Á að leyfa eða halda áfram að banna? Sigurður G. Guðjónsson skrifar 2. júní 2025 09:00 „Við veltum því fyrir okkur hvort það á að leyfa eða halda áfram að banna.“ Þessi orð lét Willum Þór Willumsson, nýkjörinn forseti Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ), falla í viðtali í Kastljósi þann 19. maí um afstöðu íþróttahreyfingarinnar til erlendra getrauna- og veðmálavefsíðna. Þetta er tímabær stefnubreyting af hálfu ÍSÍ, sem undir fyrri forystu vildi ekki horfast í augu við gjörbreytt umhverfi frá því þegar einungis var í boði þjónusta útvalinna fyrirtækja á getraunum tengdum íþróttakappleikjum og öðrum fjárhættuspilum. Gamli tíminn kemur ekki aftur Ólíkt fyrri forystu áttar WiIllum sig á að ekki dugar að beita sömu aðferðum nú, á sítengdu stafrænu tímum, og þegar fólk fór í næstu sjoppu til að kaupa lottóseðil eða skila handútfylltum getraunaseðli á pappírsblaði.Fólk vill frelsi til að skipta við þá sem bjóða bestu þjónustuna og vinningslíkurnar. Við bökkum ekki úr þessu í gamla tímann þegar einungis hin sérstaka ríkisleið einokunar var í boði.Í viðtalinu við Willum koma líka fram að áherslan þegar kemur að þessari starfsemi verður að vera á forvarnir og ábyrga spilamennsku. Um það er umbjóðandi minn, sænska fyrirtækið Betsson, honum innilega sammála einsog glöggt má sjá á langri sögu þess. Strangari reglur Betsson hvílir á rúmlega 60 ára gömlum grunni og er skráð í sænsku kauphöllinni Nasdaq í Stokkhólmi, með þeirri gagnsæis- og upplýsingaskyldu sem því fylgir. Vefsíðan betsson.com er starfrækt af fyrirtækinu BML Group Ltd, er með heimili á Möltu sem er aðildarríki Evrópusambandsins (ESB) og lýtur þar með stífum reglum sambandsins varnir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka og um gagnsæi og skyldur veðmálafyrirtækja. Þar á meðal ber þeim skylda til að framkvæma áreiðanleikakannanir á viðskiptavinum sínum og tilkynna grunsamleg viðskipti. Eru þessar reglur ESB mun strangari en gilda samkvæmt íslenskum lögum um spila- og happdrættisfyrirtæki.Betsson hefur um árabil verið leiðandi í nýsköpun og þróun á stafrænum lausnum í netleikjum. Félagið hefur alla tíð lagt ríka áherslu á ábyrga spilamennsku og vinur með Global Gambling Guidance Group (G4), sem vottar spilasíður á Netinu.Betsson býður ýmis tól og leiðir eru í boði til að koma í veg fyrir óheilbrigða spilamennsku. Gildir það bæði um ráðstafanir sem spilarar geta sjálfir stutt sig við og af hálfu fyrirtækisins, sem hefur samband við spilara ef hugbúnaður félagsins nemur vísbendingar um að spilamennska sé að fara úr böndunum.Ólöglegt fyrir aðila undir 18 ára aldri að opna reikninga og/eða spila fjárhættuspil hjá Betsson. Fyrirtækið áskilur sér rétt til þess að óska eftir sönnun um aldur frá öllum viðskiptavinum sínum og getur lokað reiknigum þangað til viðeigandi gögn hafa borist.Eru þessar ráðstafanir um eigin ábyrga spilamennsku og möguleg inngrip til að stöðva óheilbrigða spilamennsku mun umfangsmeiri en eru í boði hjá íslenskum spila- og happdrættisfyrirtækjum. Hagræðing úrslita Í Kastjósviðtalinu nefndi Willum áhyggjur af hagræðingu úrslita í tengslum við veðmál. Þetta er þáttur sem Betsson tekur afar föstum tökum. Í fyrsta lagi er fyrirtækið með öflugan hugbúnað sem vaktar mögulegar óeðlilegar hreyfingar í kringum kappleiki. Í öðru lagi býður Betsson einfaldlega hvorki upp á veðmál tengd neðri deildum íþrótta né leikjum yngri flokka, en þekkt er að mesta hættan á hagræðingu úrslita er á þessum sviðum íþróttanna. Því miður á þetta ekki við um ýmsar aðrar spilasíður á netinu, sem hafa kosið að vanda sig ekki. Skynsamlegri umræða Í síðustu grein um þetta efni, 140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu, var bent á að fjáraustur íþróttahreyfingarinnar í Íslenskar getraunir og Íslenska getspá er sérstakt rannsóknarefni. Á það bæði við um gríðarlega eyðslu við kaup á auglýsingum og rausnarleg laun- og hlunnindi stjórnenda og stjórnarfólks þessara einokunarfyrirtækja. Miðað við orð Willums í Kastljósi er ÍSÍ loks að opna augun fyrir því að líklega er hægt, ef vel er að verki staðið, að skila mun hærri fjárhæðum til íþróttastarfs í landinu með því aðafnema ríkisvarða einokun á fjárhættuspilum og opna markaðinn með skynsamlegri reglusetningu um gagnsæi í rekstri og skattheimtu sem rynni í sérstakan sjóð. Umræðan er loksins að komast í skynsamlegri og betri farveg en verið hefur. Höfundur er lögmaður og gætir hagsmuna Betsson hér á landi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sigurður G. Guðjónsson Fjárhættuspil Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson Skoðun Þessir þröngsýnu ungu bændur Sunna Þórarinsdóttir Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Ísland og Færeyjar, yfirráð yfir auðlindum og fullveldi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Evrópskir hægrimenn eru Evrópusinnar Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Evrópa - frá velferð til vígvæðingar Ólöf Benediktsdóttir skrifar Skoðun Ekki láta plata þig þann 29. ágúst Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Hver á fiskinn – og hvar verða verðmætin til? Baldur Johnsen skrifar Skoðun Gögnin sýna að Evrópa er langmikilvægasta markaðssvæði Íslands Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Grænland – áttu við Ísland? Damien Degeorges skrifar Skoðun Skítamixsumarið mikla Hulda Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Vextir, verðbólga, verðtrygging og íslenska veðráttan Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar Skoðun Já til að sjá – áhættuspil? Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Það eru breyttir tímar Þóroddur Ingvarsson skrifar Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson skrifar Skoðun ESB hefur styrkt gróðahyggju á kostnað félagshyggju Ögmundur Jónasson skrifar Sjá meira
„
Skoðun 30 dæmi um villandi framsetningu í efnahagsgreiningu Áfram Íslands Gauti B. Eggertsson skrifar
Skoðun Er íslensk útgerð og kvótakerfi góð ástæða til að kjósa já 29. ágúst? Arndís Vala Arnfinnsdóttir skrifar