Skoðun

Sam­einumst um stóru málin

Ingi Þór Hermannson skrifar

Ríkisstjórn sundurlyndis og stöðnunar síðustu 7 ára er loksins farin frá. Óvinsælasta ríkisstjórn frá upphafi mælinga. Flestum er ljóst hvernig hún skildi við. Vextir í hæstum hæðum og í innviðaskuldir hvert sem litið er. Samgöngumál, orkumál, heilbrigðismál, menntamál og málefni barna- og ungmenna eru öll á talsvert verri stað nú en þegar ríkisstjórnin tók við. Kostulegt er að hlusta á kosningaloforð þessara flokka fyrir þessar kosningar nú í ljósi þess að þau höfðu sjö löng ár til að koma þeim hlutum í verk sem þeir lofa nú.

Á morgun göngum við til kosninga sem geta skipt sköpum hvort stöðnun ríkir áfram eða hvort okkur Íslendingum tekst að snúa vörn í sókn og koma hreyfingu á hlutina.

Já, það er kominn tími til breytinga. Við verðum ekki alltaf sammála í öllu og það er í lagi, það er eðli stjórnmála. En sameinumst um stóru málin. Okkar góða samfélag þarf á því að halda að hér sé mynduð sterk ríkisstjórn með sterkt umboð fremur en samsuðu margra flokka með útþynntum sáttmála byggður á endalausum málamiðlunum.

Viðreisn hefur notið ánægjulegs meðbyrs í þeim fylgiskönnunum sem hafa verið birtar á síðastliðnum vikum. Viðreisn er líka sá stjórnmálaflokkur sem nýtur mests trausts þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu.

Ég vona þegar að talið verði upp úr kjörkössunum hafi þjóðin sent skýr skilaboð um að hún treysti Viðreisn best til að mynda ríkisstjórn út frá miðjunni. Viðreisn er skýr valkostur til þess að verða að leiðandi afli í nýrri ríkisstjórn og tilbúin til að verða hreyfiafl góðra verka.

Verka þar sem almannahagsmunir eru ofar sérhagsmunum, sem færa 115 milljarða árlega úr vaxtagreiðslum í uppbyggingu og taka á innviðaskuldum í samgöngumálum, orkumálum, heilbrigðismálum.

Stefna Viðreisnar er skýr í þessum efnum og Viðreisn býr yfir mannauð og þekkingu til að koma hreyfingu á hlutina. Ef þú vilt trúverðugt og traust afl við stjórnvölinn til að ná árangri í ríkisfjármálum til hagsbóta fyrir almenning hvet ég þig, lesandi góður, til að kynna þér stefnu Viðreisnar og veita Viðreisn afgerandi stuðning í komandi kosningum.

Breytum þessu!

Höfundur er áhugamaður um bætt samfélag og situr í 7. sæti Viðreisnar í Suðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×