Lífið samstarf

Styrktu gott mál­efni á bleikum Ford Mustang Mach-E

Brimborg og Ford á Íslandi
Fyrir hvern reynsluakstur á bleika Mustangnum rennur andvirði Bleiku slaufunnar (3.500 kr.) til málefnisins. Komdu og prufaðu kaggann og látum gott af okkur leiða. Myndir/Sergiusz Thor Miern
Fyrir hvern reynsluakstur á bleika Mustangnum rennur andvirði Bleiku slaufunnar (3.500 kr.) til málefnisins. Komdu og prufaðu kaggann og látum gott af okkur leiða. Myndir/Sergiusz Thor Miern

Brimborg og Ford á Íslandi ætla heldur betur að lýsa upp skammdegið, mála borgina bleika og styrkja gott málefni í október með fagurbleikum Ford Mustang Mach-E rafbíl.

Bleiki Mustanginn ætlar að láta gott af sér leiða og fyrir hvern reynsluakstur á honum rennur andvirði Bleiku slaufunnar (3.500 kr.) til málefnisins, en Bleika slaufan er árvekni- og fjáröflunarátak Krabbameinsfélagsins tileinkað baráttunni gegn krabbameinum hjá konum.

„Brimborg styrkir ár hvert við mörg góð málefni og leggur áherslu á verkefni sem hafa jákvæð áhrif í samfélaginu," segir Lilja Þorsteinsdóttir, markaðsstjóri Ford á Íslandi. „Okkur finnst mjög mikilvægt að styðja Krabbameinsfélagið og þetta verðuga verkefni, enda hefur brjóstakrabbamein og afleiðingar þess látið fáa landsmenn ósnortna og skimanir skipta miklu máli.“ 

Þú getur bókað bleika Mustanginn í reynsluakstur með því að smella hér.

„Að sjálfsögðu vonumst við til að fólk líti við hjá okkur, bæði til að forvitnast um bílinn og með það í huga að styrkja Krabbameinsfélagið,“ bætir Lilja við. „Ég get alveg staðfest að það er mjög skemmtileg upplifun að rúlla um göturnar á fagurbleikum bíl því maður sér glitta í bros á andliti flestra sem maður keyrir framhjá. Öll hestöflin og akstursupplifunin eru bónus!“

Hún segir landsmenn hafa tekið virkilega vel í Ford Mustang Mach-E enda sé um mjög öflugan og flottan rafbíl að ræða. „Flestir tala um hversu þéttur og góður hann er í akstri á veturna og svo hefur góð drægni auðvitað sitt að segja þegar fólk er að skipta yfir á rafbíl. Ford hefur auðvitað 120 ára reynslu af því að hanna og smíða bíla sem eru þekktir fyrir að vera sterkbyggðir og kraftmiklir þannig að það var ekki við öðru að búast, sérstaklega þegar táknræna vöruheitið „Mustang“ er sett á bílinn.“

Hægt er að kynna sér Mustang Mach-E rafbílinn hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×