Rafha fagnar afmælinu í nútímalegum búningi Rafha 18. október 2023 08:31 Rafha réðst í viðamiklar framkvæmdir með það fyrir augum að færa verslunina í nútímalegri búning með gerbreyttri verslun og nýrri nálgun við viðskiptavini. Egill Ingvason er framkvæmdastjóri Rafha. Þessi vikuna fagnar verslunin Rafha 87 ára afmæli sínu með glæsilegum afmælistilboðum, kaffi og kruðeríi. „
Við erum svo sannarlega fornfrægt fyrirtæki sem er gamalt en alls ekki gamaldags,“ segir Egill Ingvason, framkvæmdastjóri Rafha. „Á síðasta ári réðumst við í viðamiklar framkvæmdir með það fyrir augum að færa Rafha í nútímalegri búning með gerbreyttri verslun og nýrri nálgun við viðskiptavini okkar. Þær breytingar hafa meðal annars skilað því að nú eru viðskiptavinir okkar yngri en áður.“ Ólíkt öðrum sambærilegum verslunum býður Rafha allar eldhús- og baðinnréttingar ásamt fataskápum frá Kvik með raftækjunum sem verslunin selur. Verslunin á Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík var hönnuð frá grunni af Hafsteini og Karítas í HAF STUDIO og hafa breytingarnar fengið stórkostlegar undirtektir. Egill segir að markmiðið hafi verið að skapa einstakt umhverfi og upplifun í anda sérverslunar þar sem lífsstíll, hönnun, heilsa og allt til matargerðar væri haft að leiðarljósi. „Við töldum það nauðsynlegt, enda eiga hefðbundnar verslanir í vök að verjast þar sem netverslun hefur stóraukist og því þarf að gefa viðskiptavinum ríkari ástæðu til að fara í hefðbundna verslun. Tímarnir breytast og mennirnir með. Gamla verslunin þjónaði ekki tilgangi sínum lengur enda hafa heimilisvenjur, samfélagsmynstur, matarvenjur, lífsstíll og annað gjörbreyst á undanförnum árum.“ Raftækjaverksmiðjan hf. í Hafnarfirði, eða Rafha, var stofnuð árið 1936. Rafha eldavélin er ómissandi hluti að sögu þjóðarinnar en í langan tíma framleiddi Rafha mun fleiri tegundir raftækja. Framleiðslunni var hætt árið 1990. Raftækjaverksmiðjan hf. í Hafnarfirði, eða Rafha, var stofnuð árið 1936. Rafha eldavélin er ómissandi hluti að sögu þjóðarinnar en í langan tíma framleiddi Rafha mun fleiri tegundir raftækja. Framleiðslunni var hætt árið 1990 og í dag flytur Rafha inn og selur heimilistæki frá heimsþekktum vörumerkjum á borð við Electrolux, AEG, Siemens, Samsung, Bosch og LG ásamt eldhúsinnréttingum frá danska merkinu Kvik. Vel tekið á móti viðskiptavinum Sem dæmi um breytingar nefnir Egill að í nýju versluninni sé tekið á móti viðskiptavinum með kaffiveröld þar hægt er að fá kaffivélar sem mala baunir, vélar fyrir kaffihylki eða uppáhellingarvélar. „Svo er hægt að kaupa bæði fylgihluti, kaffi og síróp fyrir kaffidrykkina.“ Vínmenning þjóðarinnar er sömuleiðis allt önnur en áður og eftir breytingar var hannaður einskonar bar inni í miðri verslun þar sem aukið úrval af vínkælum er nú til sýnis og sömuleiðis allt fyrir heimabarinn. „Við vitum líka að flest okkar tæki eru notuð til að búa til eða geyma mat og þar leggjum við sérstaka áherslu á að geta miðlað af þekkingu okkar varðandi allt sem tengist matargerð og bakstri og hvernig tækin okkar koma að notum við ólíkar aðstæður.“ Aðrar kröfur en áður Egill segir að í dag geri viðskiptavinir Rafha líka kröfur um að tækin séu notendavæn og umhverfisvæn. „Þvottavélarnar og þurrkarar eiga að fara betur með fötin okkar, slíta þeim síður og sömuleiðis leggjum við áherslu á að kæli- og frystitæki geymi matvælin við kjöraðstæður til að auka geymsluþolið og lágmarka matarsóun.“ Í nýju versluninni eru heilsutengdum vörum einnig gerð betri skil, s.s. hverskyns húð- og hártæki og tæki til tannumhirðu. „Við fjölguðum vörum og vöruflokkum mjög mikið og tókum inn hönnunar- og lífsstílsmerki eins og Dualit, Kitchenaid, Stelton, matvöru frá Nicolas Vahé og snyrtivörur frá Meraki sem henta vel til tækifærisgjafa eða sjálfsdekurs.“ „Við leggjum áherslu á samtalið við viðskiptavini, að greina óskir þeirra og þarfir og reynum eftir fremsta megni að uppfylla þær,“ segir Egill Ingvason, framkvæmdastjóri Rafha. Þjónustan skiptir öllu máli Rafha er einnig stolt af því að geta boðið, ólíkt mörgum öðrum, allar eldhús- og baðinnréttingar ásamt fataskápum frá Kvik í Danmörku með raftækjunum sem verslunin selur. „Kvik er leiðandi danskur innréttingaframleiðandi þar sem skandinavísk hönnun og einfaldleiki ræður ríkjum. Við teljum að þetta eigi ákaflega góða samleið með raftækjunum okkar og við getum sýnt tækin okkar í sínu rétta umhverfi.“ Egill segir kaupferlið allt annað hjá Rafha en annars staðar og undirbúningurinn sé því mikilvægur. „Þar skiptir þjónustan öllu máli. Við leggjum áherslu á samtalið við viðskiptavini, að greina óskir þeirra og þarfir og reynum eftir fremsta megni að uppfylla þær. Einnig nýtum við okkur vandaðar þrívíddar teikningar til að koma hugmyndunum á blað og fylgjum síðan viðskiptavinum í gegnum allt ferlið ef þess er óskað.“ Nánari upplýsingar má finna á rafha.is.
Hús og heimili Verslun Mest lesið „Svo góð tilfinning að endurheimta sjálfa sig“ Tónlist Fékk að heyra að konur ættu ekki heima á sjó Lífið Kosningavökur frambjóðenda: Hvar verða mestu fagnaðarlætin? Lífið Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið „Tilfinningaþrungið að fá að fylgja myndinni í flík sem þessari“ Tíska og hönnun Fréttatía vikunnar: Kosningar, eldgos og meistarar Lífið The Lazarus Project: Varúð, veldur svefnleysi Gagnrýni Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Lífið Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Lífið Fleiri fréttir Bylgjulestin af stað - fyrsta stopp Vestmannaeyjar „Tek bara þátt til að vinna“ - Marthe sigraði uppskriftakeppni Bylgjunnar og Gott í matinn Barnið þitt verður forseti Íslands í persónusniðinni barnabók Verndum andlitið alla daga með NIVEA sólarvörn „Gerið hjartastuðtækið klárt“ – úrslit í Leikið um landið Kolsýrður íslenskur próteindrykkur slær í gegn Afmælisafsláttur Skanva í fullum gangi Spennan í hámarki fyrir lokadaginn Handgerðir leirpottar fyrir kröfuharða kaupendur Nutrilenk liðbætiefnin breyta öllu á álagstímum „Bannað að hvísla að dómaranum!!“ Átakanleg saga um erfiðar ákvarðanir, sekt og áföll, fegurð og ást, líf og dauða Í sumarform á 6 vikum Sigurviss lið hefja leikinn í Leikið um landið Langar þig að fylgjast með vinsælum húðmeðferðum? Sameinaðu hreyfingu og hlátur í Lyfjugöngunni Endurkast sólarljóss jafn skaðlegt og beint sólarljós X-ið ógnar en Bylgjan ekki? Heldur FM957 bikarnum? Nýja línan frá Barton Perreira kynnt í Auganu Óreiðulaus eldhús með þráðlausu kerfi KitchenAid Verum viðbúin með góðri vörn þegar sólin skín! Magnesíum potturinn í Laugardalslaug snýr aftur! Bill Barton kemur í Augað í Kringlunni Sumar að hætti Múmínálfanna lokkar þig út í góða veðrið Einstakar húðmeðferðir sem auka heilbrigði húðarinnar „Okkar sérsvið liggur í sætindum“ – mæðradagsbombur frá 17 sortum Glæsileg dagskrá á Þjónustudegi Toyota á laugardag Umfram allt að húsgögnin þoli íslenskt veðurfar Nýi Draumurinn slær í gegn Dáleiðsludagurinn 11. maí Sjá meira