Ellefta deildar­mark Alberts ekki nóg

Albert Guðmundsson fékk góðar móttökur þegar hann mætti til leiks í dag.
Albert Guðmundsson fékk góðar móttökur þegar hann mætti til leiks í dag. Getty/Simone Arveda

Genoa gerði þá 1-1 jafntefli á móti Frosinone en Genoa var tíu stigum og sex sætum ofar í töflunni.

Albert skoraði eina mark Genoa úr vítaspyrnu á 30. mínútu leiksins og kom Genoa þar í 1-0. Albert fékk vítaspyrnuna sjálfur.

Aðeins sex mínútum síðar jöfnuðu hins vegar gestirnir þegar Brasilíumaðurinn Reinier skoraði.

Genoa liðið reyndi hvað það gat til að ná inn sigurmarki í seinni hálfleiknum og þá oftast með Albert í fararbroddi. Það tókst hins vegar ekki og liðið missti af tveimur stigum.

Það var síðan dramatík í lokin þegar dómarinn dæmdi víti vegna hendi á varnarmann Genoa. Myndbandsdómararnir sýndu að það var rangur dómur og dómarinn tók hann til baka.

Þetta var ellefta jafntefli Genoa á leitktíðinni sem er það mesta í deildinni.

Markið þýðir hins vegar að Albert er kominn með ellefu deildarmörk á leiktíðinni. Hann er kominn upp í fimmta sætið yfir markahæstu leikmenn Seríu A.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira