Spurð hvað heilli hana í fari annarra segir Líney jákvæðni, drifkraft og hugulsemi standa framar öðru.
Líney er mikil útivistarkona og segist elska laxveiðar og renna sér á skíðum. Auk þess á hún golfsett en segist bíða eftir kennslu í sportinu.
Hér að neðan svarar Líney Sif spurningum í viðtalsliðnum Einhleypan.

Aldur? 34 ára
Starf? Flugfreyja og eigandi LS Þrifa
Áhugamál? Laxveiði, skíði og að ferðast. Svo á ég golfsett sem bíður eftir að ég fái kennslu á.
Gælunafn eða hliðarsjálf? Cleaney
Aldur í anda? 45
Menntun? Viðskiptafræðingur
Hvar sérðu þig eftir tíu ár? Eftir tíu ár verð ég vonandi komin í draumahúsið mitt og jafnvel búin að eignast fleiri börn.

Hvað myndi sjálfsævisagan þín heita? Guilty pleasure.
Hvað hefurðu verið að gera síðustu mánuði? Ferðalög standa upp úr síðustu mánuði. Fór til Tenerife með fjölskyldunni í febrúar og fór til Beirút síðastliðinn ágúst.
Hvað ber framtíðin í skauti sér? Í framtíðinni ætla ég að halda áfram að skapa minningar með börnunum mínum bæði erlendis og hér heima, og vera dugleg að eyða tíma með fjölskyldu og vinum.
Kvikmynd? Notebook.
Varstu skotin í einhverjum frægum þegar þú varst yngri? Tupac.
Talar þú stundum um þig í þriðju persónu? Nei ég hef ekki tekið upp á því og ætla mér ekki að byrja á því.
Syngur þú í sturtu? Hvað þá? Nei, ég geri heimilismeðlimum mínum þann greiða að láta það eiga sig.
Uppáhalds snjallforritið (e.app) þitt? Time tree og sudoku.
Ertu á stefnumótaforritum? Já, en get ekki sagt að ég sé virk þar.
Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum? Þrjósk, metnaðarfull og jákvæð.
Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í þremur orðum? Hjálpfús, fyndin, ljúf og falleg samkvæmt vinkonu minni.
Hvaða persónueiginleikar finnast þér heillandi? Jákvæðni, drifkraftur og hugulsemi.
En óheillandi? Leti, hroki og óheiðarleiki.

Ef þú værir dýr hvaða værir þú þá? Hundurinn minn.
Ef þú mættir velja einhverja þrjá einstaklinga úr sögunni (lífs eða liðna) til að bjóða í kvöldmat og spjall, hverja myndir þú velja?
Ég myndi velja pabba minn sem var minn besti vinur og systur son minn sem ég missti báða á síðasta ári. Á eftir þeim kæmi Oprah Winfrey eða Jeff Bezos.
Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum? Góð spurning, ætli það væri ekki að ég vinn vel undir álagi og á auðvelt með að lesa í aðstæður, þ.e.a.s ef það er hæfileiki.
Hvað finnst þér skemmtilegast að gera? Skapa minningar með börnunum mínum og nánasta fólki.

Hvað finnst þér leiðinlegast að gera? Brjóta saman og ganga frá þvotti.
Ertu A eða B týpa? Yfirleitt A en get verið B ef ég kemst upp með það.
Hvernig viltu eggin þín? Scrambled.
Hvernig viltu kaffið þitt? Með mikilli mjólk.
Þegar þú ferð út að skemmta þér, á hvaða staði ferðu? Ætli það sé ekki Tipsy bar og svo klikkar Kaldi bar ekki.
Ertu með einhvern bucket lista? Tónleikar með Adele og eignast einbýlishús með heitum potti og saunu.
Draumastefnumótið? Hmm..ég sé yfirleitt um skipulagningu þannig það væri geggjað ef mér yrði komið á óvart.
Einhver söngtexti sem þú hefur sungið vitlaust?
Ég hugsa að ég syngi öll lög eitthvað vitlaust.
Hvað horfðir þú á síðast í sjónvarpinu? Ég man ekki hvað það hét en það var eitthvað true crime eins og verður yfirleitt fyrir valinu.
Hvaða bók lastu síðast? The Secret
Hvað sérðu þig eftir tíu ár? Í draumahúsinu með börnunum mínum og maka.
Hvað er Ást? Að eignast besta vin þar sem það er gagnkvæm virðing og væntumþykja til staðar, í blíðu og stríðu.