Samstarf

Nú er hægt að greiða fyrir bíla­stæði með appi án auka­gjalda

Verna
„Verna ætlar að vera breytingaafl á stöðnuðum tryggingamarkaði þar sem framþróun hefur verið afar takmörkuð,“ segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Verna. Mynd/Vilhelm
„Verna ætlar að vera breytingaafl á stöðnuðum tryggingamarkaði þar sem framþróun hefur verið afar takmörkuð,“ segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Verna. Mynd/Vilhelm

Verna hefur opnað appið sitt fyrir öll, hvort sem bíllinn er tryggður hjá Verna eður ei. Meðal nýjunga í appinu er sá möguleiki að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld. Í notkun á appinu felst engin skuldbinding, bara ávinningur þar sem notendur geta nýtt sér ýmis sértilboð og fríðindi. Notendur sem ná í appið fyrir 1. mars nk. geta unnið 100 þúsund króna gjafabréf frá Play.

„Markmið Verna er ekki bara að hugsa bílatryggingar upp á nýtt og gera þær sanngjarnari og gegnsærri, heldur einnig að einfalda líf notenda. Að appið okkar verði eins konar „one-stop shop“ fyrir bíleigendur“, segir Friðrik Þór Snorrason, forstjóri Verna. 

„Liður á þeirri vegferð er sú nýjung að notendur geta núna nýtt Verna appið til að leggja bílnum í gjaldskyld stæði án þess að greiða aukagjöld. Önnur bílastæða-öpp innheimta ýmist fast mánaðargjald eða færslugjald í hvert sinn sem bílnum er lagt, en við rukkum ekki krónu umfram það sem Bílastæðasjóður innheimtir.Varlega áætlað eru aukagjöld að jafnaði 25-30% af heildarkostnaði við að leggja bílnum. Þú þarft ekki að kaupa tryggingu af okkur til þess að nota appið til að leggja“, áréttar Friðrik.

Besta dílinn fyrir bílinn

Í Verna appinu er að finna kort yfir bensínstöðvar í nágrenninu. Þar má bera saman verð á milli einstakra stöðva, það gæti verið ódýrara bensín hinum megin við götuna. í appinu er einnig að finna sérstaka afslætti á þjónustu og dekri fyrir bílinn. Allir geta nýtt sér afsláttinn en þeir sem tryggja hjá Verna fá enn betri díl. Appið býður einnig upp á þann möguleika að fylla út tjónaskýrslu rafrænt og finna lista yfir öll bestu verkstæðin sem Verna er í samstarfi við.

Samkvæmt útreikningum Verna má áætla að viðskiptavinir fyrirtækisins hafi sparað um 150 milljónir í iðgjöld á síðastliðnu ári.

Breytingaafl

En hver er hugsunin á bak við Verna? Hverju ætlar Verna að breyta? „Verna ætlar að vera breytingaafl á stöðnuðum tryggingamarkaði þar sem framþróun hefur verið afar takmörkuð. Með því að þróa tæknilausnir sem meta gæði aksturs og veita ökumönnum endurgjöf um það sem betur má fara má draga úr áhættu í umferðinni.“

Samkvæmt útreikningum Verna má áætla að viðskiptavinir fyrirtækisins hafi sparað um 150 milljónir í iðgjöld á síðastliðnu ári. „Auk þess áætlum við að viðskiptavinir hafi lækkað kolefnisfótspor sitt í umferðinni um 9-11% með mýkri akstri þar sem mýkt aksturs hefur áhrif á útblástur. Það jafngildir því að gróðursetja yfir 194 þúsund tré, sem væri einn af stærri skógum landsins,“ bætir Friðrik við.

Á sama tíma segir hann Verna vera stöðugt að vinna að því að einfalda fólki lífið. „Verna appið er þannig ekki bara tæknilausn til að meta aksturslag ökumanna heldur einnig vistkerfi af mismunandi tegundum þjónustu fyrir bíleigendur, t.d. betri kjör á bifreiðaskoðun hjá Frumherja og afsláttur af barnabílstólum.“

Sá möguleiki að greiða fyrir bílastæði með Verna appinu breytir einnig miklu fyrir bíleigendur og leysir af hólmi þörfina á að hafa önnur bílastæða-öpp sem innheimta ýmist mánaðargjald eða sérstakt þjónustugjald í hvert sinn sem bílnum er lagt. „Nú viljum við gera þessa þjónustu aðgengilega fyrir öll og hvetjum eindregið til þess að ná í appið og byrja að nýta sér þá möguleika sem þar eru í boði”, segir Friðrik að lokum.

Kíktu undir húddið og sjáðu hvað Verna hefur uppá að bjóða.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×