Sagnaarfur Biblíunnar - Salómonsdómur, lög og ólög Sigurvin Lárus Jónsson skrifar 29. mars 2025 22:01 Í sagnaarfi Biblíunnar er 10. öldin blómaskeið, þegar feðgarnir Davíð og Salómon voru konungar í sameinuðu ríki, en á þeim tíma voru jafnframt stórveldin sitt hvoru megin við landið helga í lági. Salómon er sem persóna táknmynd fyrir visku og lögspeki, og þekktasta sagan er af honum sem dómara, þegar hann kveður upp Salómonsdóm, sem leysir vanda með því að líta handan laganna. Það sem gerir Salómon að táknmynd visku er aðallega tvennt, annarsvegar var hann konungur á blómaskeiði og hann var opinn fyrir menningu og þekkingu annarra þjóða. Við hann eru kennd ýmis spekirit sem með ólíkum hætti endurspegla framandi menningu, í Gamla testamentinu eru Orðskviðirnir, Ljóðaljóðin og Prédikarinn kennd við Salómon, í Apókrýfum bókum Speki Salómons og frá okkar tímatali Testamenti Salómons. Allar þessar bækur innihalda merkilega texta og sú fyrstnefnda hefst á orðunum „Orðskviðir Salómons [...] til þess að menn nemi visku og leiðsögn og læri að meta orð skynseminnar [...]. Að óttast Drottin er upphaf þekkingar, afglöpum einum er í nöp við visku og tilsögn.“ Þá eru Ljóðaljóðin erótískt ljóð, sem ein bóka Biblíunnar nefnir Guð hvergi á nafn, en hefur verið túlkuð af bæði gyðingum og kristnum, sem myndmál fyrir ást Guðs á mönnunum. Hinsvegar var Salómon lögspekingur í þeirri merkingu að hann leitaði réttlætis handan lagabókstafsins, í anda laganna, og sýndi mannlegum aðstæðum umhyggju og skilning í dómum sínum. Salómonsdómur Söguna af Salómonsdómnum er finna í Konungabókum, en í formála sögunnar segist Guð hafa veitt Salómon bænasvar: Salómon biður Guð um „vilja til að hlýða“ honum, „svo að [hann] geti [...] greint gott frá illu“. Guð veitti honum „vitsmuni til að skynja hvað rétt er í málum manna“. Salómonsdómurinn er harmleikur. Tvær konur gengu fyrir konung, konur sem bjuggu í sama húsi og eignuðust syni með stuttu millibili. Annað barnið andast í harmleik, móðir hans „hafði lagst ofan á hann“, og önnur konan ásakar hina: „Hún reis þá upp um miðja nótt, tók son minn frá mér á meðan ég [...] svaf og lagði hann við brjóst sér en dáinn son sinn lagði hún við brjóst mér. [...] [Þ]egar ég skoðaði hann nánar [dáinn] í dagsbirtunni sá ég að þetta var ekki sonur minn sem ég hafði fætt.“ Hin andmælti sögunni og sagði „það er sonur minn sem er lifandi en þinn sonur er dáinn.“ Þannig rifust þær frammi fyrir konungi. Dómur Salómons var ekki réttlátur í sjálfu sér, hann lagði til að barnið yrði hoggið í tvennt og skipt á milli kvennanna, en viðbrögð mæðranna uppljóstruðu hið sanna í málinu. „Þá sagði konan, sem átti lifandi barnið, við konunginn því að móðurástin brann í brjósti hennar: „Æ, herra minn! Fáðu henni barnið sem lifir, láttu ekki deyða það.“ En hin sagði: „Það er best að hvorki ég né þú fáir það. Höggvið barnið í tvennt.“ Salómonsdómur er eins og segir í íslenskri orðabók: „réttlátur og viturlegur úrskurður í erfiðu máli“. Lögspeki Salómons byggði ekki á vísun í lagabókstaf, engin forn lög leyfðu það að kljúfa börn í tvennt, heldur getunni til að sjá handan laganna og líta á aðstæður fólks. Réttarsaga og sagnaarfur Biblíunnar Fyrir tíma konunganna var stjórnarfar dómara, en þeim er helguð Dómarabókin. Þeir höfðu það hlutverk að vera leiðtogar fyrir þjóðina með því að túlka vilja Guðs og lög hans. Þau lög er að finna í Mósebókunum fimm eða Tórunni, en sjötta bókin er stundum talin með, sem er Jósúabók og segir frá landvinningum og skiptingu landsvæða á milli ættkvísla Jakobs. Lög og lagagreinar eru fyrirferðarmiklar í þessum bókum og auk boðorðanna 10, telja gyðingar sjálfir 613 lagaákvæði í Tórunni. Í elstu bók Íslendinga, Hómilíubókinni, er Salómons getið víða og hann m.a. sagður hafa sagt „að önd réttláts manns er sess speki“. Í Þorláks sögu Helga segir um biskupinn „en ef honum báru til vandamál, söng hann það vers sem Salómon hinn spaki bað til guðs á sínum dögum: ,Mitte mihi, domine, auxilium de sancto‘.“ – sendu mér Drottinn, aðstoð frá hinum heilaga. Ein fegurstu handrit okkar íslendinga innihalda þýðingar og útleggingar af Gamla testamentinu, Stjórn, í einu er að finna fagurlega myndskreytingu af Salómon og drottningunni af Saba og í öðru myndskreytingu af konunginum í hásæti sínu. Þá eru til 14. aldar slitrur af íslenskri endursögn riddarasögunnar, Melkólfs saga ok Solomons konungs, þar sem konungurinn hebreski hittir fyrir kotbónda. Grágás nefnir Salómon ekki á nafn, en byrjar eins og þekkt er á Kristinna laga þætti, þar sem sagt er frá kristnitökunni í fyrstu línu: „Á dögum feðra vorra voru þau lög sett að allir menn skulu kristnir vera á landi hér og trúa á einn Guð, föður og son og anda helgan.“ Í Grágás er loks að finna hið þekkta orðatiltæki, „með lögum skal land vort byggja“, sem „er aldagamall samnorrænn arfur, sem gæti átt sér upphaf í rómarrétti“, og er þekktast í Njálssögu „að hver hafi lög við annan því að með lögum skal land vort byggja en eigi með ólögum eyða.“ Ólög í Njálssögu, vísa í þá „hugmynd að ekki beri að setja lög sem íþyngi lýðnum“ og að í ljósi kristnitökunnar á Íslandi skuli lögin „vera liður í réttlátu samfélagi og undirstaða friðar“. Ólög geta líka verið eiginleg ólög, og þó fæst séum við lögfræðingar eða lögmenn, ber okkur sem teljumst kristin, skylda til að leitast við að sjá samfélag okkar með visku Salómons að leiðarljósi og að mæta þörfum fólks í anda Jesú. Ólög og sagnaarfur Biblíunnar Nútíminn er fullur af ólögum og órétti og það þarf ekki að leita langt eftir dæmum, þar sem hið löglega er ekki einungis siðlaust, heldur lög sem sett hafa verið sem kúgunartæki. Víða er samkynhneigð refsiverð, jafnvel er varðar dauðarefsingu, og lög gegn hinsegin fólki réttlætt á grundvelli Biblíunnar. Þá þekkjum við Nürnberger lögin í Þýskalandi Nasismans, sem sviptu gyðinga réttindum sínum, og lagasetningar gegn þeldökku fólki í Bandaríkjunum – Jim Crow – og í Suður-Afríku – Apartheid. Nær okkur í tíma og rúmi eru þó dæmi þess, þegar aðstöðumunur hinna ríku og hinna fátæku birtast okkur í löglegum leiðum til að leggja ekki til samfélagsins og að útlendingar njóta ekki sömu réttinda og heimamenn. Jesús vitnaði í „speki Salómons“ í dómsræðum sínum og var þar óvæginn í gagnrýni sinni á samfélagið, „þessi kynslóð er vond kynslóð“, sagði hann. Jesús var sjálfur sakaður um lögbrot, að lækna á hvíldardaginn, og „[l]ögspekingar andmæltu honum og sögðu: „Meistari, þú meiðir okkur líka með því sem þú segir.“ En Jesús mælti: „Vei yður líka, þér lögvitringar! Þér leggið á menn lítt bærar byrðar og sjálfir snertið þér ekki byrðarnar einum fingri. [...] Þér hafið hrifsað til yðar lykil viskunnar.“ Hin kristna krafa er að andmæla ávallt þegar fólk er beitt órétti og að setja mannhelgi ofar lagabókstaf. Höfundur er prestur við Vídalínskirkju í Garðabæ. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sigurvin Lárus Jónsson Mest lesið Djöfulsins, helvítis, andskotans pakk Vilhjálmur H. Vilhjálmsson Skoðun Vindmyllur Þórðar Snæs Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson Skoðun Útgerðarmenn vaknið, virkjum nýjustu vísindi Svanur Guðmundsson Skoðun Hversu margar ókeypis máltíðir finnur þú í desember? Þorbjörg Sandra Bakke Skoðun Þeir sem hafa verulega hagsmuni af því að segja ykkur ósatt Þórður Snær Júlíusson Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson Skoðun Vanhugsuð kílómetragjöld og vantalin skattahækkun á árinu 2026 Vilhjálmur Hilmarsson Skoðun Ál- og kísilmarkaðir í hringiðu heimsmála Tinna Traustadóttir Skoðun Innflytjendur, samningar og staðreyndir Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Skoðun Skoðun Hvernig varð staðan svona í Hafnarfirði? Einar Geir Þorsteinsson skrifar Skoðun Samherjarnir Ingi Freyr og Georg Helgi Páll Steingrímsson skrifar Skoðun Minna stress meiri ró! Magnús Jóhann Hjartarson skrifar Skoðun Innflytjendur, samningar og staðreyndir Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Vindmyllur Þórðar Snæs Stefanía Kolbrún Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Ál- og kísilmarkaðir í hringiðu heimsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Útgerðarmenn vaknið, virkjum nýjustu vísindi Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Hversu margar ókeypis máltíðir finnur þú í desember? Þorbjörg Sandra Bakke skrifar Skoðun Sjálfgefin íslenska – Hvernig? Ólafur Guðsteinn Kristjánsson skrifar Skoðun Vonbrigði í Vaxtamáli Breki Karlsson skrifar Skoðun Reykjalundur – lífsbjargandi þjónusta í 80 ár Magnús Sigurjón Olsen Guðmundsson skrifar Skoðun Svörin voru hroki og yfirlæti Davíð Bergmann skrifar Skoðun Umönnunarbilið – kapphlaupið við klukkuna og krónurnar Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Eurovision: Tímasetningin og atburðarásin sögðu meira en ákvörðunin Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Aðgerðarleysi er það sem kostar ungt fólk Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Að gera eða vera? Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Skattablæti sem bitnar harðast á landsbyggðinni Þorgrímur Sigmundsson skrifar Skoðun Málfrelsi ungu kynslóðarinnar – og ábyrgðin sem bíður okkar Jóhann Ingi Óskarsson skrifar Skoðun „Við skulum syngja lítið lag...“ Arnar Eggert Thoroddsen skrifar Skoðun Norðurlöndin – kaffiklúbbur eða stórveldi? Hrannar Björn Arnarsson,Lars Barfoed,Maiken Poulsen Englund,Pyry Niemi,Torbjörn Nyström skrifar Skoðun Ný flugstöð á rekstarlausum flugvelli? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun ESB íhugar að fresta bensín- og dísilbanni til 2040 – Ísland herðir álögur á mótorhjól þrátt fyrir óraunhæfa rafvæðingu Unnar Már Magnússon skrifar Skoðun Þeir sem hafa verulega hagsmuni af því að segja ykkur ósatt Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Ísland: Meistari orkuþríþrautarinnar – sem stendur Jónas Hlynur Hallgrímsson skrifar Skoðun Úthaf efnahagsmála – fjárlög 2026 Halla Hrund Logadóttir skrifar Skoðun Þegar líf liggur við Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Stóra vandamál Kristrúnar er ekki Flokkur fólksins Jens Garðar Helgason skrifar Skoðun Til stuðnings Fjarðarheiðargöngum Glúmur Björnsson skrifar Skoðun Út með slæma vana, inn með gleði og frið Dagbjört Harðardóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Umönnunarbilið – kapphlaupið við klukkuna og krónurnar Bryndís Elfa Valdemarsdóttir skrifar
Skoðun Eurovision: Tímasetningin og atburðarásin sögðu meira en ákvörðunin Gunnar Salvarsson skrifar
Skoðun Af hverju umræðan um Eurovision, Ísrael og jólin hrynur þegar raunveruleikinn bankar upp á Hilmar Kristinsson skrifar
Skoðun Norðurlöndin – kaffiklúbbur eða stórveldi? Hrannar Björn Arnarsson,Lars Barfoed,Maiken Poulsen Englund,Pyry Niemi,Torbjörn Nyström skrifar
Skoðun ESB íhugar að fresta bensín- og dísilbanni til 2040 – Ísland herðir álögur á mótorhjól þrátt fyrir óraunhæfa rafvæðingu Unnar Már Magnússon skrifar