Viðskipti innlent

Skattur af rúmum milljarði króna heyrir sögunni til

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Álfheiður Ágústsdóttir er forstjóri Elkem á Íslandi.
Álfheiður Ágústsdóttir er forstjóri Elkem á Íslandi. Elkem

Elkem Ísland ehf. þarf ekki að greiða íslenska ríkinu skatt af rúmlega milljarði króna. Landsréttur staðfesti í dag niðurfellingu héraðsdóms á úrskurði ríkisskattstjóra. Með úrskurðinum var fjárhæð frádráttarbærra gjaldfærðra vaxta í skattskilum Elkem lækkuð um ríflega átta hundruð milljónir og 25 prósent álagi bætt við.

Ákvörðun ríkisskattstjóra byggði á ákvæði tekjuskattslaga um skattasniðgöngu og að vaxtagreiðslur Elkem Ísland af láni frá erlendu móðurfélagi teldust ekki frádráttarbærar. Elkem Ísland rekur kísilver á Grundartanga.

Málið á rætur sínar að rekja til skuldabréfs sem félagið gaf út til móðurfélagsins árið 2012 í tengslum við svokallaða fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands. Fjárfestingarleiðin var liður í aðgerðum Seðlabankans til að afla erlends gjaldeyris í kjölfar efnahagshrunsins.

Ríkisskattsjóri taldi að með því að færa vaxtagreiðslur af skuldabréfinu til frádráttar í skattskilum hefði Elkem verið að sniðganga skattskyldu sína. Þannig fór skatturinn fram á skýringar á því hvernig farið hefði verið með vaxtagjöld í skattskilum og hvort lánið hefði verið tekið til að afla Elkem tekna, tryggja þær eða halda þeim við, en það er forsenda þess að vaxtagjöld séu frádráttarbær.

Lækkaði frádrátt um rúmlega milljarð

Að skýringum fengnum tilkynnti ríkisskattstjóri Elkem að fyrirhugað væri að lækka fjárhæð gjaldfærðra vaxta í skattskilum félagsins. Það hefði ekki hagað sér með sambærilegum hætti og gerst hefði í viðskiptum ótengdra aðila og ekki þurft á umræddri lántöku að halda. Umrædd lántaka væri verulega frábrugðin því sem almennt hefði gerst í viðskiptum ótengdra aðila.

Félagið mótmælti álagningunni meðal annars með vísan til þess að grundvöllur boðaðrar álagningar væri hvorki í samræmi við staðreyndir málsins né lagalegan raunveruleika og að ekki væri hægt að hafna frádráttarbærni vaxta með vísan til þess að gjaldandi væri of vel fjármagnaður með eigin fé.

Með úrskurði árið 2020 ákvað ríkisskattstjóri að lækka fjárhæð gjaldfærðra vaxta í skattskilum Elkem fyrir gjaldárin 2015 til 2019 um alls 810 milljónir króna og bæta við 25 prósent álagi. Fjárhæðin var því rétt rúmlega einn milljarður króna í heildina.

Elkem stefndi íslenska ríkinu og vísaði til þess að ríkisskattstjóri hafi hvorki uppfyllt rannsóknarskyldu né gætt meðalhófs við meðferð málsins, og að úrskurðurinn hafi ekki verið í samræmi við lög.

Sniðganga ekki sönnuð

Í niðurstöðum Héraðsdóms Reykjavíkur segir að ágreiningur málsaðila hafi lúti að því að einhver málsatvik hafi verið óljós eða óupplýst. Ríkisskattstjóri hafi kallað eftir og fengið öll nauðsynleg gögn frá Elkem. Með vísan til þess, og fleira, hafnaði héraðsdómur því að Ríkisskattstjóri hefði brotið gegn rannsóknarreglu og meðalhófsreglu við meðferð málsins.

Þá sagði í niðurstöðum að í tilviki Elkem hafi umrætt lán verið þáttur af fjármagnsskipan stefnanda og rekstrarfjármunirnir á því ári sem skuldabréfið var gefið út meðal annars nýttir til fjárfestinga og niðurgreiðslna á skuldum.

Með vísan til þeirrar meginreglur að félög hafi gott svigrúm til þess að ákveða hvernig fjármagnsskipan þeirra skuli háttað og það sé jafnframt íslenska ríkið sem beri sönnunarbyrði fyrir því að skilyrði ákvæðis skattalaga um sniðgöngu séu fyrir hendi, var fallist á kröfu Elkem um að ákvörðun ríkisskattstjóra yrði felld úr gildi.

Landsréttur staðfesti niðurstöðu héraðsdóms að fella úrskurðinn úr gildi. Þá var íslenska ríkið dæmt til að greiða málskostnað Elkem á báðum dómstigum, 4,75 milljónir króna, að tilliti teknu til virðisaukaskatts.


Tengdar fréttir





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×