Innherji

Líf­eyris­sjóðir voru ekki á­huga­samir um til­boð JBT í Marel

Helgi Vífill Júlíusson skrifar
Arnar Másson, stjórnarformaður Marels. Sigurður Egilsson, afi Arnars, fjárfesti fyrst í Marel árið 1992 í kjölfar skráningar fyrirtækisins á hlutabréfamarkað.
Arnar Másson, stjórnarformaður Marels. Sigurður Egilsson, afi Arnars, fjárfesti fyrst í Marel árið 1992 í kjölfar skráningar fyrirtækisins á hlutabréfamarkað. Samsett

Stjórnendur lífeyrissjóða, sem Innherji ræddi við, voru ekki áhugasamir um óskuldbindandi tilboð bandaríska fyrirtækisins John Bean Technologies Corporation í Marel. Þeim þótti gengið of lágt og óspennandi að fá greitt að stórum hluta með hlutabréfum í erlendu félagi. Gengi Marels lækkað um allt að nærri fjögur prósent í fyrstu viðskiptum dagsins eftir að stjórn þess hafnaði tilboðinu. Hún er þó opin fyrir betri tilboðum í félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×