Sagan skrýtna af nafngift Air Atlanta-flugfélagsins Kristján Már Unnarsson skrifar 2. mars 2025 07:57 Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Air Atlanta, segir söguna af því hvernig nafn félagsins varð til á hótelherbergi í Liechtenstein. Egill Aðalsteinsson „Þessi er bara númer eitt. Ábyggilega með því besta sem hefur verið framleitt,“ segir einn reynslumesti flugvirki Icelandair, Kristján Þór Svavarsson, um Boeing 757-þotuna.
Flugútrás Íslendinga í gegnum áratugina, flugnýlendan í Lúxemborg, einstakur sess Boeing 757-þotunnar í samgöngusögu Íslands, Airbus-þotur í rekstri íslenskra flugfélaga og flugsamfélagið á Akureyri eru meðal þess sem fjallað er um í næstu þáttaröð Flugþjóðarinnar á Stöð 2. Viðfangsefni þáttanna er flugstarfsemi Íslendinga en meðal fárra þjóða skipar flugið jafn stóran sess í samfélaginu, bæði sem atvinnuvegur og áhugamál. „Við erum eitt örfárra fyrirtækja í heiminum sem er með starfsemi í sjö heimsálfum,“ segir Árni Hermannsson, framkvæmdastjóri Loftleiða Icelandic, leiguflugsarms Icelandair, en félagið flýgur meira að segja á Suðurpólinn. Kristján Þór Svavarsson flugvirki hefur annast viðhald 757-vélanna frá því þær komu til Icelandair.Egill Aðalsteinsson Í fyrsta þætti þann 18. mars verður stiklað á stóru í alþjóðaútrás íslenskra flugfélaga, allt frá því Loftleiðir og Flugfélag Íslands hófu á árunum fyrir 1950 að nýta DC-4 flugvélar sínar til leiguverkefna víða um heim. Ameríkuflug Loftleiða markaði þáttaskil í sókn Íslendinga inn á alþjóðlegan samkeppnismarkað í áætlunarflugi. Í framhaldinu byggðist upp íslensk flugnýlenda í Lúxemborg sem vatt upp á sig með stofnun Cargolux. Flugfreyjurnar María Björg Magnúsdóttir og Linda Hlín Þórðardóttir voru í áhöfninni sem kom með fyrstu Airbus-þotu Icelandair heim til Íslands.Egill Aðalsteinsson Flugfélag Guðna í Sunnu, Air Viking, varð fyrst íslenskra flugfélaga til að sinna pílagrímaflugi. Á grunni þess reis Arnarflug og síðar einnig Air Atlanta og Íslandsflug sem öll áttu eftir að verða umsvifamikil á alþjóðlegum leiguflugsmarkaði. „Ef hótel uppi í Ölpunum gæti heitið Atlanta þá væri það ágætt á flugfélag líka,“ segir Arngrímur Jóhannsson, stofnandi Air Atlanta, en í þættinum segir hann skrýtna sögu af því hvernig nafn félagsins kom til. Fyrsta þáttaröð Flugþjóðarinnar var frumsýnd síðastliðið haust og má nálgast alla þættina í streymisveitu Stöðvar 2.
Flugþjóðin Fréttir af flugi Icelandair Play WOW Air Air Atlanta Boeing Airbus Keflavíkurflugvöllur Reykjavíkurflugvöllur Akureyrarflugvöllur Lúxemborg Tengdar fréttir Þegar við tölum um íslenskt flugævintýri þá er það í dag „Miðað við stærð þjóðar þá erum við með mjög marga flugmenn á Íslandi og gríðarlega mikinn flugrekstur,“ segir Sigrún Bender, flugstjóri hjá Icelandair, í viðtali í þáttaröðinni Flugþjóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 næstkomandi mánudagskvöld 2. september. 31. ágúst 2024 12:44 Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu „Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. 10. október 2024 10:50 Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans. 23. september 2024 21:45 Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15. september 2024 07:27 Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan. 1. september 2024 23:00 Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Fleiri fréttir Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Sjá meira
Þegar við tölum um íslenskt flugævintýri þá er það í dag „Miðað við stærð þjóðar þá erum við með mjög marga flugmenn á Íslandi og gríðarlega mikinn flugrekstur,“ segir Sigrún Bender, flugstjóri hjá Icelandair, í viðtali í þáttaröðinni Flugþjóðin, sem hefur göngu sína á Stöð 2 næstkomandi mánudagskvöld 2. september. 31. ágúst 2024 12:44
Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu „Þetta er dálítið magnað hvað þú rekst á Íslendinga víða í þessum alþjóðlega flugrekstri. Þeir eru eiginlega út um allt. Þú rekst á Íslendinga ótrúlega víða,“ segir Baldvin Már Hermannsson, forstjóri Air Atlanta. 10. október 2024 10:50
Forréttindi fyrir fámenna þjóð að hafa jafn öflugar flugsamgöngur Uppbygging Keflavíkurflugvallar sem tengimiðstöðvar hefur fært Íslendingum mikla hagsæld og lífsgæði og eru brottfarir í flugi frá Íslandi til Norður-Ameríku núna fleiri en frá öllum hinum Norðurlöndunum til samans. 23. september 2024 21:45
Koma fyrstu þotunnar einn af hápunktum flugsögu Íslands Koma Gullfaxa, fyrstu þotunnar, er einn af hápunktum flugsögu Íslendinga. Í þættinum Flugþjóðin á Stöð 2 rifja fyrrverandi starfsmenn Flugfélags Íslands upp þætti úr sögu félagsins, þar á meðal daginn þegar Boeing 727-þotan lenti á Reykjavíkurflugvelli í júnímánuði 1967. 15. september 2024 07:27
Akureyringar segja vöggu flugsins vera fyrir norðan Flugáhugamenn sunnan og norðan heiða hafa löngum togast á um það hvort vagga íslensks flugs eigi að teljast vera í Reykjavík eða á Akureyri. Þótt fyrsta flugvélin á Íslandi hafið tekið flugið í Reykjavík halda Akureyringar því gjarnan fram að vagga flugsins sé í raun fyrir norðan. 1. september 2024 23:00