Play í Kauphöllina Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 6. ágúst 2024 14:59 Einar Örn Ólafsson tók við sem forstjóri Play í mars. Einar Árnason Kauphöllin hefur samþykkt umsókn flugfélagsins Play um töku hlutabréfa félagsins til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hlutabréf félagsins verða tekin til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland á fimmtudaginn en þau hafa hingað til verið á First north markaðnum.
Þetta kemur fram í tilkynningu Kauphallarinnar. Fram kom í afkomutilkynningu frá Play í febrúar að undirbúningur við að skrá félagið í Kauphöllina væri hafin. Ráðgert væri að yfirfærslan gæti átt sér stað á fyrri helmingi ársins. Það náðist ekki en nú er ljóst að Play færist í Kauphöllina á fimmtudag. Miklar skipulagsbreytingar hafa orðið hjá Play undanfarna mánuði. Forstjóraskipti urðu í apríl og þrír framkvæmdastjórar hafa horfið á braut. Play tapaði milljarði króna á öðrum ársfjórðungi en Einar Örn Ólafsson, forstjóri og stór hluthafi í Play, segir stöðu flugfélagsins trausta. Vísaði hann í lausafjárstöðu upp á sjö milljarða íslenskra króna. Munurinn á First North og Aðalmarkaði liggur meðal annars í regluverkinu. Meiri kröfur eru gerðar til félaga á Aðalmarkað. First North er ætlaður minni og meðalstórum fyrirtækjum. Fyrirtæki á Aðalmarkaði þurfa að hafa að minnsta kosti þriggja ára rekstrarsögu og gerð er krafa um dreifðara eignarhald. Fjórðungur hlutafjár fyrirtækja á Aðalmarkaði þurfa að vera í eigu almennra fjárfesta.
Play Kauphöllin Mest lesið Taka umdeilda samninga til skoðunar Viðskipti innlent Netflix segir upp þúsund starfsmönnum Viðskipti erlent TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Viðskipti innlent Úrelt kerfi: „Erum föst í því að allir verji sitt svæði og sitt fjármagn“ Atvinnulíf Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Viðskipti innlent Starfsmaður OpenAI rekinn fyrir njósnir Viðskipti erlent Ný tækni gjörbreytir öryggi heimila og fyrirtækja Samstarf Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Viðskipti innlent Ný bók varpar ljósi á réttindabrot og skaðlega vinnustaðamenningu Samstarf Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Verðbólgan verði þrálát út árið Fimmtán milljónir til fjölmiðla á landsbyggðinni Taka umdeilda samninga til skoðunar TGI Fridays lokað og hann innsiglaður Nú hægt að sækja um að ráðstafa séreignarsparnaði á húsnæðislán Nældu í lykilfólk hjá Nóa Siríus og Bauhaus Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Sigríður Hrefna hættir hjá Nóa Siríus Loðnumælingar töluvert undir væntingum Vilja setja 25 ára þak á verðtryggð lán frá áramótum Eigendur Kaffi Laugalækjar færa út kvíarnar Ragnar Jónasson til liðs við Logos Hlaðvarparar segja fjölmiðlanefnd stunda glassúrgerð Íslandsbanki varar við svikasímtölum Öll tilboð yfir kostnaðaráætlun Húsleit hjá Ölgerðinni Ráðinn framkvæmdastjóri rekstrar hjá Keahótelum Hafi ekki sérhagsmuni að leiðarljósi um skráningarskyldu fjölmiðla Skims opnar í Kringlunni Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Sjá meira