Íslenski boltinn

Besta-spáin 2024: Ætla að gera falldrauginn aftur­reka úr Ár­bænum

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fylki 9. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Fylkir fékk 38 stig í Lengjudeildinni í fyrra, aðeins einu stigi minna en meistarar Víkings. vísir/anton

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir Fylki 9. sæti Bestu deildar kvenna í sumar.

Íþróttadeild Vísis og Stöðvar 2 Sports spáir að venju fyrir um gengi liðanna í Bestu deild kvenna með árlegri spá sinni fyrir mótið. Keppni í deildinni hefst með tveimur leikjum sunnudaginn 21. apríl.

Íþróttadeild spáir Fylki 9. sæti Bestu deildarinnar í sumar og nýliðarnir falli aftur niður í Lengjudeildina.

Fylkir féll úr efstu deild 2021 og lenti í 6. sæti Lengjudeildarinnar árið eftir. Síðasta sumar var annað hins vegar uppi á teningnum. Fylkir var í toppbaráttunni allt sumarið og tryggði sér 2. sæti Lengjudeildarinnar með 2-3 sigri á Gróttu í hreinum úrslitaleik í lokaumferðinni.

grafík/bjarki

Guðrún Karítas Sigurðardóttir skoraði sigurmark Fylkiskvenna í leiknum. Það var eitt fimmtán marka hennar í Lengjudeildinni en aðeins Seltirningurinn Hannah Abraham skoraði meira (16 mörk). Það er mikið ánægjuefni að sjá Guðrúnu Karítas komna aftur á fulla ferð en hún var einn besti ungi leikmaður landsins á sínum tíma.

Guðrún Karítas verður kyndilberinn í sóknarleik Fylkis í sumar ásamt fyrirliðanum Evu Rut Ásþórsdóttur sem skoraði ellefu mörk í Lengjudeildinni í fyrra.

grafík/bjarki

Fylkir skoraði þrettán mörk í fimm leikjum í Lengjubikarnum í vetur og ætla má að sóknin verði ekki mikið vandamál í sumar. Vörnin er meira spurningarmerki en Fylkiskonur fengu á sig 26 mörk í Lengjudeildinni í fyrra og sextán mörk í Lengjubikarnum.

Fylkir hefur framlengt samninga sinna aðal leikmanna í vetur og fengið hóflega styrkingu. Amelía Rún Fjeldsted kom frá Keflavík og þá bættust hinar bandarísku Kayla Bruster og Abby Boyan í hópinn. Bruster er varnarmaður og Boyan miðjumaður sem spilaði mjög vel með AaB í dönsku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.

Þær þurfa að vera drjúgur liðsstyrkur fyrir Fylki í þeirri löngu og ströngu baráttu sem framundan er. Gunnar Magnús Jónsson er enginn nýgræðingur í þjálfun og hefur áður glímt við falldrauginn og haft hann undir. Reynsla hans mun eflaust nýtast vel þegar út í alvöruna verður komið.

Lykilmenn

  • Tinna Brá Magnúsdóttir, 19 ára markvörður
  • Eva Rut Ásþórsdóttir, 22 ára miðjumaður
  • Guðrún Karítas Sigurðardóttir, 28 ára sóknarmaður 

Fylgist með

Helga Guðrún Kristinsdóttir fellur ekki beint í hóp ungra og efnilegra leikmanna en þessi grindvíski kantmaður er 26 ára og hefur reynslu úr efstu deild. Hún hefur hins vegar ekki spilað þar í nokkur ár og vonast væntanlega eftir að geta fylgt eftir góðu sumri í fyrra þar sem hún skoraði átta mörk og lagði upp níu.

Í besta/versta falli

Fylkisliðið er fullfært um að halda sér uppi og ef allt fer á besta veg gæti liðið komist upp í 7. sætið. Það má hins vegar ekki mikið út af bera og falldraugurinn bankar eflaust reglulega upp á í sumar. En ef vörnin verður þéttari en undanfarin misseri og sóknin áfram beitt gætu Árbæingar kveðið draugsa í kútinn.


Tengdar fréttir






×