Innherji

Mælir með kaupum í Play og telur út­boðs­gengið „vel undir“ sann­gjörnu virði

Hörður Ægisson skrifar
Birgir Jónsson, forstjóri Play, og Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður og einn stærsti hluthafinn. Flugfélagið stefnir að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða útboð í vikunni.
Birgir Jónsson, forstjóri Play, og Einar Örn Ólafsson, stjórnarformaður og einn stærsti hluthafinn. Flugfélagið stefnir að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða útboð í vikunni.

Virðismatsgengi Play, sem vinnur núna að því að klára að lágmarki fjögurra milljarða króna hlutafjáraukningu, er rúmlega tvöfalt hærra en útboðsgengið, samkvæmt nýrri hlutabréfagreiningu. Talið er að Play muni skila lítillegum rekstrarhagnaði á þessu ári og það náist jafnvægi milli einingatekna- og kostnaðar í rekstri flugfélagsins.


Tengdar fréttir

Stærstu hlut­hafar sagðir ætla að taka þátt í út­boði Play og verja sinn hlut

Allt útlit er fyrir að mikill meirihluti helstu fjárfestanna í hluthafahópi Play muni leggja flugfélaginu til samanlagt um helming þeirrar fjárhæðar sem það áformar að tryggja sér í þessum mánuði. Stjórnendur Play hafa klárað markaðsþreifingar við tíu stærstu hluthafa félagsins vegna útboðsins, þar sem ætlunin er að sækja allt að fjóra milljarða, og væntingar eru um að hægt verði að tilkynna um aðkomu þeirra á allra næstu dögum.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×