Handbolti

Rikki G stýrði hóp­söng fyrir Króatíuleikinn

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ríkharð Óskar Guðnason keyrði upp stemmninguna meðal stuðningsmanna Íslands í dag. Hér stýrir hann hópsöngnum.
Ríkharð Óskar Guðnason keyrði upp stemmninguna meðal stuðningsmanna Íslands í dag. Hér stýrir hann hópsöngnum. Vísir/Vilhelm

Ísland mætir Króatíu í fyrsta leik dagsins í milliriðli á Evrópumótinu í handbolta í dag en þetta er mögulega næstsíðasti leikur Íslands á mótinu. Ísland verður með flott fólk á áhorfendapöllunum í dag.

Íslenska liðið hefur fengið flottan stuðning á mótinu og okkar stuðningsfólk er tilbúið í slaginn fyrir fjörið í stúkunni í Lanxess höllinni í Köln.

Liðið okkar er án tveggja mikilvægra leikmanna í leiknum í dag og er enn fremur svolítið brotið eftir þrjá tapleiki í röð.  Það reynir því á þetta góða stuðningsfólk að koma með stemmninguna á pöllunum og vonast eftir því að ná að kveikja neistann hjá íslensku strákunum sem þurfa sigur ætli þeir að halda Ólympíudraumnum á lífi.

Ríkharð Óskar Guðnason, oftast kallaður Rikki G, er mættur til Þýskalands og hann stýrði hópsöng fyrir Króatíuleikinn í dag.  Stuðningsfólkið tók vel undir og hitaði vel upp áður en farið var í höllina.

Vilhelm Gunnarsson, ljósmyndari Vísis, var á upphitun hópsins í Köln og það má sjá skemmtilegar myndir frá partýinu hér fyrir neðan.

 

Vísir/Vilhelm
Sérsveitin er að sjálfsögðu á sínum stað í Köln.Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm
Vísir/Vilhelm



Fleiri fréttir

Sjá meira


×