Atvinnuleysi tvöfaldaðist í september Kjartan Kjartansson skrifar 23. október 2024 09:16 Hlutfall starfandi lækkaði aðeins á milli mánaða í september og var rúm 79 prósent. Vísir/Vilhelm Hlutfall atvinnulausra tvöfaldaðist á milli mánaða í september og var 5,2 prósent þegar leiðrétt hefur verið fyrir árstíðarbundnum sveiflum. Vinnumálastofnun segist ekki sjá sömu þróun í sínum gögnum.
Alls voru um 12.700 manns á aldrinum 16-74 ára atvinnulausir í september samkvæmt árstíðarleiðréttum niðurstöðum vinnumarkaðsrannsóknar Hagstofunnar sem voru birtar í morgun. Mælt atvinnuleysi var 4,6 prósent en 5,2 árstíðarleiðrétt. Hlutfall starfandi í mánuðinum var 79,2 prósent og lækkaði um 2,3 prósentustig á milli mánaða. Atvinnuþátttaka var 83,5 prósent og breyttist nánast ekkert frá ágúst til september. Vinnumálastofnun sendi frá sér tilkynningu um tölur Hagstofunnar eftir að þær birtust í morgun þar sem mánaðarskýrsla hennar sýnir ekki sömu þróun atvinnuleysis. Stofnanirnar tvær voru þar sagðar nota mismunandi aðferðir sem gætu skýrt hvers vegna þær fengju út ólíkar niðurstöður. Aðferð Vinnumálastofnunar byggist á því að reikna meðalfjölda atvinnulausra á skrá yfir mánuðinn, þá eingöngu þá sem eiga rétt á atvinnuleysisbótum og reikna atvinnuleysi út frá því. Hagstofan byggir sínar tölur á vinnumarkaðskönnun þar sem haft sé samband við úrtak úr Þjóðskrá. „Hjá Vinnumálastofnun sjáum við enn sem komið er engin skýr merki um að atvinnuleysi sé að aukast umfram eðlilegar árstíðarsveiflur,“ segir í tilkynningu Vinnumálstofnunar sem segist fylgjast áfram með þróun næstu mánaða. Fréttin var uppfærð eftir að Vinnumálastofnun gaf út tilkynningu um tölur Hagstofunnar.
Vinnumarkaður Mest lesið Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Viðskipti innlent Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Yfir hundrað prósenta munur á verði fyrir umfelgun Neytendur 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Viðskipti innlent Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa Viðskipti innlent Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Sjá meira