Innherji

Nýr for­stjóri bregst við gagn­rýni fjár­festa og lækkar veru­lega af­komu­spá Marel

Hörður Ægisson skrifar
Árni Sigurðsson, sem tók við sem forstjóri Marel í nóvember, segir að það hafi verið eitt af hans fyrstu verkefnum að yfirfara og álagsprófa áætlanir félagsins og tryggja að rétt skref yrðu tekin til að ná markmiðum þess. Hann hefur núna lækkað verulega afkomuspá Marel fyrir þetta ár en metnaðarfull afkomumarkmið félagsins höfðu verið gagnrýnd fyrir að vera óraunhæf til skamms tíma. 
Árni Sigurðsson, sem tók við sem forstjóri Marel í nóvember, segir að það hafi verið eitt af hans fyrstu verkefnum að yfirfara og álagsprófa áætlanir félagsins og tryggja að rétt skref yrðu tekin til að ná markmiðum þess. Hann hefur núna lækkað verulega afkomuspá Marel fyrir þetta ár en metnaðarfull afkomumarkmið félagsins höfðu verið gagnrýnd fyrir að vera óraunhæf til skamms tíma.  Samsett

Nýr forstjóri Marel hefur komið til móts við gagnrýni fjárfesta um óraunhæf rekstrarmarkmið með því að lækka talsvert afkomuspá félagsins fyrir þetta ár og segir að fyrsti fjórðungur „verði þungur“ vegna krefjandi markaðsaðstæðna. Framlegðarhlutfall Marel var lítillega undir væntingum greinenda á síðasta fjórðungi 2023 á meðan nýjar pantanir jukust meira en gert var ráð fyrir auk þess sem félagið skilaði verulega bættu sjóðstreymi sem gerði því kleift að létta á skuldsetningu.


Tengdar fréttir

Krefjandi markaðsaðstæður setji áfram mark sitt á afkomu Marels

Horfur eru á að krefjandi markaðsaðstæður muni áfram setja mark sitt á afkomu Marel. Greinendur búast almennt við því að afkoma fyrirtækisins muni dragast saman á milli ára á fjórða ársfjórðungi og að framlegðarhlutfall verði rétt undir tíu prósentum. Marel  mun birta uppgjör eftir lokun markaða á morgun.

ING telur að samningur JBT um yfirtöku á Marel sé í höfn

Greinendur hollenska bankans ING telja að líkur á samruna Marels við John Bean Technologies (JBT) hafi aukist verulega með nýju tilboði og að samningur sé í höfn. Fjárfestingabankinn JP Morgan bendir hins vega á að 90 prósent hluthafa Marels þurfi að samþykkja tilboðið og það gæti gert samruna vandasamri.

Marel ætti að fara í hluta­fjár­aukningu til að grynnka á miklum skuldum

Hlutabréfaverð Marels rauk upp í byrjun vikunnar eftir að greinendur ING hækkuðu talsvert verðmat sitt á félaginu en þrátt fyrir að uppgjör þriðja fjórðungs hafi verið undir væntingum telja þeir jákvæð teikn á lofti í rekstrinum sem endurspeglist meðal annars í minnkandi kostnaðargrunni. Að sögn hollenska bankans væri skynsamlegt fyrir Marel að ráðast í hlutafjáraukningu í því skyni að minnka óhóflega skuldsetningu félagsins.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×