Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Lovísa Arnardóttir skrifar 26. apríl 2025 13:02 Frá vinstri eru Lucas Keller sem hannaði matseðilinn, Matthías Már matreiðslumeistari og Bragi eigandi Króníkunnar. Aðsend Búið er að skipta út smurbrauðinu á veitingastaðnum Krónikunni fyrir pizzur. Nýr matseðill er hannaður af Lucas Keller sem áður rak Cocoo‘s Nest. Veitingastaðnum var breytt til að taka betur mið af þörfum ungra barnafjölskyldna sem koma reglulega á svæðið en veitingastaðurinn er rekinn við Gerðasafn í Kópavogi.
Króníkan var þannig enduropnuð á sumardaginn fyrsta sem pizzastaðurinn Krónikan pízzerí og fínerí. Eigandi veitingastaðarins, Bragi Skaftason, segist hafa tekið þá ákvörðun að staðurinn myndi skipta um matseðil eins og listasafn skiptir um sýningar. Hann opnaði Króníkuna upprunalega með systur sinni, Sigrúnu Skaftadóttur, fyrir tveimur árum sem smurbrauðsstað. Sigrún hefur rekið staðinn síðustu tvö ár en Bragi er nú orðinn einn eigandi hans. Þegar staðurinn var opnaður var lögð áhersla á smörrebröd, rammíslenskar kaffiveitingar, góð vín, bjór og ákavíti. „Ég opnaði Krónikuna með elsku systur minni Sigrún Skaftadóttur fyrir tæpum tveimur árum síðan. Fallegt húsnæði í Gerðarsafni og gaman að gera næs stöff í gamla heimabænum. Smörre í Kópavogi fannst mér alveg góð hugmynd og hún varð að veruleika og ég sé ekki eftir því. Ég er samt með massa mikið ógreint ADHD og nenni ekki hlutum sem mér finnast ekki endast lengi. Ég tók þá ákvörðun að staðurinn myndi skipta um listamann eins og safnið skiptir um sýningar,“ segir Bragi um ákvörðunina á Facebook. Í samtali við fréttastosfu segist Bragi hafa hugsað breytinguna vel og lengi, og þurft að taka tillit til þess að, til dæmis, eldhúsið sé lítið og ekki hægt að gera hvað sem er þar. „En við getum gert þetta vel. Við vorum að horfa á ákveðinn markhóp með smurbrauðið. Það gekk alveg en umhverfið er þannig að það er svo mikið af ungum fjölskyldum. Það hefur vantað eitthvað fyrir þær að sækja og við ákváðum að bregðast við því,“ segir Bragi í samtali við fréttastofu. Bragi ákvað þá að leita til Lucas Keller, sem áður átti og rak Cocoo‘s Nest á Granda, til að hanna nýjan matseðil. Lucas starfar ekki á sjálfum staðnum en mun sjá um gæðaeftirlit. „Hann er kominn í þetta, að hanna seðla. Fólk getur þó ekki búist við því að sjá Lucas þarna þó að honum bregði eflaust við af og til.“ Fullt í smakk og opnun Bragi telur að um 450 hafi mætt á enduropnunina á sumardaginn fyrsta. „Þetta var rosalegt. Við bjuggumst við hundrað manns. Teljarinn taldi 1.700 en maður verður að deila í 3,5 því fólk fer inn og út, þannig það eru um 450,“ segir Bragi í samtali við fréttastofu. Hann segir hafa verið mikið líf í kringum staðinn í gær í sólinni og mjög margir hafi verið á staðnum til þess að prófa nýju pizzurnar. „Við elduðum og elduðum. Þetta var alveg kreisí.“ Matseðill staðarins er nú tvískiptur í annars vegar pizzerí og hins vegar fínerí. Á pízzerí-matseðlinum eru pizzur en á hinum eru ýmsir smáréttir og sætindi. „Við gerum allt á staðnum, það eru engar vörur keyptar inn,“ segir hann. Matthías Már Kristjánsson matreiðslumeistari hefur verið ráðinn til að elda matinn á staðnum. Hann hefur síðastliðið ár unnið á Vínstúkunni en færir sig nú yfir á Krónikuna. Bragi er einnig einn eigenda Brút og Hressó. Áður átti hann í Veður og Vínstúkunni en hefur nú selt sig úr því. Lucas með salami-pylsurnar sem eru notaðar á pizzurnar.Aðsend Bragi segir tvær pizzanna hafa slegið í gegn. Báðar eru þær hvítar, það er engin rauð sósa á þeim. Önnur er með rósmarín og sítrónu og hin með pecorino og svörtum pipar. „Bragðið kemur skemmtilega á óvart í þeim.“ Öðruvísi pepperóní pizza Á matseðlinum er svo einnig að finna þeirra „teik“ á klassískri pepperóní-pizzu, Diavola. Á hana nota þeir salami frá pylsugerðarmanninum Rpberto Tariello en hann framleiðir pylsur úr íslenskum hráefnum eftir gamalli ítalskri hefð í Þykkvabæ. „Við notum salami frá honum en þau eru ekki endilega voðalega sterk þannig hitinn í pizzunni er ekki frá salami-inu heldur úr sichuan-pipar sírópi sem við búum til. Svakalega góð pizza,“ segir Bragi. Auk þess að breyta nafninu og matseðlinum segir Bragi að opnunartíminn muni breytast. Í stað þess að fylgja viðburðum í Salnum verði alltaf opið til 21. Á döfinni sé svo að bæta við garðhúsi fyrir utan þannig fólk geti setið fyrir utan.
Veitingastaðir Kópavogur Matvælaframleiðsla Mest lesið Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Viðskipti innlent Kanada svarar tollum Bandaríkjastjórnar Viðskipti erlent Nýr og ódýrari valkostur fyrir fyrirtæki sem þurfa að losa úrgang Samstarf Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Viðskipti innlent Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Viðskipti innlent Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Viðskipti innlent Hótelin fá ný nöfn Viðskipti innlent Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Viðskipti innlent Barilla og Himneskt víkja fyrir breiðara pastaúrvali Neytendur Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Síminn orðinn Ásar hf Icelandair kaupir helming í dreggjum Play á 83 milljónir Ekkert fékkst upp í mörg hundruð milljóna króna kröfur Ekkert nýtt að frétta af boðuðum kaupum Telur ESB-viðræður engu breyta um verðbólgu og stýrivexti Minni íbúafjölgun minnkar þörfina á nýjum íbúðum Vaxtahækkun sé röng og illa tímasett Indó hækkar vexti vegna stýrivaxtahækkunar „Þetta er sagt af mikilli virðingu“ „Bull og vitleysa“ að hækkunin bíti ekki á verðtryggð lán Bein útsending: Opinn fundur um samspil stýrivaxta og verðbólgu „Það eru engin fórnarlömb hér“ Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtahækkun Sjá meira