Jólagjöf ársins er snjallsími samkvæmt árlegri jólakönnun ELKO ELKO 16. nóvember 2023 10:07 ELKO býður upp á mikið úrval vara sem hægt er að setja undir jólatréð. Í ár er snjallsími jólagjöf ársins samkvæmt árlegri jólakönnun ELKO. Snjallsími er jólagjöf ársins í ár að því er fram kemur í árlegri jólakönnun ELKO. Snjallsíminn hefur toppsætið af loftsteikingarpottinum (e. airfryer) sem tvímælalaust var jólagjöf ársins árið 2022, en fellur nú niður í níunda sæti á listanum yfir jólagjafir ársins.
Á eftir snjallsíma koma leikjatölvur í öðru sæti listans. Í þeim flokki ber einna hæst PlayStation5 leikjatölvuna sem hefur farið sigurför um heiminn síðan hún kom út árið 2020. Í ár má fyrst gera ráð fyrir að hægt verði að anna eftirspurn eftir þessari vinsælu leikjatölvu, þremur árum eftir að hún kom fyrst á markað. Handheldar leikjatölvur eru að verða sívinsælli og koma þær einnig til með að verða vinsæl jólagjöf í ár í flokki leikjatölva. Arinbjörn Hauksson er markaðsstjóri ELKO. „Í þriðja sæti eru svo heyrnartól, en í þeim flokki voru Airpods oftast nefnd eða í 25% tilfella en vegna vinsælda þessara heyrnartóla frá Apple hefur nafn þeirra nánast orðið samnefnari fyrir öll heyrnartól í eyru,“ segir Arinbjörn Hauksson, forstöðumaður markaðssviðs ELKO. Í fjórða sætinu eru svo snjallúr og þar á eftir góð bók, afþreying og upplifun, og svo gjafabréf. Sex þúsund svöruðu könnun ELKO „Við sendum jólakönnun ELKO á póstlistann okkar um miðjan október og fengum rúmlega 6.000 svör við könnuninni í ár,“ segir Arinbjörn. Hann segir margt forvitnilegt koma fram í könnuninni, svo sem að 4,5% svarenda verði ekki heima um jólin, 47,6% kaupi tíu eða fleiri jólagjafir, 23,6% 18 ára og eldri fái í skóinn á aðfangadag og að rúmlega helmingur haldi í hefðir og gæði sér á möndlugraut um jólin. „Og þegar svo margir svara þá teljum við óhætt að yfirfæra þessi hlutföll á landsmenn alla.“ Arinbjörn segir að einnig hafi verið skemmtilegt að sjá að 98% ætli að fletta jólagjafahandbók ELKO sem kemur út í lok nóvember og 65% ætli að fletta rafrænu eintaki af blaðinu. „Okkur finnst ánægjulegt að sjá lesturinn færast yfir í stafrænt form en stefnum þó á að reyna að koma jólagjafahandbókinni inn á sem flest heimili um næstu mánaðarmót og vonum auðvitað að hún fái að lifa á heimilum landsins fram til jóla.“ Eldhústæki hafa alltaf verið vinsæl jólagjöf og væri flokkurinn tekinn saman þá myndi hann verma þriðja sætið á listanum yfir jólagjöf ársins 2023. Úr þeim flokki eru það einna helst, kaffivélar, hrærivélar og pizzaofnar sem gera má ráð fyrir að rati undir jólatré landsmanna í ár ásamt því að loftsteikingarpottar halda áfram að vera vinsælir en þar má gera ráð fyrir að notendur vilji hugsanlega stækka við sig og fara í stærri, eða jafnvel tvöfalda loftsteikingarpotta. Spurt var um unaðsvörur ELKO spurði viðskiptavini hvort þeir hefðu fengið unaðsvöru í jólagjöf og svöruðu 9,6% spurningunni játandi. 14,2% sögðust ekki hafa verið svo heppin en væru til í það. ELKO hóf sölu á fáguðu úrvali af unaðsvörum fyrir um ári síðan. Þessi viðbót í vöruúrvalið hefur hlotið góðar viðtökurnar og ef marka má niðurstöður jólakönnunarinnar er líklegt að unaðsvörur rati jafnvel í einhverja jólapakka í ár. Arinbjörn segir að þó svo jólasalan hafi að einhverju marki færst yfir á afsláttardaga í nóvember megi gera ráð fyrir að tæplega 20% landsmanna eigi líklega en ekki eftir að kaupa einhverjar jólagjafir á Þorláksmessu. „Í ár er Þorláksmessa á laugardegi og því verður væntanlega nóg að gera í verslunum að venju eða alveg þar til við lokum klukkan eitt á aðfangadag,“ segir hann. Þá kemur fram í könnuninni að um 52% hafi lent í því að fá tvær eins jólagjafir og því mikilvægt að huga að skilarétti á jólagjöfum. „Og til að tryggja að allar gjafir hitti í mark bjóðum við skilarétt á jólagjöfum fram til 31. janúar. Viðskiptavinir fá alltaf fullt verð vörunnar við skil eða skipti. Eins getur fólk prófað vörurnar áður en þeim er skilað og gilda þá almennir skilaskilmálar ELKO. Við fáum yfirleitt fyrirspurnir um miðjan október um hvenær við byrjum að bjóða jólaskilamiða á vörur úr ELKO. Í ár virkjuðum við skilamiðana 16. október og er þá um að ræða yfir 100 daga skilarétt fyrir þá sem byrjuðu snemma að kaup jólagjafir í ár,“ segir Arinbjörn.
Jól Jólagjafir fyrirtækja Mest lesið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Ég er enn að venjast andlitinu á mér“ Bíó og sjónvarp Hinsegin ást í loftinu Lífið Klöppuðu fyrir ofan höfuð á Frikka Dór Lífið Ekki gálgadans heldur hæ dúddelí dæ Gagnrýni Fundu ástina á Domino's Lífið Hvað veistu um… eyjar við Ísland? Lífið „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Tónlist Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni Tónlist Arnór Sig kominn á fast Lífið Fleiri fréttir „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Stóra stærðfræðikeppnin hafin í grunnskólum landsins Minna plast og meiri tenging við upprunann hjá Nándinni í Firði Hormónabreytingar geta haft meiri áhrif á tannheilsu kvenna en margan grunar „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Sjá meira