Lukkuhjól hlaðið vinningum á opnun Raflands Rafland 12. mars 2025 11:02 Rafland opnaði endurbætta og glæsilega verslun í Síðumúla 2 á dögunum og fagnar með pompi og prakt yfir helgina. Rax Haldið verður upp á opnun endurbætts Raflands í Síðumúla 2 dagana 12. til 15. mars.
Starfsfólk tekur fagnandi á móti gestum dagana 12. til 15. mars og á staðnum verður hægt að snúa lukkuhjóli sem gefur vinning í hverjum snúning. Þáttakan gildir einnig í stóra gjafaleikinn en þar er hægt að vinna KitchenAid hrærivél eða Sonos hljóðstöng. Í tilefni opnunarinnar eru glæsileg opnunartilboð í gildi til 15. mars og allar eru vörur á 10-30% afslætti. Á tilboði má finna sjónvörp, hrærivélar, hljómtæki og heimilistæki frá hágæða vörumerkjum eins og LG, KitchenAid, Sonos, Samsung og fleiri þekktum stórframleiðendum á heimilis- og raftækjamarkaðnum. Hægt er að gera góð kaup á sjónvörpum á tilboðsdögunum í Raflandi. Allar vörur á einum stað Verslunin, sem áður var skipt í tvær deildir, heimilistækjadeild í Síðumúla 4 og sjónvarps-og raftækjadeild í Síðumúla 2, hefur nú sameinað báðar deildir í eina stóra, bjarta og glæsilega verslun og fengið allsherjar yfirhalningu. Rýmið hefur verið teppalagt að nýju, deildir endurskipulagðar, vöruúrvalið uppfært og hillueiningar endurnýjaðar. Nýja rýmið er allt hið glæsilegasta, ný teppi á gólfum og nýjar innréttingar. Í Raflandi er lögð áhersla á sérhæfða þjónustu og þar starfar reynslumikið starfsfólk með margra ára þekkingu á vöruúrvalinu. Því er tilvalið að heimsækja verslunina til þess að fá vandaða ráðgjöf þegar uppfæra á tækjakost heimilisins. Verið hjartanlega velkomin í endurnýjað og enn betra Rafland. Starfsfólk veitir vandaða ráðgjöf og kjörið að nýta sér sérþekkingu þeirra við val á raftækjum til heimilisins. Glæsilegt úrval heimilistækja er að finna í hillum verslunarinnar. Verslunin er nú öll í sama rými en var áður í Síðumúla 4 og 2.
Verslun Hús og heimili Mest lesið Áttatíu milljóna gjaldþrot Heimabakarís á Húsavík Viðskipti innlent „Erum bara að hætta þeirri starfsemi sem hefur gengið illa“ Viðskipti innlent Vilja taka yfir Play Viðskipti innlent Bolabítur á buxnaskálm: Fjöldi „kerfisfræðinga“ að misnota veikindaréttinn Atvinnulíf Bílastæðafyrirtæki fá á baukinn Neytendur Pála ráðin kynningarfulltrúi BHM Viðskipti innlent Boða komu HBO Max til landsins á ný Viðskipti innlent Bjarki og Axel Valdemar nýir forstöðumenn hjá atNorth Viðskipti innlent Keyptu Brauðhúsið til að fara ekki á hausinn Viðskipti innlent Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Samstarf Fleiri fréttir Tímamótasamningar í íslensku sjónvarpi Topp fimm tólin í verkfærakistuna Yfir 20.000 viðskiptavinir og tíföldun gengis á fimm árum Topplúgan kom á óvart á annars praktískum ferðatrukk Hálf öld af ástríðu og kappsemi – Bílabúð Benna fagnar 50 ára afmæli Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2025 - kosning Þjónustudagur Toyota Greiðsluáskorun Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Sjá meira