Atvinnulíf

Gervigreindin gefur ráð: Svona færðu draumastarfið þitt

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Við báðum gervigreindina AI Chat að gefa okkur góð ráð um það hvernig best væri að næla sér í draumastarfið okkar. Niðurstaðan eru sex atriði sem gervigreindin mælir með að við vinnum að.
Við báðum gervigreindina AI Chat að gefa okkur góð ráð um það hvernig best væri að næla sér í draumastarfið okkar. Niðurstaðan eru sex atriði sem gervigreindin mælir með að við vinnum að. Vísir/Getty

Að sjálfsögðu leitar Atvinnulífið í AI Chat þegar það á við og auðvitað klárum við ekki árið nema að athuga hvað gervigreindin segir okkur með starfsframann og draumastarfið.

Samkvæmt AI Chat eru nokkur skref sem við getum fylgt til að næla okkur í draumastarfið okkar. Þessi skref eru þá helst:

1. Sjálfsrýni

Að byrja á því að rýna í okkar eigin hæfileika: Þekkingu og reynslu. Velta fyrir okkur hvort það vanti eitthvað upp á hjá okkur sjálfum miðað við þá hugmynd sem við erum með um draumastarfið okkar.

Skrifa niður lista yfir þau atriði sem við búum yfir og eru sérstaklega góðir eiginleikar fyrir tiltekið starf.

2. Vinnumarkaðurinn

Næst er að skoða hvað er í boði á vinnumarkaðinum og hver staðan er þar. Eru störf í boði í samræmi við þær hugmyndir sem við erum með um draumastarfið? Eða hvaða störf komast næst því?

Hvaða hæfniskröfur eru listaðar upp í auglýsingum um störf sem við teljum spennandi. Hvernig passar reynslan okkar, menntun og hæfni við þær kröfur?

3. Markmið

Það getur verið að til þess að næla okkur í draumastarfið okkar, þurfi eitthvað meira til. Til dæmis menntun eða meiri starfsreynsla. Það sem okkur er ætlað að gera næst, er að setja okkur markmið um hvernig við ætlum að næla okkur í draumastarfið þannig að við séum líkleg til að komast í atvinnuviðtal og helst ráðningu, þegar við förum af stað að sækja um.

Gott er að hafa þennan markmiðalista sýnilegan okkur því mikilvægt er að halda fókus og vera meðvituð um það hvernig við ætlum að vinna að starfsframanum okkar.

4. Ferilskráin

Það skiptir engu máli hvort við erum að fara að sækja um draumastarfið okkar núna eða ekki. Gott er að leggja góða vinnu í ferilskránna og sjá til þess að hún uppfærist reglulega eftir því hvernig okkur miðar áfram.

Eins er gott að æfa sig í að skrifa góð kynningarbréf til að láta fylgja með ferilskrá þegar sótt er um störf.

5. Tengslanetið

Næst er að rýna í tengslanetið og þá sérstaklega með draumastarfið í huga. Ert þú í tengslaneti sem tengist þessu starfi? Ef já, er um að gera að vera svolítið meðvituð um það að rækta þetta tengslanet enn betur og nýta okkur það þegar að því kemur að við sækjum um eða förum á fullt að leita af draumastarfinu.

Ef tengslanetið okkar er ekki mjög sterkt fyrir þetta draumastarf, er um að gera að velta fyrir sér með hvaða leiðum við getum eflt þetta net þannig að það nýtist okkur þegar fram í sækir.

6. Þjálfun og æfingar

Loks er það að vera dugleg að æfa okkur. Til dæmis að æfa okkur í að kynna okkur sjálf, fá aðila til að undirbúa okkur undir atvinnuviðtal, sækja námskeið og fleira sem mögulega kæmi vel út að hafa bætt við okkur og/eða að nýta aðrar leiðir til að þjálfa okkur og æfa fyrir þetta draumastarf.

Bent er á að vanmeta ekki þennan lið því að æfingin skapar meistarann.


Tengdar fréttir

Að langa til að skipta um vinnu en þora ekki

Það fylgir mannlegu eðli að hræðast stundum óvissuna eða eitthvað nýtt. Þessi ótti má þó ekki yfirtaka neitt hjá okkur, enda kemur oftast í ljós að hann er óþarfur með öllu.

Atvinnuviðtalið: „Mikilvægt að spá vel í söguna sem maður er að selja“

„Að komast í atvinnuviðtalið eða draumastarfið snýst oft um undirbúninginn. Því sá sem situr hinum megin við borðið er kannski aðili að lesa hundrað ferilskrár og þín ferilskrá er því aðeins að fara að fá nokkrar sekúndur til að ná í gegn,“ segir Sturla Jóhann Hreinsson framkvæmdastjóri Vertu Betri ráðningaráðgjafar og vinnusálfræðingur.

Góð ráð: Aftur á vinnumarkaðinn eftir langt hlé

Það getur verið kvíðvænleg tilhugsun að vera að fara aftur á vinnumarkaðinn eftir langt hlé. En svo sem ekkert óalgengt ef stutt er á milli barneigna og/eða þær aðstæður hafa komið upp hjá fjölskyldunni að par ákveður að annað foreldrið sé heimavinnandi um tíma.

Að undirbúa uppsögn og nýja vinnu

Eitt af því sem einkennir árstíðir hjá okkur er að við oft veljum að bíða með hluti fram að ákveðnum tíma. Að byrja í líkamsræktarátaki eða megrun í janúar er eflaust eitt af þekktari fyrirbærum.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×