Ég stend með kennurum Ögmundur Jónasson skrifar 14. febrúar 2025 08:00 Menntamálaráðherra var sagður hafa látið þau orð falla að launagreiðendum bæri að koma betur til móts við kennara. Á Alþingi varð við þessar fréttir mikið írafár og spurði stjórnarandstaðan sameinuð hverju sú ósvífni sætti að ráðherra blandaði sér í kjaradeiluna. Nú vill hins vegar svo til að hið opinbera á aðild að þessari deilu og hlýtur þá einnig að axla sinn hluta af ábyrgðinni á því að hún leysist. Borið var upp á Ásthildi Lóu þórsdóttur, menntamálaráðherra, að hún hefði lagt til tiltekna viðbótarlaunahækkun til kennara. Það mun hún ekki hafa gert en vildi hins vegar að viðsemjendur kennara horfðust í augu við fyrri skuldbindingar sínar. Þetta var hárrétt af hennar hálfu. Ábyrgð ríkis og sveitarfélaga Það er nefnilega hið opinbera sem ber ábyrgð á þessari kjaradeilu ekkert síður en kennarar og meira að segja miklu fremur. Þegar samtök opinberra starfsmanna - illu heilli - sömdu um skerðingu lífeyrisréttinda árið 2016 þá átti það að fylgja sem hluti af þeim samningi að launakjör yrðu jöfnuð við „sambærilegar stéttir“ á almennum markaði. Eftirgjöf í lífeyrisréttindum Þetta var ekki samkvæmt því sem ég hefði helst kosið. Langt í frá! Aldrei hefðu opinberir starfsmenn átt að semja af sér lífeyriskjörin. En þetta var engu að síður gert en fyrir skerðinguna átti að koma greiðsla. Og þá gildir hið fornkveðna: Orð skulu standa. Eitt hafa kennarar sér líka til málsbóta. Launamannahreyfingin trúði því almennt á þessum tíma að til sögunnar væri komin allsherjarlausn á kjaraviðræðum sem hét SALEK (Samstarf um launaupplýsingar og efnahagsforsendur kjarasamninga). Kennarasambandið sagði sig reyndar frá því samkomulagi en samkvæmt því ætluðust stærstu samningsaðilarnir á launamarkaði, beggja vegna borðs, til þess að þeir réðu öllu um örlög kennara og annarra stétta. Svikin hefjast með í SALEK Í SALEK samkomulaginu segir meðal annars: “Fastlaunahópum sé tryggð jafnstaða á við markaðslaunahópa með tengingu við launaskrið á vinnumarkaði. “ Þetta átti að eiga við um kennara en hefur hins vegar ekki gilt að fullu eins og lofað var.SALEK samkomulagið frá í október 2015 var og er tilraun til að afnema kjarabaráttu í landinu. Þetta samkomulag var til þriggja ára en engu að síður ætlað sem viðræðumódel til framtíðar. Samkomulagið gerir ráð fyrir vélrænum niðurstöðum í samræmi við þarfir stórfyrirtækjanna sem þessa dagana eru að greiða eigendum sínum milljarða á milljarða ofan í arð. Í SALEK segir eftirfarandi: Leiðandi samningsaðilar geri kjarasamninga innan marka efnahagslegs svigrúms og með hliðsjón af samkeppnisstöðu útflutningsgreina. Aðrir kjarahópar, smáir sem stórir, skuldbindi sig til að vinna innan þessa efnahagslega svigrúms. Fastlaunahópum sé tryggð jafnstaða á við markaðslaunahópa með tengingu við launaskrið á vinnumarkaði. Embætti ríkissáttasemjara verði eflt og skerpt á efnahagslegri ábyrgð þess við úrlausn kjaradeilna. Laglaus kór Í anda þessa “samkomulags” tjá menn sig nú án afláts, aðallega frá Samtökum atvinnulífsins, stjórnmálaflokkum á Alþingi, og viti menn einnig af hálfu félaga innan Alþýðusambands Íslands. Þarna er hávær kór en ekki lagviss. Það er eins og allir hafi gleymt því að í SALEK textanum frá 2015 er sérstaklega vísað til þess að “samkomulag um jöfnun lífeyrisréttinda á opinberum og almennum markaði” liggi fyrir. Það samkomulag byggði á því að sérstakar launahækkanir kæmu í stað lífeyrisskerðinga! Minnir á liðna tíma Þetta minnir á liðna tíð þegar okkur starfsmönnum Ríkisútvarpsins og síðar félögum í BSRB - en á báðum stöðum hafði ég viðkomu - var sagt að hafa okkur hæg því við skyldum hlíta því sem aðrir semdu um fyrir okkar hönd. Okkur þótti hins vegar á þeim tíma stundum lítið til um þá samninga. Við höfðum að sjálfsögðu fullan rétt á því að hafa þá skoðun í ljósi þess að þeir voru einnig ætlaðir okkur! Á sama hátt hafa kennarar nú fullan rétt á því að neita því að samþykkja þá samninga sem ætlast er til að þeir undirgangist. Kennarar eru í reynd að segja það eitt að þeir áskilji sér rétt til að semja um eigin kjör á eigin forsendum. Gamalt og gott fyrirkomulag en svo féll Samfylkingin á prófinu Þegar ég steig inn í kjarabaráttuna upp úr 1980 var við lýði nokkuð gott kerfi hjá hinu opinbera. Samið var um almennar launabreytingar sameiginlega undir regnhlíf BSRB, en þar voru kennarar á þeim tíma, en síðan tóku við sérkjarasamningar sem buðu upp á aðlögun að launaskriði en einnig uppstokkun að vissu marki. Leifar af þessu kerfi voru lengi við lýði. Þannig vorum við tilbúin við endurnýjun kjarasamninga árið 2008 að semja um almennar hækkanir en vildum svo launapotta sem gengju til kvennastétta. Það urðu óneitanlega vonbrigði þegar ráðherrar Samfylkingarinnar sem þá voru í ríkisstjórn með Sjálfstæðiflokki féllust ekki á þessa kröfu sem allir hópar innan BSRB – einnig karlastéttir á borð við lögreglu og toll – stóðu að. Þetta voru okkur mikil vonbrigði en þetta nefni ég til að minna á kosti kerfis sveigjanleikans sem við bjuggum við. Ósveigjanlegt miðstýrt kerfi hins vegar þar sem allir fá sömu lágu launahækkanirnar gengur út frá því að við séum nú þegar á réttum stað hvað varðar skiptingu milli atvinnurekenda og launafólks og í launum ólíkra stétta. Svo er ekki. Þegar slíkt kerfi er orðið vélrænt með vélfræðinga sem varðmenn eins og stefnt er að með SALEK þá er illa komið. Efling þá, kennarar nú Ég hef bundið vonir við þann baráttuanda sem á síðustu árum hefur á nýjan leik verið rudd braut inn í íslenska kjarabaráttu. Þar hef ég horft til baráttu Eflingar fyrir láglaunafólk í hótel- og veitingarekstri og starfsfólk á leikskólum svo dæmi sé tekið, og nú horfi ég til kennara. Tölum baráttu þeirra ekki niður, tölum hana upp. Því það er hún sem skiptir máli - baráttan - ekki tímabundnir ávinningar hversu góðir sem þeir kunna að vera. Ef atvinnurekendavaldinu með hjálp íhalds á Alþingi og reglustrikufólks í verkalýðshreyfingunni tekst að drepa baráttuna -slæva baráttuandann - þá er illt í efni. En nú vill svo til að kennarar ætla ekki að láta reka sig út í horn. Það er fagnaðarefni og þar lýsi ég fullri samstöðu með þeim. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður og ráðherra. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Ögmundur Jónasson Kennaraverkfall 2024-25 Kjaraviðræður 2023-25 Kjaramál Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Sá tapar sem fyrstur nefnir nasistana: gengisfelling orðsins „rasisti“ Birgir Finnsson Skoðun Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum Nótt Thorberg Skoðun Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar Gígja Sigríður Guðjónsdóttir Skoðun Þegar þeir sem segjast þjóna þjóðinni ráðast á hana Ágústa Árnadóttir Skoðun Heilbrigðiskerfið í bakkgír Ingibjörg Isaksen Skoðun Blóðrautt norðanáhlaup Snæbjörn Guðmundsson Skoðun Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð Ingólfur Gíslason Skoðun Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu Rakel Linda Kristjánsdóttir Skoðun Í vítahring stöðnunnar og úreldra vísinda Björn Ólafsson Skoðun Óttumst við það að vera frjálsar manneskjur í frjálsu landi? Arnar Þór Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Skref aftur á bak fyrir konur með endómetríósu Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Staða leikskólamála í Reykjanesbæ Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindaraðstoð: Kennarinn endurheimtir dýrmætan tíma Björgmundur Guðmundsson skrifar Skoðun Tökum höndum saman áður en það er of seint Karólína Helga Símonardóttir skrifar Skoðun PWC – Traustsins verðir? Björn Thorsteinsson skrifar Skoðun Rasismi útskýrir stuðning við þjóðarmorð Ingólfur Gíslason skrifar Skoðun Skuldin við jörðina: Kolefnisstjórnun skiptir sköpum Nótt Thorberg skrifar Skoðun Pólitískar kreddur á kostnað skattgreiðenda Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Þetta eru börnin sem ég hef áhyggjur af í skólakerfinu Rakel Linda Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Óttumst við það að vera frjálsar manneskjur í frjálsu landi? Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun Loftslagsváin bíður ekki Ívar Kristinn Jasonarson skrifar Skoðun Hvers vegna að kenna leiklist? Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Jóna Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Jafnt aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu fyrir öll Telma Sigtryggsdóttir skrifar Skoðun Svikin loforð í leikskólamálum Reykjanesbæjar Gígja Sigríður Guðjónsdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðiskerfið í bakkgír Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Blóðrautt norðanáhlaup Snæbjörn Guðmundsson skrifar Skoðun Í vítahring stöðnunnar og úreldra vísinda Björn Ólafsson skrifar Skoðun ,,Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir. Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.” (EB) Þorsteinn Sæmundsson skrifar Skoðun Við erum réttindalaus Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Raunir ríka fólksins og bænir þess Jónas Yngvi Ásgrímsson skrifar Skoðun Myglaða nestisboxið og gleymda sítrónan María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Talið við okkur áður en þið talið um okkur Ian McDonald skrifar Skoðun Björgunarleiðangur fyrir Heimsmarkmiðin Antonio Guterres skrifar Skoðun Átti ekki að klára dæmið í geðheilbrigðismálum? Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Tómstunda- og félagsfræðinemar harma ákvörðun Akureyrarbæjar Hópur nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ skrifar Skoðun Nefhjól á Austurvelli – Skiptir öryggi fólks á fjölmennasta svæði landsins ekki máli? Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir,Martin Swift skrifar Skoðun Óður til Sigga sjéní Ingvi Þór Georgsson skrifar Skoðun Álframleiðsla á Íslandi er ekki bara mikilvæg fyrir Ísland Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar Skoðun Miðjumoð í húsnæðismálum og áróður Viðskiptaráðs Jón Ferdínand Estherarson,Unnur Rán Reynisdóttir,Arnar Páll Gunnlaugsson skrifar Skoðun Örvæntingafullir endó-sjúklingar Diljá Mist Einarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun ,,Skildu rétt, hvar skórinn að þér kreppir. Skildu, hver í bönd þig hneppti og hneppir.” (EB) Þorsteinn Sæmundsson skrifar
Skoðun Tómstunda- og félagsfræðinemar harma ákvörðun Akureyrarbæjar Hópur nemenda í tómstunda- og félagsmálafræði við HÍ skrifar
Skoðun Nefhjól á Austurvelli – Skiptir öryggi fólks á fjölmennasta svæði landsins ekki máli? Daði Rafnsson,Kristján Vigfússon,Margrét Manda Jónsdóttir,Martin Swift skrifar
Skoðun Álframleiðsla á Íslandi er ekki bara mikilvæg fyrir Ísland Guðríður Eldey Arnardóttir skrifar
Skoðun Miðjumoð í húsnæðismálum og áróður Viðskiptaráðs Jón Ferdínand Estherarson,Unnur Rán Reynisdóttir,Arnar Páll Gunnlaugsson skrifar