Fótbolti

Sjáðu Hummels gera það sem Mbappé og fé­lögum tókst ekki

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mats Hummels fagnar sigri Borussia Dortmund á Paris Saint-Germain í París í gærkvöldi ásamt félögum sínum í þýska liðinu.
Mats Hummels fagnar sigri Borussia Dortmund á Paris Saint-Germain í París í gærkvöldi ásamt félögum sínum í þýska liðinu. AP/Frank Augstein

Mats Hummels tryggði Borussia Dortmund 1-0 sigur í seinni leiknum á móti Paris Saint-Germain í undanúrslitum Meistaradeildarinnar í gærkvöldi.

Dortmund vann þar með samanlagt 2-0 og mætir annað hvort Real Madrid eða Bayern München í úrslitaleiknum á Wembley.

Dortmund hefur ekki komist í úrslitaleik Meistaradeildarinnar síðan 2013 þegar liðið mætti einmitt Bayern á Wembley en úrslitaleikurinn í ár fer einnig fram á Wembley leikvanginum.

Mats Hummels skoraði eina markið í gær þegar hann skallaði hornspyrnu Julian Brandt í markið. Hummels var einmitt í liði Dortmund sem spilaði í úrslitaleiknum fyrir ellefu árum. Hér fyrir neðan má sjá sigurmarkið.

Parísarliðið var i stórsókn mest allan leikinn og Kylian Mbappé fékk góð færi eins og fleiri félagar hans. Fjögur skot í stöng eða slá en allt kom fyrir ekki.

Langþráður draumur Paris Saint-Germain eftir sigri í Meistarardeildinni ætlar seint að rætast og nú er ljóst að Mbappé vinnur hana ekki með félaginu enda á förum suður til Real Madrid.

Klippa: Sigurmark Dortmund í París



Fleiri fréttir

Sjá meira


×