Viðskipti innlent

Leigu­verð í ná­grenni höfuð­borgar­svæðisins hæst í Reykja­nes­bæ

Atli Ísleifsson skrifar
Meðalleiga á hvern fermetra í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var hæst í Reykjanesbæ á síðasta ári.
Meðalleiga á hvern fermetra í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var hæst í Reykjanesbæ á síðasta ári. Vísir/Egill

Meðalleiga á hvern fermetra í nágrenni höfuðborgarsvæðisins var hæst í Reykjanesbæ í fyrra, en þar er hún um sex prósentum hærri en á Selfossi.

Þetta kemur fram á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar þar sem hefur verið unnið úr gögnum leiguskrár stofnunarinnar.

Þar segir að samkvæmt leiguskránni hafi algengt fermetraverð í nágrenni höfuðborgarsvæðisins verið frá 2.400 krónum upp í 3.000 krónur, en meðalleigufjárhæð þar hafi verið á bilinu 197 til 250 þúsund.

Ódýrasta meðalleigan var í Grindavík, en þar nam hún 197.808 krónum í fyrra. Þar mátti einnig finna minnstu meðalstærðina á íbúðum , en þær voru að meðaltali 81 fermetri að stærð. Meðalstærð íbúða var einnig svipuð í Reykjanesbæ og í Vogum á Vatnsleysuströnd, líkt og myndin hér að neðan sýnir, en þar er hún 84 og 83 fermetrar.

Meðalstærð leiguhúsnæðis var hins vegar mest í Þorlákshöfn og Garði en leiguíbúðir þar eru að jafnaði tæplega 100 fermetrar. Þó ber að varast draga miklar ályktanir um gögnin í Þorlákshöfn, Garði og Sandgerði þar sem fjöldi samninga sem undirritaðir voru í fyrra á þessum stöðum var um og undir 20 talsins og því er úrtakið takmarkað þar.

Stærð og eðli leigu­mark­að­ar á Ak­ur­eyri sker sig úr frá öðr­um þétt­býl­is­kjörn­um út á landi

Annars staðar á landinu er meðalleigufjárhæð á meira bili eða frá 134 þús. kr. til 212 þús. kr. Það helgast af því að meðalstærð leiguhúsnæðis er 59 fm. á Akureyri en í öðrum þéttbýliskjörnum út á landi er algeng meðalstærð húsnæðis á bilinu 80 fm. til 100 fm. Meðalfermetraverð er frá tæplega 1.900 kr. til tæplega 2.400 kr. 

Ágætt er að hafa hugfast að fjöldi samninga í Norðurþing er um 20 og því er úrtakið takmarkað þar en samningar á Akureyri eru yfir 600. Einungis eitt póstnúmer í Reykjavík inniheldur fleiri samninga en höfuðstaður Norðurlands og það er 101 Reykjavík,“ segir á vef HMS.

Um Leiguskrána segir að hún sé hluti af húsnæðisgrunni HMS sem haldi utan um gögn og upplýsingar um húsnæðismál. „Öllum leigusölum sem leigja út fleiri en tvær íbúðir, er skylt að skrá húsaleigusamning um íbúðarhúsnæði í húsnæðisgrunninn. Sömuleiðis inniheldur leiguskráin rafræna húsaleigusamninga, en heildarfjöldi gildra samninga þar nær nú yfir 20 þúsund.“

Áður hafði HMS tekið saman upplýsingar um meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu þar sem kom fram að það væri hæst í póstnúmeri 203 á síðasta ári. Þar hafi íbúðir til leigu jafnframt verup stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vesturbænum.


Tengdar fréttir

Mest borgað fyrir leigu í austur­hluta Kópa­vogs

Meðalleiguverð á höfuðborgarsvæðinu var hæst í póstnúmeri 203 á síðasta ári, en í því sama póstnúmeri voru íbúðir til leigu jafnframt stærri en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Leiguverðið á hvern fermetra var hins vegar hæst í Vesturbænum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×