Umfangsmiklar aðgerðir Ísraelshers sagðar standa yfir á Vesturbakkanum Hólmfríður Gísladóttir skrifar 29. nóvember 2023 06:53 Palestínskir verslunarmenn freista þess að selja lager sinn fyrir framan eyðilagða fataverslun í Beit Lahiya á Gasa. AP/Mohammed Hajjar Palestínska dagblaðið Al-Quds segir Ísraelsher hafa ráðist inn í Jenin á Vesturbakkanum. Fréttamaður Al Jazeera í Jerúsalem segir aðgerðirnar hafa hafist í gærkvöldi og þær virðast enn í gangi.
Vitni í Jenin eru sögð hafa greint frá háværum sprengingum og drónum yfir borginni. Al Jazeera hefur einnig sagt frá því að Ísraelsher hafi ráðist inn í al-Jalazone flóttamannabúðirnar norður af Ramallah og al-Askar flóttamannabúðirnar í borginni Nablus. Fréttastofan Wafa segir herinn hafa skotið táragasi að íbúum og heimilium í Jenin. Þá er haft eftir framkvæmdastjóra sjúkrahúss í borginni að hermenn hafi verið inni á spítalanum og að leitað hafi verið á starfsmönnum. Wafa hefur einnig eftir stjórnanda annars sjúkrahúss að það hafi verið umkringt af hernum. Guardian greinir frá en getur þess að fregnirnar hafi ekki verið staðfestar. Samkvæmt AFP er nú rúmur sólahringur eftir af umsömdu hléi á átökum á Gasa og á þeim tíma munu að minnsta kosti ein fangaskipti eiga sér stað. Yfirvöld í Katar hafa hins vegar gefið út að þau vonist til þess að samningar náist um frekari framlengingu. Hún er mjög háð því að Hamas samþykki að láta fleiri gísla lausa. Ekkert bendir til þess að stjórnvöld í Ísrael hafi horfið frá þeim áætlunum sínum að hefja aðgerðir gegn Hamas á ný af fullum þunga þegar hléið tekur enda.
Átök í Ísrael og Palestínu Ísrael Palestína Hernaður Mest lesið Myndir: Allt á floti í Kringlunni Innlent Umfangsmikið mengunarslys vegna rútuslyssins Innlent „Sumar búðir hafa sloppið vel, aðrar ekki“ Innlent Náði ekki að loka búðinni áður en henni var sagt að koma sér út Innlent „Við munum ekkert hreyfa okkur í sumar“ Innlent Leiðinlegt fyrir útskriftarnema sem er hent út áður en þeir taka sopa Innlent Konungsskip Dana í Reykjavík Innlent Sigurður Ingi ekki búinn að undirrita Isavia-samning Innlent Sumarveður fyrir sunnan en annars staðar skýjað Veður Harma banaslysið og hafa uppfært verkferla Innlent Fleiri fréttir Katrín kemur fram í fyrsta sinn frá krabbameinsgreiningu Festust á hvolfi í hálftíma Krefst landsvæðis og að Úkraína dragi NATO-umsóknina til baka Vara við TikTok-æði eftir handtöku tveggja unglinga Samþykktu fimmtíu milljarða dala aðstoð til Úkraínu Lést eftir að hafa fengið rafstraum í heitum potti Óeirðaástand í Buenos Aires vegna aðgerðarpakka Milei Lokuðu ferðamannastöðum og skólum vegna mikils hita Gamall handritsbútur reyndist úr guðspjalli um æsku Krists Aðeins fjórðungur Breta vill vera utan ESB Reyna að mynda bandalög fyrir skyndikosningar í Frakklandi Óvíst með afdrif vopnahléstillögunnar Frederiksen enn ekki með sjálfri sér eftir árásina Íhuga að virða tímamótadóm að vettugi Biden virðir sakadóminn yfir syni sínum Óhollar vörur drepa fjórðung Evrópubúa Stilla upp harðlínumönnum til að fylla skarð Raisi Flugfélagið býður hinum slösuðu minnst 1,4 milljónir í bætur Bananarisi ábyrgur fyrir morðum kólumbískrar dauðasveitar Umdeildur dómari vill trúræknari Bandaríki Varaforseti Malaví á meðal tíu látinna Hamas samþykkir vopnahléstillöguna Merki um stríðsglæpi beggja fylkinga þegar gíslar voru frelsaðir Skutu viðvörunarskotum að norðurkóreskum hermönnum Hægri öfl gætu eignast sinn fyrsta forsætisráðherra Tólf ára drengir sekir um morð á nítján ára gömlum manni Öryggisráðið styður friðartillögu Biden Flugvél varaforseta Malaví týnd Biden ber ekki vitni í eigin sakamáli Ekkja leiðtoga ISIS leysir frá skjóðunni Sjá meira