Körfubolti

Vals­menn bæta fyrrum KR-ing í hópinn

Siggeir Ævarsson skrifar
Justas Tamulis keyrir að körfunni í leik með KR
Justas Tamulis keyrir að körfunni í leik með KR Vísir/Vilhelm

Valsmenn ákváðu að sæta lagi á síðasta degi félagaskiptagluggans og þéttu raðirnar fyrir lokaátökin í Subway-deild karla. 

Leikmaðurinn sem um ræðir er Litháinn Justas Tamulis en hann lék með KR í Subway-deildinni á síðasta tímabili. Tamulis, sem er 29 ára bakvörður og/eða lítill framherji skorað 16 stig að meðaltali í leik með KR og tók fjögur fráköst. Hann kemur til Vals frá heimalandi sínu þar sem hann lék með Jonavos á yfirstandandi tímabili.

Leiða má líkur að því að þessi ákvörðun Vals, að bæta erlendum leikmanni í hópinn á þessum tímapunkti, þýði að endurkoma Kára Jónssonar á parketið sé ekki í kortunum alveg á næstunni en Valur tilkynnti í byrjun desember að Kári þyrfti að fara í aðgerð á fæti og yrði frá næstu mánuðina.

Það var Karfan.is sem greindi fyrst frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×