Slóvenar leika um fimmta sæti eftir sigur gegn Dönum Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. janúar 2024 18:32 Slóvenar unnu mikilvægan sigur í dag og leika um fimmta sæti EM. Stuart Franklin/Getty Images Slóvenía mun leik um fimmta sæti Evrópumótsins í handbolta eftir óvæntan þriggja marka sigur gegn heimsmeisturum Danmerkur í dag, 28-25.
Danir höfðu þegar tryggt sér efsta sæti milliriðils 2 og sæti í undanúrslitum EM fyrir leik dagsins. Slóvenar voru hins vegar einu stigi á eftir Portúgal sem sat í þriðja sæti riðilsins og vegna innbyrðis viðureignar Slóveníu og Portúgal var ljóst að ekkert annað en sigur myndi tryggjá Slóvenum leik um fimmta sæti mótsins. Þar sem Danir höfðu þegar fest sig í efsta sæti riðilsins gat liðið leyft sér að hvíla nokkra lykilmenn stóran hluta leiksins og slóvenska liðið nýtti sér það. Slóvenar voru með yfirhöndina stærstan hluta leiksins og leiddu með þremur mörkum þegar flautað var til hálfleiks, staðan 17-14. Danska liðið byrjaði síðari hálfleikinn betur og náði fljótt tveggja marka forskoti. Þá bjuggust líklega margir við því að Danir væru komnir í gang og myndu sigla sigrinum heim, en Slóvenar gáfust ekki upp og komust yfir á ný í stöðunni 23-22. Slóvenska liðið leit aldrei um öxl eftir það og vann að lokum sterkan þriggja marka sigur, 28-25. Eins og áður segir tryggðu Slóvenar sér þriðja sæti milliriðils 2 með sigrinum og þar með leik um fimmta sæti mótsins. Danir enda hins vegar í efsta sæti, alveg sama hvernig leikur Svía og Norðmanna fer í kvöld, og leika til undanúrslita.
EM 2024 í handbolta Mest lesið „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Íslenski boltinn Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Íslenski boltinn „Guðjohnsen er stórt nafn í fótboltanum“ Enski boltinn HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Handbolti Hallgrímur kveður KA Íslenski boltinn Liverpool slapp við Manchester City Enski boltinn 75 prósent látinna NFL-leikmanna með heilaskaða Sport Var klár í samkeppnina við Ingvar Íslenski boltinn „Eina liðið sem ég vildi ekki“ Enski boltinn Snýr aftur til keppni eftir saurslysið Sport Fleiri fréttir Þessar 35 mega spila á EM: Átta hafa ekki spilað landsleik Átta sigrar í átta leikjum hjá Haukum KA-menn burstuðu FH-inga í Krikanum Elín Klara öflug í stórsigri Sävehof HSÍ syrgir einstakan stuðningsmann Enginn valdi Ísland fyrir næsta EM „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn Strax aftur á sigurbraut Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Reynir Þór með stórleik í þýsku Bundesligunni Ísland-Pólland 34-35 | Naumt tap á móti Pólverjum FH-ingar sóttu tvö stig í Kórinn Valsmenn með þriðja sigurinn í röð HSÍ gat ekki styrkt Sérsveitina: Fékk yfir þrjár milljónir í fyrra Sérsveitin ekki á HM: „Það eru allir að halda að sér höndum“ Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Uppgjörið: KA-Afturelding 32-28 | KA-menn upp í annað sætið Viktor Gísli og Baldur Fritz frábærir í Meistaradeildinni Reynir Þór með fimm marka leik í Meistaradeildinni Íslensku stelpurnar unnu Pólverja eftir flotta endurkomu Þórsarar unnu í fyrsta sinn síðan um miðjan september Topplið Hauka burstaði Fram í Lambhagahöllinni Fyrsta tap Kristianstad kom í Íslendingaslag Viktor Gísli öflugur í sigri Barcelona Gísli og Ómar drógu vagninn í sigri Magdeburgar Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Sjá meira