Greinir á hvort námið hafi verið lagt niður degi eftir banaslys Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. ágúst 2024 11:56 Íris Ragnarsdóttir Pedersen, meðstjórnandi í Félagi fjallaleiðsögumanna og kennari við FAS. Vísir/Vilhelm Kennari í jökla- og fjallaleiðsögn segir að menntamálaráðuneytið hafi tilkynnt Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu (FAS) degi eftir banaslys í íshelli að nám í greininni verði lagt niður um áramótin. Hún segir að menntaðir og reyndir jöklaleiðsögumenn hefðu aldrei farið inn í íshellinn á sunnudaginn. Ráðuneytið hafnar því að hafa lagt til að námið yrði lagt niður.
Samkvæmt heimildum fréttastofu voru fjallaleiðsögumennirnir tveir sem störfuðu á Breiðamerkurjökli er banaslys varð á sunnudaginn með afar litla reynslu af jöklaleiðsögn og uppfylltu ekki kröfur Vatnajökulsþjóðgarðar. Íris Ragnarsdóttir Pedersen, meðstjórnandi í Félagi fjallaleiðsögumanna og kennari við FAS, segir að reyndir og vel menntaðir leiðsögumenn hefðu ekki farið inn í íshellinn við þær aðstæður sem voru. Greinir á um hvort að námið hafi verið fellt niður Hún tekur fram að það sé einkar kaldhæðnislegt að tilkynnt hafi verið að fjármagn frá menntamálaráðuneytinu til námsins verði skert degi eftir banaslysið. „Í ljósi atburða síðustu daga langar mig að koma þessu á framfæri. Á sama tíma og ráðherrar tala um að auka öryggi í ferðaþjónustunni og að tryggja eigi öryggi ferðamanna, á að leggja niður eina nám landsins í jökla- og fjallaleiðsögn,“ sagði Íris um málið í Facebook-færslu. Hjalti Andrason, upplýsingafulltrúi hjá mennta- og barnamálaráðuneytinu, segir þessar staðhæfingar Írisar ekki vera réttar. „Við höfum hvorki heimildina til að leggja niður eitthvað nám á vegum framhaldsskóla, þeir taka ákvörðun um það sjálfir, né höfum við lagt það til. Þetta er bara ekki rétt,“ segir hann. Íris sakar ríkisstjórnina um tvískinnung. „Við erum slegin yfir því. Bæði vegna tímasetningu og því að ráðherrar tala um aukið öryggi og aukna fagmennsku í greininni og vilja svo ekki greiða fyrir það að fólk mennti sig í fjalla- og jöklaleiðsögn.“ „Annars heldur þetta villta vestur áfram“ Hún bætir við að það eina sem geti komið í veg fleiri slys í íshellum sé að leiðsögumenn séu menntaðir og með reynslu af greininni til að geta metið aðstæður að hverju sinni. „Til þess að geta haft þá dómgreind þá þarftu að hafa farið í gegnum ákveðna menntun og þarft að vera búinn að vera í þessum bransa í fleiri en nokkrar vikur. Annars tekst þetta ekki og annars heldur þetta villta vestur áfram.“ Annar ísbogi hefði getað hrunið líka Íris er í björgunarsveit á svæðinu og var með þeim fyrstu á vettvang. „Við hlaupum inn í helli og komumst að því að við höfðum farið undir svona ísboga sem við vildum ekki fara undir aftur. Lokum þeim inngangi til að koma í veg fyrir að fleiri fara þar undir. Sá hefði getað hrunið þar samdægurs líka. Þegar við komum á staðinn er einn slasaður og annar látinn og enn þá viðskiptavinir inn í hellinum og auðvitað leiðsögumennirnir í miklu áfalli.“ Hafna því að hafa lagt námið niður Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins áréttar mennta- og barnamálaráðuneytið að ráðuneytið hafi ekki lagt til eða krafist þess að fjallamennskunám Framhaldsskólans í Austur-Skaftafellssýslu (FAS) verði lagt niður. „Mennta- og barnamálaráðuneytið leggur ekki niður nám í framhaldsskólum landsins. Framhaldsskólar taka sjálfir ákvörðun um sitt námsframboð. Ráðuneytið hefur átt samtal við skólann um rekstur hans og rætt leiðir til að tryggja áframhaldandi námsframboð, þ.m.t. á fjallamennskunámi,“ segir í tilkynningunni. Stöðva fjármagn til námsins Frétt uppfærð klukkan 13:43. Vísir hefur reynt að ná sambandi við Lind Völundardóttur, skólameistara FAS, ítrekað í dag án árangurs til að fá á hreint hvort menntamálaráðuneytið eða skólinn sjálfur standi á bak við það að námsbrautin verði lögð niður. Íris segir í samtali við Vísi að í raun sé menntamálaráðuneytið að leggja niður námið með því að skera á fjármagn frá ríkinu til námsbrautarinnar. „Þau segja að við fáum ekki fjármagn til að reka þetta fram yfir áramót, svo hvað er það annað en að leggja það niður? Þetta eru fáránleg vinnubrögð hjá ráðuneytinu. Þau segja bara þið fáið ekki fjármagn til að halda áfram eftir áramót. Bara á þessa námsbraut. Þau eru bara að segja einhver önnur orð en þau eru alveg jafn mikið að leggja það niður ef þau ætla ekki að fjármagna það.“ Spurð hvort að það sé engin leið til að halda náminu áfram þrátt fyrir að menntamálaráðuneytið skeri niður fjármagn til námsins svarar Íris því neitandi. „Skólinn er ríkisrekinn. Í fullu námi sem er 60 einingar er að hámarki hægt að taka 150 þúsund í skólagjöld fyrir árið. Við megum ekki taka hærri skólagjöld og því þurfum við stuðning frá ráðuneytinu því þetta er dýrara nám en hefðbundið bóknám því ég einn kennari get ekki farið með 30 manns á skriðjökul og tryggt að allir séu öruggir. Við verðum að vera með fleiri kennara.“
Vatnajökulsþjóðgarður Ferðamennska á Íslandi Slys á Breiðamerkurjökli Mest lesið Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Innlent Virðast ekki hafa gert ráð fyrir að sundið myndi lokast Erlent Bandarísk herflugvél fórst í Írak Erlent Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Innlent Ekkert lát á árásum Ísraela og hvatt til rýmingar á stóru svæði Erlent Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Innlent Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Innlent Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Innlent Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Innlent Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Innlent Fleiri fréttir Davíð Oddsson borinn til grafar í dag Rændi verslun vopnaður hníf Rannsaka hvernig tíðir og meðganga geta haft áhrif á Parkinson í konum Sporðamælingar í sjálfboðavinnu í 40 ár: Brasið alltaf dálítið eftirsóknarvert Lentu í harkalegum árekstri augnablikum eftir nauðgun Áætla að 188 frelsissviptir útlendingar hefðu verið vistaðir í nýja úrræðinu Sigríður Ingibjörg ráðin nýr framkvæmdastjóri BSRB Á annan tug ferðalanga fastir á Holtavörðuheiði Íslendingar skipi sér í hóp með öfgaríkjum Umdeild málsókn, sviptingar í fjölmiðlum og verðhækkanir Þó nokkur snjóflóð fallið og loka Flateyrarvegi í kvöld Fjögurra vikna gæsluvarðhald eftir hópárás Stunginn með skrúfjárni við Steinhellu Sýkna Landsbankann af kröfum Quang Le Kristinn ekki bænheyrður Landsréttur tók ekki heldur mark á lygilegri frásögn Fimm ár fyrir stangir fullar af amfetamíni Mátti kalla fjárfesta „nútíma þrælahaldara“ Umsókn Miðflokksins í klúbb evrópska íhaldsmanna ekki svarað Ríkið sýknað vegna dauða ungrar konu í átökum við lögreglu Samtal hafið um Ísafjarðarflug Ferðamenn valdi fleiri slysum en ölvaðir eða ungir ökumenn Miðflokkur kynnir sex efstu í Garðabæ Rétt að leita svara hjá Alþjóðadómstólnum og óttast ekki afleiðingar Norðanhríð fyrir vestan og Ísland í máli gegn Ísrael Þau eru á lista Samfylkingarinnar í Kópavogi Sex snjóflóð fallin og veginum lokað Guðmundur Elís ákærður fyrir að fara með stúlku um borð Ísland tekur þátt í máli gegn Ísrael Lyfin stundum of dýr en ekki hægt að stökkva á ódýrasta kostinn Sjá meira