Viðskipti innlent

Fetar í fót­spor forverans og vildi einn lækka vexti

Árni Sæberg skrifar
Arnór Sighvatsson er settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.
Arnór Sighvatsson er settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika.

Arnór Sighvatsson, settur varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, vildi einn lækka stýrivexti á síðasta fundi peningastefnunefndar. Forveri hans í starfi hafði einn viljað lækka vexti á tveimur fundum þar á undan.

Peningastefnunefnd tilkynnti þann 8. maí síðastliðinn að hún hefði ákveðið að halda stýrivöxtum óbreyttum í 9,25 prósentum. Það gerir það að verkum að vextir munu hafa verið 9,25 prósent í heilt ár þegar nefndin kemur næst saman þann 21. ágúst næstkomandi.

Vaxtahækkanir hafi haft áhrif en ekki tímabært að lækka

Í fundargerð peningastefnunefndar, sem gefin var út í gær, segir að nefndin hafi talið ljóst á að áhrif vaxtahækkana síðasta árs héldu áfram að koma fram með skýrum hætti í efnahagslífinu. Hins vegar væru ekki komnar fram nægjanlega skýrar vísbendingar um að verðbólguþrýstingur væri að hjaðna með ásættanlegum hætti. Þá sérstaklega væri áhyggjuefni að verðbólguvæntingar væru enn vel yfir markmiði. 

Af þeim sökum fæli það í sér meiri áhættu að lækka vexti of snemma en að hafa þá óbreytta enn um sinn. Mikilvægt væri einnig að vaxtalækkun hæfist á trúverðugum tímapunkti þar sem jafnvel tiltölulega lítil lækkun meginvaxta gæti haft mikil áhrif á væntingamyndun þar sem hún markaði upphaf vaxtalækkunarferilsins. 

Framhaldið myndi ráðast af því hvernig verðbólga og verðbólguvæntingar þróast næstu misseri þar sem mikilvægt væri að viðhalda hæfilegu aðhaldsstigi.

Með hliðsjón af umræðunni hafi seðlabankastjóri lagt til að vextir bankans yrðu óbreyttir. Ásgeir Jónsson, Rannveig Sigurðardóttir, Herdís Steingrímsdóttir og Ásgerður Ósk Pétursdóttir hafi greitt atkvæði með tillögunni.

Vildi taka hækkun húsnæðis út fyrir sviga

Arnór Sighvatsson hafi hins vegar greitt atkvæði gegn tillögunni og viljað lækka vexti um 0,25 prósentur.

Hann hafi talið að hætta væri á að taumhald peningastefnunnar yrði of þétt á næstunni. Í ljósi þess að hækkun húsnæðisliðar vísitölunnar væri að nokkru leyti sprottin af framboðsskelli, sem hefði aðeins tímabundin áhrif á vísitöluna, væri eðlilegt að horfa framhjá nýlegri hækkun hans að mestu leyti. 

Undirliggjandi raunvextir væru því hærri en almennt væri reiknað með og myndu halda áfram að hækka yfir sumarmánuðina. Af þessum sökum vænti hann þess að draga myndi úr umsvifum á húsnæðismarkaði fyrr en almennt væri búist við sem myndi koma fram í hraðari hjöðnun verðbólgu. 

Nefndin hafi aftur á móti talið auknar líkur á því að núverandi aðhaldsstig væri hæfilegt til þess að koma verðbólgu í markmið innan ásættanlegs tíma. Mótun peningastefnunnar myndi sem fyrr ráðast af þróun efnahagsumsvifa, verðbólgu og verðbólguvæntinga.

Sammála forvera sínum

Talsverða athygli vakti þegar Gunnar Jakobsson, þáverandi varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, sagði starfi sínu lausu í byrjun apríl síðastliðins. 

Hann hafði verið nokkuð á skjön við meirihluta peningastefnunefndarinnar undanfarin ár. Hann vildi til að mynda hækka stýrivexti meira en meirihlutinn á sínum tíma. Þá greiddi hann gegn ákvörðun meirihlutans um að halda vöxtum óbreyttum í febrúar og mars á þessu ári og vildi lækka þá um 0,25 prósent.

Arnór hefur nú sýnt fram á það á sínum fyrsta fundi peningastefnunefndar að vaxtahaukur kom ekki í stað vaxtadúfu.


Tengdar fréttir

Vildi aftur einn lækka vexti

Svo virðist sem Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, sé á öndverðum meiði við aðra meðlimi peningastefnunefndar. Annan fund nefndarinnar í röð var hann sá eini sem greiddi atkvæði gegn tillögu seðlabankastjóra um að halda stýrivöxtum óbreyttum.

Ósammála nefndinni og biðst lausnar

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur fallist á beiðni Gunnars Jakobssonar um lausn úr embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika í Seðlabanka Íslands. Gunnar hefur einn viljað lækka stýrivexti á tveimur fundum peningastefnunefndar í röð. Hann hefur þegið starfstilboð erlendis frá.

Vildi einn lækka stýri­vexti

Ekki voru allir meðlimir peningastefnunefnda Seðlabankans sammála um næstu skref á síðasta fundi nefndarinnar. Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika vildi lækka stýrivexti. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×