Körfubolti

Ræddu heljar­mennið Kristófer Acox: „Ætlar bara að vera eins og LeBron James“

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
Kristófer í leik með Val.
Kristófer í leik með Val. Vísir/Anton Brink

Kristófer Acox fór mikinn þegar Valur lagði nýliða Hamars í Hveragerði í Subway-deild karla á dögunum. Valur vann öruggan 22 stiga sigur þar sem Kristófer skoraði 26 stig og tók 10 fráköst.

Valsmenn eru mættir á topp Subway-deildarinnar eftir öruggan sigur í Hveragerði. Joshua Jefferson hefur verið frábær í rauðri treyju Vals en það hefur Kristófer líka verið. Því ákvað Körfuboltakvöld að fara aðeins yfir frammistöðu hans á föstudaginn var.

„Við ætlum að fara í Kristófer Acox sem kom með enn einn 20-10 leikinn í þessum leik. Kristófer, nýbúinn að láta tappa af hnénu - gerði það um áramótin - og lítur vel út,“ sagði Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi.

„Lítur svakalega vel út. Skal viðurkenna það að ég er alltaf að bíða eftir því að sjá hvað gerist þegar íþróttamennskan fer að minnka, sé bara engin merki um að íþróttamennskan sé að fara niður á við enda æfir þessi drengur eins og atvinnumaður,“ sagði Ómar Sævarsson, sérfræðingur, á meðan myndefni af Kristófer að troða boltanum af öllu afli rúllaði.

„Sonur minn var að benda mér á Instagram-ið hans og hvað hann gerir á daginn, það er alveg æðislegt. Eins og ég segi, er alltaf að bíða eftir að hann hætti að geta gert þetta en hann klárlega vinnur svo mikið í líkamanum hjá sjálfum sér að hann ætlar bara að vera eins og LeBron James, halda áfram að troða yfir menn þangað til hann verður 39 ára,“ bætti Ómar við.

Klippa: Ræddu heljar­mennið Kristófer Acox: Ætlar bara að vera eins og LeBron James

Stefán Árni spurði Teit Örlygsson þá hvort Kristófer væri einfaldlega besti leikmaður deildarinnar?

„Örugglega topp þrír,“ sagði Teitur og hélt áfram.

„Svo gaman að sjá hvað hann hugsar vel um sig. Er ekkert viss um að Kristó hafi einhvern tímann verið í svona góðu formi. Hann var náttúrulega búinn að vera ofboðslega óheppinn með meiðsli en nú er hann búinn að hanga heill í ansi marga mánuði og 7,9 13 af því að Valur þarf á honum að halda. Hann er búinn að vera frábær.“

Umræðu Körfuboltakvölds má sjá í spilaranum hér að ofan en þar sést Kristófer troða yfir mann og annan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×