Innlent

Halla Hrund tvö- til þre­faldar fylgi sitt

Heimir Már Pétursson og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa
Halla Hrund Logadóttir margfaldar fylgi sitt milli kannana samkæmt nýjustu könnun Prósents.
Halla Hrund Logadóttir margfaldar fylgi sitt milli kannana samkæmt nýjustu könnun Prósents. Grafík/Sara

Halla Hrund Logadóttir tvö til þrefaldar fylgi sitt milli kannana á fylgi forsetaframbjóðenda og virðist helst höggva í fylgi Katrínar Jakobsdóttur. Enn er þó ómarktækur munur á fylgi Katrínar og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt könnun Prósents fyrir Morgunblaðið sem birt var í dag.

Í könnun Maskínu fyrir sléttri vikur mældist Katrín Jakobsdóttir með mesta fylgið, eða 32,9 prósent, Baldur með 26,7 prósent og Jón Gnarr með 19,6 prósent. Þarna er marktækur munur á Katrínu og Baldri og hún því í forystu.

Fimm dögum síðar, síðast liðinn laugardag, kemur Gallup með könnun sem sýnir mjög svipaða mynd af þremur efstu frambjóðendunum. Þar munar þó færri prósentustigum á milli Katrínar og Baldurs og munurinn ekki lengur marktækur. Jón Gnarr áfram á svipuðum slóðum.

Hér sjáum við fylgi efstu fjögurra frambjóðenda í þremur könnunum sem birtar voru dagana 8. til 15. apríl.Grafík/Sara

Töluverð breyting verður hins vegar á fylginu samkvæmt könnun Prósents sem Morgunblaðið birti í dag. Fylgið við Katrínu fellur niður í 25,3 prósent en Baldur er á svipuðum slóðum og í hinum könnununum með 29,5 prósent. Engu að síður telst ekki vera marktækur munur á þeim tveimur. Jón Gnarr er áfram í þriðja sæti með 19,3 prósent.

Stóru tíðindin í könnun Prósents eru hins vegar að Halla Hrund Logadóttir tekur stökk úr 5,7 prósentum hjá Maskínu og 4 prósentum hjá Gallup í 12,1 hjá Prósenti. Hún tvöfaldar því fylgi sitt miðað við könnun Maskínu og þrefaldar það miðað við könnun Gallups.

Fjórir frambjóðendur mælast með fylgi yfir tíu prósentum, Halla Tómasdóttir stendur í fimm til rúmlega sjö prósentum. Aðrir frambjóðendur mælast undir þremur prósentum.Grafík/Sara

Í samtali við fréttastofu segist Halla Hrund hafa fundið fyrir miklum meðbyr frá því að hún tilkynnti um framboðið fyrir rúmri viku. Aukningin sé í takt við þann meðbyr. „En auðvitað er þetta könnun og ferðalagið er rétt að byrja,“ segir Halla Hrund. 

„Ég er glöð og þakklát fyrir þennan meðbyr og nú er bara að halda áfram og ég hlakka til og fer auðmjúk inn í þetta ævintýri,“ bætir hún við. 

Fylgi við nöfnu hennar Höllu Tómasdóttur dalar miðað við fyrri kannanir og mælist nú 5 prósent. Aðrir frambjóðendur mælast síðan undir þremur prósentum.


Tengdar fréttir

Baldur og Katrín halda forystunni

Þrír frambjóðendur til embættis forseta Íslands eiga fremur öðrum möguleika á að ná kjöri samkvæmt þremur könnunum sem gerðar hafa verið að undanförnu. Katrín Jakobsdóttir hefur mælst með mest fylgi í tveimur þeirra en Baldur Þórhallsson í þeirri þriðju og nýjustu.

Eldri kjósendur hallast að Katrínu

Litlu munar á fylgi forsetaframbjóðendanna Katrínar Jakobsdóttur og Baldurs Þórhallssonar samkvæmt nýrri könnun. Prófessor í stjórnmálafræði segir geta skipt sköpum að kjósendahópur Katrínar sé líklegri til að mæta á kjörstað þar sem um eldra fólk sé að ræða.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×