Martin með tíu stoðsendingar en liðið kastaði sigrinum frá sér Ágúst Orri Arnarson skrifar 23. mars 2025 17:57 Martin Hermannssyni og hans tíu stoðsendingum verður ekki kennt um tap Alba Berlin. Soeren Stache/picture alliance via Getty Images Martin Hermannsson gaf tíu stoðsendingar í svekkjandi 80-84 tapi Alba Berlin gegn Wurzburg.
Berlínarbúar voru undir eiginlega allan leikinn en börðust til baka í fjórða leikhluta, tóku forystuna og leiddu með sjö stigum þegar tæpar tvær mínútur voru eftir. Þá tók hins vegar við skelfilegur kafli sem Malte Delow bar mesta ábyrgð á. Hann tapaði boltanum, klikkaði undir körfunni og lét verja frá sér skot. Berlínarbúar skoruðu ekki stig það sem eftir lifði leiks. Wurzburg gerði hins vegar vel, minnkaði muninn í eitt stig og setti síðan þrist þegar aðeins tvær sekúndur voru eftir af leiknum. Alba fékk þá tækifæri til að setja þriggja stiga sigurskot, en missti boltann aftur. Wurzburg fór svo á vítalínuna og kláraði leikinn, 80-84 að endingu. Alba hefur unnið og tapað jafnmörgum leikjum þegar 22 umferðir af 34 eru búnar, liðið situr í níunda sæti deildarinnar. Martin endaði leikinn með tíu stoðsendingar og þrjú stig. Jhivvan Jackson í liði Wurzburg var lang stigahæstur með 39 stig. Tryggvi og félagar báru sigur úr býtum Tryggvi spilaði 25 mínútur og endaði leikinn með þrjú stig, fjögur fráköst og eina stoðsendingu.Vísir/Getty Miðherjinn Tryggvi Hlinason var í byrjunarliði Bilbao, sem vann 91-88 gegn Granada í 23. umferð spænsku úrvalsdeildarinnar. Bilbao situr í þrettánda sæti af átján eftir 24 umferðir spilaðar.
Þýski körfuboltinn Mest lesið Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fannst látinn í hótelherbergi sínu Sport Hélt áfram að keppa þótt að kærastan lægi meðvitundarlaus í gólfinu Sport EM í dag: Of langt gengið að kalla mig nautheimskan Fótbolti Rekinn sextán mánuðum eftir skandalinn Formúla 1 „Heimskuleg spurning og dónaleg“ Fótbolti Landsliðsþjálfaranum létt og spenna í hópnum Sport „Áður en ég yfirgef þennan heim vil ég stjórna Íslandi” Fótbolti Landsliðskona tryggir sér 993 milljóna skósamning Fótbolti Ein stærsta stjarna NFL fær að heyra það: Þú ert feitur Sport Fleiri fréttir Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Flagg fer til Dallas Boston Celtics losar sig við annan lykilmann úr meistaraliðinu Valskonur fá fyrrum Íslandsmeistara til liðsins Vildi fleiri mínútur og stærra hlutverk Boston Celtics sparar sér fimm milljarða í lúxusskatt Sjá meira