningu: „Gríðarlega erfiður dagur“ Ríflega hundrað milljóna gjaldþrot Culiacan Birgir Óli, Haraldur og Stefanía Erla til Póstsins Tugir missa vinnuna hjá Íslenskri erfðagreiningu Uppsagnir hjá Alvotech Fjölga starfsfólki hjá ACT4 Breytingar á eigendahópi Glassriver þar sem „gengið hefur á ýmsu“ Birta og LV skoða mögulegan samruna Breytingar á framkvæmdastjórn HS Orku Snýr aftur í álverið en nú sem forstjóri Þrír nýir forstöðumenn hjá Coca-Cola á Íslandi Kemur frá Icelandair til Varðar Siggi til Varist Sjá meira