Krefur Ríkisútvarpið um leiðréttingu Árni Sæberg skrifar 4. júní 2025 12:43 Björgólfur Thor ásamt eiginkonu sinni, Kristínu Ólafsdóttur, og öðrum tveggja nánustu samstarfsmanna sinna, Andra Sveinssyni. Vísir/Vilhelm Björgólfur Thor Björgólfsson hefur sent Ríkisútvarpinu formlega beiðni um leiðréttingu á meintum rangfærslum sem voru viðhafðar í þætti Kveiks á RÚV þann 29. apríl síðastliðinn, og hafi síðan verið endurteknar í öðrum miðlum.
Þáttur Kveiks fjallaði um meintar njósnir fyrirtækisins PPP fyrir hönd Björgólfs. Meðal þess sem kom fram í þættinum var að Björgólfur hefði pantað njósnir gagnvart Róberti Wessman og fleiri nafngreindum einstaklingum, sem þá undirbjuggu hópmálsókn á hendur Björgólfi. Tvær yfirlýsingar á jafnmörgum dögum Frá því að þátturinn fór í loftið lét Björgólfur málið sig ekki varða á opinberum vettvangi en rauf þögnina í fyrradag. Þá sendi hann frá sér yfirlýsingu þar sem hann kvaðst fordæma vinnubrögð njósnaranna. Hann hefur nú ritað fjölmiðlum annað erindi þar sem hann greinir frá því að hann hafi í dag krafið Ríkisútvarpið um leiðréttingu á umfjöllun þess. „Í því ljósi tel ég ástæðu til að senda samhliða almenna áréttingu til fjölmiðla um þessi atriði og aðrar rangar ályktanir sem hafa verið dregnar af þessari umfjöllun.“ Átta milljónir en ekki 33 Björgólfur segir að samkvæmt bókhaldsgögnum hafi rúmar átta milljónir króna verið greiddar til PPP en ekki 33 milljónir, eins og ítrekað hafi verið haldið fram á RÚV og öðrum miðlum í kjölfarið. Mögulega hafi fleiri reikningar borist frá fyrirtækinu en þeir ekki greiddir, þar sem verkkaupum hafi lokið þegar engin niðurstaða fékkst. „Þá kom fram að njósnað hefði verið um „fjölda fólks“ og að aðgerðirnar hefðu kostað „tugi milljóna króna“. Í þættinum eru þó aðeins fjórir einstaklingar nafngreindir og samkvæmt gögnum voru greiddar rúmar 8 milljónir króna fyrir verkið. Fullyrðingarnar standast því ekki.“ Hafi aldrei þurft að halda uppi vörnum fyrir dómi Björgólfur segir að það sé ekki rétt að búið hefði verið að stefna honum í hópmálsókn árið 2012, eins og komið hafi fram í Kveik. Hópmálsóknarfélagið hafi ekki verið stofnað fyrr en þremur árum síðar, eða 19. júní 2015. Gögn um það hafi verið móttekin þann 17. ágúst 2015 og stefna fyrst birt 12. ágúst 2015. „Því tengdu er í þættinum birt myndefni sem sýnir mig yfirgefa réttarsal, samhliða umfjöllun um hópmálsókn. Þetta myndefni tengist allt öðrum réttarhöldum þar sem ég var vitni. Ég steig aldrei fæti inn í réttarsal vegna hópmálsóknarinnar. Myndefnið er því misvísandi og ærumeiðandi, ætlað að skapa þau hugrenningatengsl hjá áhorfendum að ég hafi þurft að verja mig gegn hópmálsókn í réttarsal.“ Hvorki keypti né sá stolnu gögnin Ég hafi hvorki keypti né séð nokkur gögn sem áttu uppruna sinn hjá embætti sérstaks saksóknara. Hann hefði því enga aðkomu haft að gagnalekamálinu sem vísað er til í umfjöllun RÚV. Lögmenn Landslaga hafi tekið við gögnum frá PPP úr hirslum embættisins, borgað um 30 milljónir króna fyrir samkvæmt fréttum og lagt fram á vegum þrotabús Milestone. Síðar hafi lögmenn Landslaga rætt við PPP-menn um að fá fleiri gögn við undirbúning hópmálsóknar gegn honum. Það hafi því verið aðrir sem höndluðu með þessi gögn en hann. Þá hafi því verið haldið fram að hann hafi verið sakborningur í rannsókn yfirvalda á þessum tíma. „Það er rangt. Ég hef aldrei verið sakborningur og engin ástæða hefur verið talin til aðgerða gegn mér. Mál mín hafa verið rannsökuð af þar til bærum stofnunum og þeim lokið án athugasemda.“ Víki sér ekki undan umfjöllun Loks segir Björgólfur að það hafi komið honum í opna skjöldu að sjá í Kveiksþættinum hversu langt starfsmenn PPP gengu í tengslum við þessar rannsóknir. Upptökur hafi hvorki verið afhentar honum né starfsfólki hans og því aldrei nýttar af þeim á nokkurn hátt. Starfsaðferðirnar hafi ekki verið í samræmi við verksamning og hann hefði aldrei samþykkt þessi vinnubrögð hefðu þau verið honum ljós. Það sé því ekki hægt að fullyrða að njósnað hafi verið að hans undirlagi. „Ég vík mér ekki undan málefnalegri og gagnrýninni umfjöllun. Það er sjálfsagt og eðlilegt að fjölmiðlar spyrji spurninga, og ég svara þeim þegar staðreyndir liggja fyrir. Hins vegar er langt til seilst þegar ég er tengdur við skipulagða njósnastarfsemi og gagnaleka úr stjórnkerfinu, þar sem geymsla, aðgangur og meðferð viðkvæmra persónuupplýsinga og rannsóknargagna hefur augljóslega verið ábótavant.“ Miklu máli skipti að slík mál séu rædd af ábyrgð og á grundvelli staðreynda. Traust á opinberri umræðu og mikilvægi frjálsra fjölmiðla byggi á því að upplýsingagjöf sé nákvæm, sanngjörn og í samræmi við raunveruleikann. „Ég treysti því að fjölmiðlar meti þessi atriði af fagmennsku og virðingu fyrir hlutverki sínu.“ Athugasemd: Vísir hefur óskað eftir viðtali við Björgólf, líkt og gert var eftir fyrri yfirlýsingu hans.
Gögnum stolið frá sérstökum saksóknara Ríkisútvarpið Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Fleiri fréttir „Frakkland má ekki vera fyrirmynd í þessum efnum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Sjá meira